Fréttir

true

Skagamenn vígja nýjan Blikavöll í kvöld

Þrír leikir eru á dagskrá í fimmtu umferð Pepsí Max deildar karla í knattspyrnu í dag.  Þeirra hæst ber að nefna að Breiðablik tekur á móti ÍA í sannkölluðum toppslag í deildinni í Kópavogi klukkan 19:15. Liðin eru jöfn í efsta sæti deildarinnar með 10 stig. Leikurinn verður jafnframt sá fyrsti sem spilaður verður á…Lesa meira

true

Þór kjörinn forseti Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Nú rétt í þessu var að ljúka kjöri á næsta forseta Slysavarnafélagsins Landsbjargar, en þingið SL fer fram á Egilsstöðum um helgina. Það sitja nokkur hundruð félagar í björgunarsveitum víðsvegar af landinu. Smári Sigurðsson fráfarandi formaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs í félaginu og höfðu þrír boðið sig fram. Það voru Þór Þorsteinsson…Lesa meira

true

Ungmenna- og tómstundabúðirnar kveðja Lauga

Síðustu nemendurnir kvöddu Ungmenna- og tómstundabúðirnar á Laugum í Sælingsdal í morgun, réttum 14 árum og 4 mánuðum eftir að fyrsti hópurinn kom þangað í ungmennabúðir. Næst taka starfsmenn búðanna á móti krökkunum í haust á Laugarvatni þar sem Ungmenna- og tómstundabúðirnar munu starfa hér eftir. Strax á sunnudaginn næsta verður hafist handa við að…Lesa meira

true

VR tilnefnir fyrirmyndarfyrirtæki ársins

VR hefur valið fimmtán fyrirtæki, fimm í hverjum stærðarflokki, sem Fyrirtæki ársins 2019. Niðurstaðan er fengin í kjölfar könnunar sem félagið stóð fyrir meðal þúsunda starfsmanna á almennum vinnumarkaði. Niðurstöðurnar voru kynntar í móttöku á Hilton Nordica hóteli í Reykjavík í gær. Fyrirtækin í fimmtán efstu sætunum í hverjum stærðarflokki fá viðurkenninguna fyrirmyndarfyrirtæki ársins. „Mörg…Lesa meira

true

Samkomulag næst um að verðmat fari fram

Sveitarstjórn Borgarbyggðar og lóðarhafar við Borgarbraut 55 í Borgarnesi hafa komist að samkomulagi um kaup sveitarfélagsins á húseigninni. Þetta eru fyrirtækin Grani ehf. þar sem verslun Líflands er til húsa og Bifreiðaþjónustu Harðar ehf. þar sem dekkja- og smurverkstæði er. Fimmtíu ára lóðarleigusamningur rann út 25. apríl síðastliðinn og samkvæmt fyrri ákvörðun sveitarstjórnar lá fyrir…Lesa meira

true

Eiríkur átti lægsta boð í byggingu nýs Hnoðrabóls

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í gær var kynnt niðurstaða útboðs Ríkiskaupa, fyrir hönd Borgarbyggðar, á byggingu nýs leikskóla á Kleppjárnsreykjum. Í verkinu felst niðurrif fyrrum heimavistar grunnskólans og íbúðar og bygging nýs leikskóla og vinnuherbergja starfsfólks. Fjögur tilboð bárust í verkið. Lægsta tilboð átti Eiríkur J Ingólfsson ehf. sem bauð 296,2 milljónir króna. Önnur tilboð…Lesa meira

true

Þrír vilja veiða hvali

Þrjú fyrirtæki hafa sótt um leyfi til hvalveiða við Ísland næstu fimm sumarvertíðir, eða fram til ársins 2023. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur ekki svarað leyfisbeiðendum. Hvalur hf. er eina fyrirtækið sem sækist eftir því að fá að veiða langreyði. Útgefinn langreyðarkvóti til ársins 2025 er 209 dýr. Tvö fyrirtæki vilja veiða hrefnu; IP útgerð ehf.…Lesa meira

true

Ráðherra fundaði með félagsmálastjórum

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, átti fund með félagsmálastjórum allra sveitarfélaga landsins í síðustu viku. Var fundurinn haldinn í Skagafirði. Þar var farið ítarlega yfir vinnu er varðar málefni barna sem fer fram í félagsmálaráðuneytinu um þessar mundir, en hún snýr meðal annars að heildarendurskoðun barnaverndarlaga og endurskoðun á félagslegri umgjörð og stuðningi við…Lesa meira

true

Börnin mæta miðöldum í Reykholti

Snorrastofa hóf á loft kefli barnamenningar miðvikudaginn 8. maí þegar 170 nemendur úr grunnskólum nágrennisins mættu á höfuðból höfðingjans Snorra Sturlusonar, kynntu með líflegum tilþrifum eigin afurðir sem til urðu í vetrarnáminu um hann og miðaldir. Að því búnu tókust þau á við ýmsa þætti þess lífs, sem lifað var á hans tíma, sem framreiddir…Lesa meira

true

Eldsmíðasamkoma á Akranesi um mánaðamótin

Félagið Íslenskir eldsmiðir heldur hina árlegu eldsmíðasamkomu á Byggðasafninu í Görðum á Akranesi um næstu mánaðamót. Boðið verður upp á örnámskeið í eldsmíði fimmtudaginn 30. maí og laugardaginn 1. júní. Íslandsmótið í eldsmíði verður síðan haldið sunnudaginn 2. júní og hefst klukkan 10. Að sögn Ingvars Matthíassonar, meðlims Íslenskra eldsmiða, er von á að hátt…Lesa meira