Fréttir

true

Lenging Norðurgarðs boðin út

Hafnarstjórn Snæfellsbæjar hefur óskað eftir tilboðum í lengingu Norðurgarðs hafnarinnar í Ólafsvík. Til stendur að lengja hann um 80 metra. Verkið felur í sér útlögn grjóts og kjarna, samtals 36 þúsund rúmmetra og upptekt og endurröðun um tvö þúsund rúmmetra efnis. Útboðsgögn má nálgast á hafnarskrifstofu Snæfellsbæjar í Ólafsvík sem og hjá Vegagerðinni í Borgartúni…Lesa meira

true

ASÍ vill að fjármálaáætlun endurspegli loforð stjórnvalda

Ríkisstjórnin hefur boðað breytingar á samþykktri fjármálastefnu og fyrirliggjandi tillögu um fjármálaáætlun til næstu fimm ára sem nú er til meðferðar á Alþingi. Þetta eru viðbrögð við breyttum spám um þróun efnahagsmála en gert er ráð fyrir að afkoma ríkissjóðs verði um 40 milljörðum króna lakari en núverandi fjármálaáætlun gerir ráð fyrir. Sú staða sem…Lesa meira

true

Búkalú er fullorðins fjölbragðasýning

Lífskúnstnerinn Margrét Erla Maack ætlar í sumar að halda í þeysireið um landið og bjóða upp á fullorðins fjölbragðasýninguna Búkalú. Meðal annars mun hún sýna á Söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi 6. júní og Frystiklefanum í Rifi 21. júní. „Sýningin er fyrsta sýning Búkalú-ferðalagsins og með í för verða munúðarfullur mannapi, kabarettkerlingar og fettibretta frá…Lesa meira

true

Um tíma óttast að skútu hefði hvolft

Björgunaraðilar við Faxaflóa voru kallaðir út til leitar að beiðni Landhelgisgæslunnar síðdegis í dag. Vísbending hafði borist um að skúta væri á hliðinni í Hvalfirði. Boð til björgunarsveita voru nokkru síður afturkölluð. Í ljós kom að það sem sjónarvottur hafði talið vera skútu, reyndist vera hvalur. Engin hætta var því á ferðum.Lesa meira

true

Margir taka þátt í Hreyfiviku UMFÍ – hófst í dag

„Borgfirðingar taka alltaf þátt í Hreyfiviku UMFÍ. Við leggjum okkur líka fram um að bjóða öllum að vera með, bæði börnum og fullorðnum,“ segir Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ungmennasambands Borgarfjarðar. Hreyfivika UMFÍ hófst í dag og geta landsmenn tekið þátt í alls konar hreyfitengdum viðburðum í sinni heimabyggð. Í tilkynningu frá UMFÍ segir að samtökin vonist…Lesa meira

true

Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Vesturlands

Síðastliðinn laugardag voru brautskráðir 74 nemendur frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Dröfn Viðarsdóttir aðstoðarskólameistari flutti annál vorannar við athöfnina. Ylfa Örk Davíðsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útkskriftarnema, þar sem hún rifjaði upp nokkur eftirminnilieg augnablik skólagöngunnar. Helga Braga Jónsdóttir, fyrrverandi nemandi flutti ávarp og Bergdís Fanney Einarsdóttir, Ólöf Gunnarsdóttir og Edgar Gylfi Skaale Hjaltason…Lesa meira

true

Útskrift frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Laugardaginn 25. maí brautskráðust 26 nemendur frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Af félags- og hugvísindabraut brautskráðust Andri Þór Hinriksson, Aníta Ýr Bergþórsdóttir, Aron Ingi Hinriksson, Brynjar Vilhjálmsson, Dagný Vagnsdóttir, Diljá Sigurjónsdóttir, Erlingur Hrafn Helgason, Eyrún Ösp Jóhannesdóttir, Hilmar Björnsson, Kristín Birna Sigfúsdóttir, Marsibil Lísa Þórðardóttir, Patrycja Aleksandra Gawor, Samra Begic, Sigurborg Kristín Ólafsdóttir og Sumarliði Kristmundsson. Af…Lesa meira

true

Markalaus baráttuleikur

ÍA og Grindavík gerðu markalaust jafntefli þegar liðin mættust í þriðju umferð Inkasso deildar kvenna í knattspyrnu á föstudaginn. Leikið var í blíðskaparveðri á Akranesi. Leikurinn var heilt yfir frekar jafn og mikill baráttuleikur. Bæði lið fengu sín marktækifæri en tókst ekki að nýta þau. Grindvíkingar vildu fá vítaspyrnu á 29. mínútu þegar Birgitta Hallgrímsdóttir…Lesa meira

true

Fjallalamb má selja dilkakjöt til Kína

Undanfarin fjögur ár hefur Matvælastofnun, í samvinnu við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, utanríkisráðuneytið og sendiráð Íslands í Kína, unnið að öflun leyfis til útflutnings á lambakjöti frá Íslandi til Kína. Síðastliðið haust var undirritaður samningur milli Íslands og Kína um skilyrði, heilbrigðiskröfur og eftirlit vegna útflutningsins. Í kjölfarið á því sótti Fjallalamb hf á Kópaskeri um…Lesa meira

true

Sterkur varnarleikur skóp sigurinn

Víkingur Ó. vann góðan sigur á Þór Ak. í fjórðu umferð Inkasso deildar karla í knattspyrnu á föstudagskvöld, 2-0. Leikið var á Ólafsvíkurvelli. Heimamenn fengu óskabyrjun og komust yfir strax á 8. mínútu leiksins. Martin Kuittinen tók hornspyrnu frá hægri og sendi boltann fyrir. Ívar Örn Árnason reis manna hæst í vítateignum og skallaði í…Lesa meira