Fréttir

true

Dúxaði sautján ára gömul frá MB

Hin sautján ára Anna Þórhildur Gunnarsdóttir frá Brekku í Norðurárdal er dúx Menntaskóla Borgarfjarðar. Hún lauk stúdentsprófi af náttúrufræðibraut með 9,79 í meðaleinkunn. Hún hlaut einnig viðurkenningar fyrir góðan námsárangur í dönsku, íslensku, tungumálum, náttúruvísindum og stærðfræði. Þá fékk hún viðurkenningu fyrir afburða árangur á lokaverkefni, ásamt fjórum öðrum nemendum. Önnu Þórhildi hefur alla tíð…Lesa meira

true

Á vampíruhátíð í Transylvaníu

Skagamaðurinn Knútur Haukstein Ólafsson varð heldur betur undrandi í byrjun apríl þegar hann fékk tölvupóst frá kvikmyndahátíðinni International Vampire Film and Arts Festival þess efnis að stuttmynd hans, Drakúla, hefði komist inn á hátíðina sem haldin var dagana 26. – 29. maí. Stuttmynd Knúts er skopstæling á kvikmyndinni Dracula eftir Tod Browning sem frumsýnd var…Lesa meira

true

Steini Eyþórs hjólar hringveginn og safnar fyrir ADHD

Þorsteinn Eyþórsson, 62 ára Borgnesingur, leggur af stað hjólandi hringveginn í dag, miðvikudaginn 8. júní. „Ég ætla ekki að vera með neinn æsing og stefni á að taka 16 daga í þetta,“ segir Steini þegar Skessuhorn hafði samband við hann. „Það eru svona að meðaltali um 85 kílómetrar á dag,“ bætir hann við. Steini byrjaði…Lesa meira

true

Nafn konunnar sem lést

Fullorðin kona lést og fjórir slösuðust í hörðum árekstri fólksbíls og jeppa í Hvalfjarðargöngum skömmu fyrir klukkan 14 á sunnudaginn. Konan sem lést hét Ingrún Ingólfsdóttir, 67 ára hjúkrunarfræðingur búsett í Hafnarfirði. Ingrún lætur eftir sig eiginmann og þrjú uppkomin börn. Mikill viðbúnaður var vegna slyssins, fjöldi sjúkrabifreiða frá Reykjavík og Akranesi var sendur á…Lesa meira

true

Fyrsti laxinn á land úr Brennunni

Laxveiðin byrjar heldur betur vel og virðist fiskur genginn í flestar ef ekki allar veiðiárnar á Vestulandi. Mest af fiski er komið í Norðurá og í Þverá en þar hefst veiði ekki fyrr en 12. júní. ,,Það er komið ótrúlega mikið af fiski í Þverá og Kjarará,“ sagði einn af þeim fjölmörgu sem hafa kíkt…Lesa meira

true

Meirihluti samþykkti skotæfingasvæði og motokrossbraut

Á fundi í umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefndar Borgarbyggðar í gær voru tvö mál tekin til afgreiðslu og samþykkt af meirihluta nefndarmanna sem breyting á aðalskipulagi. Annars vegar var til umræðu fyrirhugað skotæfingasvæði og hins vegar motokrossbraut. Tillögurnar fara nú til formlegrar afgreiðslu í sveitarstjórn. Nefndin samþykkti að fela skipulagsfulltrúa að ganga frá svörum við athugasemdum…Lesa meira

true

Óku útaf því treyst var á GPS tækin

Um tugur umferðaróhappa varð í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið. Tvö þeirra má rekja til þess að ökumenn treystu í blindni á svokölluð gps leiðstögutæki sem komið hefur verið fyrir í mörgum bílum. Erlendur ökumaður sem ók eftir leiðsögn gps tækis vestur Snæfellsnesveg var á of miklum hraða og náði því ekki hægri…Lesa meira

true

Björgin dró tvo til hafnar í gær

Við sögðum frá því í frétt hér fyrr í morgun að björgunarskip úr Grundarfirði og Rifi komu í gær að björgun Sindra RE eftir að hann varð vélarvana í gærdag á Breiðafirði. Ekki var fyrr búið að draga Sindra til hafnar í Grundarfirði og Björgin rétt lögð af stað heim til Rifs þegar annað útkall barst.…Lesa meira

true

Vinnumennirnir hófu slátt meðan bændur brugðu sér af bæ

Sláttur hófst á tveimur jörðum í Hvalfjarðarsveit í Borgarfirði í gær, mánudaginn 6. júní. Á bæjunum Vestra-Reyni undir Akrafjalli og Belgsholti í Melasveit. Gaman er að segja frá því að á báðum bæjum voru það vinnumennirnir sem tóku þá ákvörðun að hefja slátt þegar bændurnir sjálfir höfðu brugðið sér bæjarleið. Haraldur bóndi á Reyn fór…Lesa meira

true

Vélarvana bátur dreginn til hafnar

Strandveiðibáturinn Sindri RE 46 varð vélarvana þar sem hann var við veiðar á Breiðafirði í gær. Björgunarsveitirnar Klakkur í Grundarfirði og Lífsbjörg í Snæfellsbæ voru kallaðar á vettvang og náðu til bátsins fljótlega. Veður var gott og því til þess að gera lítil hætta á ferðum. Klakksmenn hófu að draga bátinn áleiðis til Grundarfjarðar en…Lesa meira