Fréttir

true

Liðka þarf til svo snjómokstur gangi sem greiðast

„Nú stendur yfir vetrarríki með snjókomu, vindgangi og skafrenningi,“ segir orðrétt í tilkynningu á vef Borgarbyggðar þar sem fjallað er um snjómokstur og mikilvægi þess að íbúar létti sem kostur er undir svo snjóruðningur gangi greitt. „Þetta veðurfar hefur í för með sér mikið álag á alla, bæði íbúana sem þurfa að komast leiðar sinnar,…Lesa meira

true

Samþykkt að hefja endurskoðun fjallskilamála í Borgarbyggð

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í gær tillögu Geirlaugar Jóhannsdóttur um að stofnaður verði vinnuhópur sem fær það verkefni að endurskoða fyrirkomulag fjallskila í sveitarfélaginu. Í bókun segir að tilgangurinn sé að vinna að samræmingu við framkvæmd fjallskila og hugsanlega fækka afréttarnefndum. Þá er markmið vinnuhópsins að auka jafnræði landeigenda með samræmdri gjaldheimtu. „Mikilvægt…Lesa meira

true

Andrea framlengir við Snæfell

Körfuknattleikskonan Andrea Björt Ólafsdóttir hefur framlengt samning sinn við Snæfell um eitt ár. Andrea leikur stöðu framherja og hefur spilað með Snæfelli síðan 2016. Andrea hefur leikið vel með Snæfelli í Domino‘s deild kvenna á yfirstandandi keppnistímabili. Hún hefur að meðaltali skorað 5,1 stig, tekið 4,8 fráköst og gefið 2,6 stoðsendingar og er með 9,1…Lesa meira

true

Blint og slæmt veður til ferðalaga þar til um hádegi

Í tilkynningu frá Vegagerðinni nú rétt í þessu segir að það verði skafrenningur, blinda og él þar til undir hádegi að veður tekur að lagast í Borgarfirði, á Snæfellsnesi og á sunnanverðum Vestfjörðum. Athygli er vakin á mjög slæmri veðurspá fyrir helgina með ofankomu og byl. Síðdegis í dag verður gluggi milli lægða en á…Lesa meira

true

Gaf handlækningadeildinni leikjatölvu

Ólafur Dagur Signarson, tíu ára piltur á Akranesi, kom nýverið færandi hendi á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Færði hann B-deild sjúkrahússins, handlækningadeildinni, Playstation 3 leikjatölvuna sína að gjöf, ásamt nokkrum tölvuleikjum. Vildi Ólafur gefa tölvuna sína á góðan stað þar sem aðrir gætu notið góðs af. „Þökkum við honum kærlega fyrir gjöfina,“ segir Birna Katrín…Lesa meira

true

Íbúðir á Bifröst boðnar til leigu

Um síðustu mánaðamót tóku nýir eigendur við stórum hluta fasteigna í háskólaþorpinu á Bifröst í Borgarfirði. Skessuhorn sagði nýverið frá sölunni. Nýir eigendur hafa nú keypt rekstur á Hótel Bifröst, húsið Hamragarða auk fjölbýlishúss með alls 48 íbúðum. Nú er unnið að endurskipulagningu á húsnæðismálum hótelsins en stefnt er að því til framtíðar að starfsemi…Lesa meira

true

Hvítárbrúin opnaði á sínum tíma dyr innan héraðs

Sýning Safnahúss Borgarfjarðar um byggingu Hvítárbrúarinnar 1928 verður einn dagskrárliða á Evrópsku ári menningararfs (European Year of Cultural Heritage 2018). Verður sýningin opnuð 1. nóvember og unnin í samvinnu við Helga Bjarnason blaðamann sem hafði frumkvæði að verkefninu. Einnig mun Vegagerð ríkisins koma að málinu. Það er Minjastofnun Íslands sem velur viðburði á dagskrá menningarársins…Lesa meira

true

Spáð leiðindaveðri í kvöld og fram á nóttina

Seint í kvöld og nótt hvessir í Borgarfirði, á Snæfellsnesi og á sunnanverðum Vestfjörðum.  Vegagerðin bendir á að það verður skafrenningur, blinda og él þar til undir hádegi að veður mun ganga niður. Nú síðdegis er hálka, snjóþekja, þæfingsfærð og skafrenningur eða éljagangur á vegum á Vesturlandi. Þæfingsfærð og skafrenningur er í Dölunum sem og…Lesa meira

true

Einar Logi semur við ÍA

Varnarmaðurinn Einar Logi Einarsson hefur samið við ÍA á nýjan leik og mun leika með liði Skagamanna í 1. deild karla í knattspyrnu á sumri komanda. Einar er uppalinn hjá félaginu og lék síðast með ÍA í næstefstu deild árið 2014. Einar er 27 ára og hefur undanfarin tvö sumur leikið með Kára í 3.…Lesa meira

true

Fimm í árekstri tveggja bíla

Mikill viðbúnaður viðbragðsaðila var klukkan 10 í morgun þegar harður árekstur tveggja bíla varð á Snæfellsnesvegi í Kolbeinsstaðarhreppi á móts við Syðstu-Garða. Fimm manns voru í bílunum, allt erlendir ferðamenn. Að sögn lögreglu slösuðust allir eitthvað en þó enginn alvarlega að talið er. Var fólkið flutt undir læknishendur. Bílarnir eru báðir taldir ónýtir. Mjög blint…Lesa meira