Fréttir

true

Oddvitaskipti í Reykhólasveit

Vilberg Þráinsson á Hríshóli hefur tekið til starfa sem nýr oddviti í sveitarstjórn Reykhólahrepps. Vilberg var áður varaoddviti sveitarstjórnar og hafði hann sætaskipti við fráfarandi oddvita, Karl Kristjánsson á Kambi. Þetta gerðist á sveitarstjórnarfundi 23. júní síðastliðinn að hálfnuðu kjörtímabili.Lesa meira

true

Helga Guðrún er rauðhærðust og Vesturgata 147 best skreytt

Meðal árlegra viðburða á Írskum dögum á Akranesi, allt frá því þeir voru fyrst haldnir fyrir 17 árum, er keppnin um Rauðhærðasta Íslendinginn. Alls tóku 34 þátt í keppninni að þessu sinni. Það var Helga Guðrún Jónsdóttir sem vann titilinn. Helga Guðrún verður ellefu ára síðar í mánuðinum og býr í Keflavík. Hún kom ásamt…Lesa meira

true

Safnaði á sjöunda hundrað þúsund fyrir ADHD samtökin

Þorsteinn Eyþórsson, 62 ára Borgnesingur, lauk í síðustu viku hringferð sinni um Ísland á reiðhjóli. Ferðin gekk að óskum og fékk Steini mjög góðar móttökur í Borgarnesi við heimkomu. Með hjólaferðinni vildi Steini jafnframt vekja athygli á ADHD samtökunum og safna áheitum fyrir félagið. Margir hafa lagt samtökunum lið og safnaði Steini rúmlega 620 þúsund krónum.…Lesa meira

true

Ferðaþjónustan og landbúnaður taka höndum saman

„Sumarilmur“ er nýtt samstarfsverkefni Samtaka ferðaþjónustunnar og samtaka bænda og fyrirtækja í landbúnaði. Í verkefninu verður sjónum beint að þeirri fjölbreytilegu grósku sem samfléttun ferðaþjónustu og landbúnaðar hefur gætt þróunina um land allt. Auglýst verður eftir myndum sem fanga sumarstemninguna og lýsa samspili ferðaþjónustu og landbúnaðar. Myndirnar birtast á sumarilmur.is og í hverri viku verður…Lesa meira

true

Útlendingastofnun tekur sex íbúðir á leigu á Bifröst

Útlendingastofnun hefur náð samningum við Kiðá ehf. um leigu á sex íbúðum á nemendagörðunum á Bifröst í Borgarfirði. Samningurinn er til þriggja mánaða og er til reynslu. Ekki liggur fyrir hve lengi hver fjölskylda mun dvelja á Bifröst og fer það aðallega eftir því hve lengi mál viðkomandi verða til meðferðar hjá yfirvöldum. Íbúðirnar sem…Lesa meira

true

Landsleikurinn verður sýndur í Hjálmakletti

Það hefur væntanlega ekki farið framhjá mörgum að íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu leikur við Frakkland í 8-liða úrslitum Evrópumótsins á sunnudagskvöld klukkan 19:00. Knattspyrnudeild Skallagríms í Borgarnesi ætlar að sýna leikinn á tjaldi í Hjálmakletti. Húsið verður opnað klukkan 18:00 og verða seldar grillaðar pylsur og gos. Eru allir hvattir til að fjölmenna, klæddir í blátt.Lesa meira

true

Bjóða almenningi að taka háhyrninga í stafrænt ættleiðingarferli

Síðastliðinn miðvikudag voru samtökin Orca Guardians Iceland stofnuð. Þetta eru fyrstu íslensku rannsóknar- og dýravelferðarsamtökin af þessum toga, en hlutverk þeirra er verndun háhyrninga við Íslandsstrendur. Um er að ræða þverfaglegt samstarf alþjóðlegra og íslenskra sérfræðinga t.d. á sviði sjávarlíffræði, umhverfissálfræði og ferðaþjónustu. „Markmið samstarfsins er verndun íslenskra háhyrninga í forvarnarskyni og eingöngu er stuðst…Lesa meira

true

Skagamaður númer sjö þúsund kominn í heiminn

Í gærkvöldi, fimmtudaginn 30. júní, fæddist sjöþúsundasti Akurnesingurinn á fæðingadeild Sjúkrahússins á Akranesi. Þessi merki Skagamaður reyndist vera drengur sem vó fjórtán og hálfa mörk. Foreldrar hans eru þau Arney Þyrí Guðjónsdóttir stuðningsfulltrúi og Kristján Valur Sigurgeirsson starfsmaður Norðuráls. Á síðustu þremur árum hefur íbúum Akraneskaupstaðar fjölgað um 350 umfram brottflutta. 1. janúar síðastliðinn bjuggu…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu stórt gegn Stjörnunni

Sjöttu umferð Pepsi deildar kvenna í fótbolta lauk í gær þegar Stjarnan og ÍA mættust í Garðabæ. Fyrir leikinn var Stjarnan í öðru sæti með þrettán stig en ÍA í því síðasta með aðeins eitt. Skagakonur áttu fá svör við öflugum sóknarleik Stjörnunnar og lauk leiknum með sex marka sigri Stjörnunnar. Leikurinn var fremur bragðdaufur fyrsta…Lesa meira

true

N4 sendir út frá Írskum dögum

Föstudagsþátturinn á N4 mun þessa vikuna verða sendur út frá Akranesi. Tilefnið er að sjálfsögðu Írskir dagar. Hlédís Sveinsdóttir, umsjónarmaður þáttarins Að vestan á N4, mun sjá um Föstudagsþáttinn að þessu sinni og verður hann sendur út frá Stúkuhúsinu í Görðum. Þátturinn verður ekki aðeins helgaður Írskum dögum heldur verður hann með ýmist efni frá Vesturlandi. Þátturinn…Lesa meira