Fréttir

true

Lagning ljósleiðara hefur tafist í Skorradal

Skorradalshreppur var meðal þeirra sveitarfélaga sem fengu styrk úr Fjarskiptasjóði til lagningar ljósleiðara árið 2017. Ekkert hefur þó enn orðið af framkvæmdum. Í tilkynningu til íbúa skrifar Árni Hjörleifsson oddviti að margt hafi orsakað tafir, svo sem að semja hefur þurft um lagningu strengja í öðru sveitarfélagi.„Eins hefur tekið lengri tíma, en menn áætluðu, að…Lesa meira

true

Glerull fauk frá rústum Sementsverksmiðjunnar

Í hvassviðri í gær varð talsvert fok á byggingarefnum frá mannvirkjum Sementsverksmiðjunnar sem nú er unnið við niðurrif á. Járnblötur tókust á flug en mest fok var á glerull sem notuð hefur verið til einangrunar í tengibyggingu, eða reykhreinsivirki, milli ofnhúss og skorsteins sem byrjað er að rífa. Mikið af ull fauk yfir til nærliggjandi…Lesa meira

true

Saga Borgarness tilnefnd til verðlauna Hagþenkis

Búið er að lýsa tilnefningum til viðurkenningar Hagþenkis 2017, verðlauna sem felast meðal annars í 1250 þúsund krónum í peningum auk verðlaunagrips og veitt verða í lok þessa mánaðar. Meðal þeirra ritverka sem tilnefnd voru er Saga Borgarness sem gefin var út á síðasta ári í tveimur bindum. Söguna skráðu frændurnir Egill Ólafsson, sem féll…Lesa meira

true

Dvalarheimilið Höfði er fjörutíu ára í dag

Á Höfða; hjúkrunar- og dvalarheimili á Akranesi verður þess minnst í dag, föstudag, að fjörutíu ár eru liðin frá því fyrstu íbúarnir fluttu inn á heimilið. Fyrsti áfangi dvalarheimilisins Höfða var tekinn í notkun 2. febrúar árið 1978. Eftir það hefur í nokkrum áföngum verið byggt við heimilið og starfsemi þess að hluta breytt því…Lesa meira

true

Valdís Þóra örugglega áfram á Oates Vic Open mótinu

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, komst örugglega í gegnum niðurskurðinn á Oates Vic Open mótinu sem nú stendur yfir í Ástralíu. Valdís kom í hús á 72 höggum, eða einu höggi undir pari, og er nú í 30. sæti af 144 kylfingum. Eftir að hún hafði leikið á tveimur höggum yfir pari í…Lesa meira

true

Rok og slagveður gekk yfir Snæfellsnes

Veður er nú að ganga niður á Snæfellsnesi en þar var mjög hvasst í gærkvöldi og fram á morgun. Í gærkvöldi kyngdi niður snjó en fyrir miðnætti tók að hlýna og fór að rigna samhliða hvassviðri. Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ var með vakt fram undir morgun en félagar fengu fjölda útkalla í gærkvöldi og nótt…Lesa meira

true

Leikdeild Skallagríms frumsýnir um miðjan mánuðinn

Leikdeild Umf. Skallagríms ætlar að frumsýna leikritið 39½ vika eftir Hrefnu Friðriksdóttur, föstudaginn 16. febrúar í Lyngbrekku. „Um er að ræða farsakenndan gamanleik sem fjallar um barneignir og sauðfjárrækt. Eitthvað sem passar einkar vel við leikhópinn,“ segir Þorbjörg Dagný Kristbjörnsdóttir, upplýsingafulltrúa leikdeildarinnar í samtali við Skessuhorn. „Leikritið gerist á biðstofu og skrifstofu kvennadeildar á sjúkrahúsi…Lesa meira

true

Hvetur alla til að prófa sjósund

Lilja Líndal Aðalsteinsdóttir, stjórnarmaður í Sjóbaðsfélagi Akraness, hefur stundað sjósund í rúmlega fimm ár. Hún segist ekki sjá fyrir sér að hætta því í bráð enda allra meina bót. „Einu sinni horfði ég á aðra fara í sjósund og hugsaði með mér hvað mér þætti þetta undarlegt og að þetta gæti ég aldrei gert. Í…Lesa meira

true

Bændur og sveitarstjórn saman um átak í þriggja fasa rafmagnsvæðingu

Í liðinni viku hélt byggðarráð Borgarbyggðar fund í félagsheimilinu Lyngbrekku á Mýrum. Til fundarins komu einnig fulltrúar Búnaðarfélags Mýramanna og var umræðuefnið hvernig flýta mætti lagningu þriggja fasa rafmagns um starfssvæði félagsins. Eftir fund með bændum var farið í heimsókn í fjósið á Lambastöðum. Eins og fram hefur komið í fréttum er verulega að hamla…Lesa meira

true

Bálhvasst orðið við fjöll – lokað við Hafnarfjall

Nú er djúp lægð að ganga yfir landið og ekkert ferðaveður víða þar sem vindur stendur af fjöllum. Samkvæmt sjálfvirkum mælum Vegagerðarinnar er nú bálhvasst t.d. í Kolgrafafirði, á Fróðárheiði og við Hafnarfjall. Á veginum við Hafnarfjall hefur nú samkvæmt heimildum Skessuhorns verið ákveðið að loka fyrir umferð. Ekki er búist við að veður taki…Lesa meira