Fréttir

true

Börnin mæta miðöldum í Reykholti

Snorrastofa hóf á loft kefli barnamenningar miðvikudaginn 8. maí þegar 170 nemendur úr grunnskólum nágrennisins mættu á höfuðból höfðingjans Snorra Sturlusonar, kynntu með líflegum tilþrifum eigin afurðir sem til urðu í vetrarnáminu um hann og miðaldir. Að því búnu tókust þau á við ýmsa þætti þess lífs, sem lifað var á hans tíma, sem framreiddir…Lesa meira

true

Eldsmíðasamkoma á Akranesi um mánaðamótin

Félagið Íslenskir eldsmiðir heldur hina árlegu eldsmíðasamkomu á Byggðasafninu í Görðum á Akranesi um næstu mánaðamót. Boðið verður upp á örnámskeið í eldsmíði fimmtudaginn 30. maí og laugardaginn 1. júní. Íslandsmótið í eldsmíði verður síðan haldið sunnudaginn 2. júní og hefst klukkan 10. Að sögn Ingvars Matthíassonar, meðlims Íslenskra eldsmiða, er von á að hátt…Lesa meira

true

Þórður Már er nýr skipulagsfulltrúi í fimm sveitarfélögum

Þórður Már Sigfússon hefur verið ráðinn skipulagsfulltrúi Dalabyggðar og fleiri sveitarfélaga og hóf hann störf í byrjun apríl. Þórður er með BS-gráðu í landfræði og hefur einnig lokið Mastersnámi í skipulagsfræði. Hann lauk námi á síðasta ári og hefur síðan unnið sem verktaki. Hann er ættaður úr Árneshreppi og bjó í fimm ár á Djúpavík…Lesa meira

true

Fornbílaskoðun í kvöld

Árleg fornbílaskoðun hjá Frumherja í Borgarnesi verður síðdegis í dag, föstudaginn 17. maí, frá kl. 16.00 til kl. 20.00. Skoðunargjald er 3.500 krónur fyrir hvern fornbíl félagsmanns í Fornbílafjelagi Borgarfjarðar. „Þeir fornbílaeigendur sem eiga bíla á Samgöngusafninu bera sjálfir ábyrgð á því að færa sína bíla til skoðunar eða að fela það öðrum. Hafist verður…Lesa meira

true

Áhugamál sóknarprestsins af ólíkum toga

Flestir eiga sér einhver áhugamál utan vinnunnar. Þeirra á meðal er séra Óskar Ingi Ingason sóknarprestur í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli. Hann segir þó að ekki megi stjórnast af þeim og er hann að eigin sögn fyrst og síðast prestur. Hann á þó tvö mjög ólík áhugamál sem hann sinnir af natni þó ólík séu. Knattspyrnuáhugi…Lesa meira

true

Gullni söguhringurinn í Dölum og Sturlufélag stofnað

Sunnudaginn 12. maí var formleg afhjúpun söguskiltis við Hjarðarholtsafleggjara, vestan Búðardals, en það er fyrsta skiltið af fjórum sem reist verða í Dölum í tengslum við hinn Gullna söguhring Dalanna. Verkefnið er unnið að frumkvæði Sturlunefndar og nær Gullni söguhringurinn frá Búðardal, út fyrir Klofning og að Saurbæ. Skiltin segja frá mikilsverðu fólki og tíðindum…Lesa meira

true

Leikskólinn Vallarsel fagnar fjörutíu árum

Mánudaginn 20. maí næstkomandi verður leikskólinn Vallarsel á Akranesi 40 ára. Deginum verður fagnað með skrúðgöngu, hátíðarhöldum og opnu húsi eftir hádegi þangað sem foreldrar og aðrir velunnarar skólans eru velkomnir frá klukkan 14.30. Vallarsel er elsti starfandi leikskólinn á Akranesi, sá fyrsti sem var byggður sem slíkur. Síðan hefur í tvígang verið byggt við…Lesa meira

true

Lærir margt í gegnum tónlistina

Anna Þórhildur Gunnarsdóttir er upprennandi píanisti frá Brekku í Norðurárdal. Hún hélt fyrir skömmu útskriftartónleika og jafnframt sína fyrstu einleikstónleika fyrir gesti sem er liður í aðdraganda útskriftar frá Listaháskóla Íslands þar sem hún hefur stundað nám síðustu þrjú ár. Tónleikarnir voru þýðingamiklir fyrir Önnu Þórhildi. „Þetta eru fyrstu einleikstónleikar mínir og undirbúningurinn fyrir þá…Lesa meira

true

Opnar myndlistarsýningu á Kaffi Emil

Á Kaffi Emil í Grundarfirði var opnuð listasýning á þriðjudaginn í síðustu viku. Listamaðurinn á bakvið verkin er Þjóðverjinn Anno Weihs og er þetta önnur sýningin sem hann setur upp á Kaffi Emil. Á sýningunni eru svokölluð Cyanotypes verk sem hann hefur unnið hér á Íslandi síðustu mánuði. Cyanotypes er ævagömul aðferð til að prenta…Lesa meira

true

Sýningin Hvar, hver, hverjar opnuð í Safnahúsi

Laugardaginn 18. maí kl. 13 verður opnuð sýning í Hallsteinssal í Safnahúsi Borgarfjarðar sem ber yfirskriftina Hvar – Hver – Hverjar. Vísar það í þær meginstoðir sem hafðar voru í huga við val á verkum á sýninguna; tímann, bakhjarl safnsins, og mikilvægt framlag kvenna. Hver staður hefur sín sérkenni sem myndar staðaranda og aðgreinir einn…Lesa meira