Fréttir

true

Aðilaskipti að greiðslumarki sauðfjár verður óheimil

Aðilaskipti að greiðslumarki sauðfjár verður óheimil frá og með 1. júní næstkomandi í samræmi við breytingu á búvörulögum sem samþykkt var á Alþingi 15. maí síðastliðinn. Þó verður heimil tilfærsla greiðslumarks milli lögbýla í eigu sama aðila og við ábúendaskipti eða breytingu skráningar ef um hjón eða sambúðarfólk er að ræða. Aðilaskipti taka gildi 1.…Lesa meira

true

Samið um lengri Hálendisvakt í sumar

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra hefur annað árið í röð ákveðið að auka framlag ráðuneytisins til Hálendisvaktar björgunarsveitanna til þess að unnt verði að hefja viðveru á hálendinu hálfum mánuði fyrr en ella. Með greiðslu viðbótarframlags úr ríkissjóði getur Hálendisvaktin hafist um miðjan júní en alla jafna hefst hún ekki fyrr en í byrjun júlí.…Lesa meira

true

Sjálfstæðisflokkurinn 90 ára á morgun

Sjálfstæðisflokkurinn fagnar 90 ára afmæli sínu á morgun, laugardaginn 25. maí, en flokkurinn var stofnaður 25. maí 1929 með samruna Íhaldsflokksins og Frjálslylda flokksins. Til að fagna þessum tímamótum stendur flokkurinn fyrir viðburðum víðsvegar um land. Í Norðvesturkjördæmi verður dagskrá á eftirtöldum stöðum: Borgarnes Fulltrúaráð Borgarbyggðar býður í afmæliskaffi laugardaginn 25. maí frá kl 15-17…Lesa meira

true

Mikilvægt að byggja brýr til að ná betur til erlends fólks

„Það er ekki nóg að þýða bæklinga á erlend tungumál til að ná betur til foreldra barna af erlendum uppruna. Betra er að hitta foreldrana, afhenda þeim upplýsingar á máli viðkomandi, ræða við þá um nauðsyn þess að börnin þeirra stundi íþróttir í skipulögðu starfi og fylgja málinu eftir. Við gerðum meira og fengum til…Lesa meira

true

Fjölmörg hraðakstursbrot innanbæjar sem utan

Lögreglan segir hraðakstur hafa verið mjög áberandi undanfarnar vikur á landinu öllu. Lögreglan á Vesturlandi hefur umsjón með úrvinnslu hraðakstursmála sem koma inn í gegnum hraðamyndavélar um allt land og heldur talningu yfir þau mál. Frá 1.-19. maí höfðu 1996 hraðakstrar verið myndaðir í myndavélum um allt land, en sú tala tekur einnig til myndavélabíla…Lesa meira

true

Líflegur fasteignamarkaður í apríl

Á Vesturlandi var 48 samningum um fasteignir þinglýst í apríl. Þar af voru 12 samningar um eignir í fjölbýli, 22 samningar um eignir í sérbýli og 14 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 1.623 milljónir króna í þessum viðskiptum og meðalupphæð á samning 33,8 milljónir króna. Af þessum 48 voru 20 samningar um eignir…Lesa meira

true

Bjarki Steinn semur við ÍA til þriggja ára

Knattspyrnumaðurinn Bjarki Steinn Bjarkason hefur skrifað undir þriggja ára samning við ÍA. Bjarki er fæddur árið 2000 og alinn upp hjá Aftureldingu í Mosfellsbæ, en hefur leikið með liði Skagamanna frá því á síðasta ári. Hann hefur farið vel af stað með ÍA nú í vor, leikið alla sex leiki liðsins í deild og bikar…Lesa meira

true

Lionsklúbbur Akraness styrkir björgunarfélagið

Lionsklúbbur Akranes ákvað að styrkja starfsemi Björgunarfélag Akraness um 200.000 krónur; „vegna þeirra mikilvægu starfa sem félagið innir af hendi fyrir samfélagið okkar,“ segir gjafabréfinu sem fulltrúar Lionsklúbbs Akraness afhentu Kjartani Kjartanssyni, galdkera Björgunarfélags Akraness, á þriðjudaginn í síðustu viku. „Björgunarfélagið vinnur óeigingjarnt starf fyrir samfélagið og það er mikilvægt að styðja við starfsemi þess,“…Lesa meira

true

Fimmtíu ára fermingarbarnafmæli

Fimmtíu ár eru nú liðin frá því dágóður hópur barna sem gekk í skóla á Kleppjárnsreykjum fermdist í Hvanneyrar- og Reykholtsprestaköllum árið 1969. Hluti hópsins kom saman í messu í Reykholtskirkju síðastliðinn sunnudag. Vegna tímamótanna var fólki hóað saman ásamt kennurum við Kleppjárnsreykjaskóla sem kenndu fermingarbarnaárganginum. Byrjað var í dragbít í kaffihúsinu Heimskringlunni, sem er…Lesa meira

true

Sagan verður ekki flutt milli byggðarlaga

Á aðalfundi Félags Snæfellinga og Hnappdæla sem haldinn var 22. maí síðastliðinn var samþykkt ályktun þar sem lýst er áhyggjum yfir þeirri þróun á Snæfellsnesi, að fyrrum Kolbeinsstaðahreppur og Skógstrandarhreppur teljist ekki lengur í reynd til héraðsins Snæfellsness. „Þessu veldur sameining þessara hreppa við Borgarbyggð og Dalabyggð. Landfræðilega, sögulega og menningarlega hafa þessir hreppar öldum…Lesa meira