Fréttir

true

Skagamenn styrkja stöðu sína á toppi deildarinnar

Nú rétt í þessu var meistaraflokkur karla hjá ÍA að tryggja sér 2:0 sigur á FH í fjórðu umferð Pepsí Max deildarinnar. Leikurinn var spilaður á Akranesvelli. Fyrir leikinn voru liðin jöfn í öðru og þriðja sæti með sjö. Hetjan í kvöld var Bjarki Steinn Bjarkason sem skoraði bæði mörkin fyrir Skagamenn. Hið fyrra á…Lesa meira

true

Söngurinn er sálmur sálarinnar segir 100 ára Matthildur

Matthildur Maríasdóttir á Álftárósi á Mýrum varð hundrað ára í gær, 14. maí. Matthildur er fædd á Gullhúsá á Snæfjallaströnd í Norður-Ísafjarðarsýslu. Foreldrar hennar voru Marías Jakobsson og Guðrún Jónsdóttir. Átta af níu systkinum hennar komust til fullorðinsára. Þröngt var í búi og fátækt mikil. Bærinn á æskuheimili hennar var til að mynda einungis 15…Lesa meira

true

Mikil sorg vegna bruna í Fjöliðjunni í síðustu viku

Á þriðjudagskvöldið í síðustu viku kom eldur upp í vinnu- og hæfingarstaðnum Fjöliðjunni á Akranesi. Talsverðar skemmdir urðu á húsnæðinu og ljóst að hefðbundin starfsemi leggst þar niður í nokkurn tíma, en starfseminni verður komið fyrir á Smiðjuvöllum 9 til bráðabirgða. Eldsvoðinn var mikið áfall fyrir starfsmenn Fjöliðjunnar og að sögn Ástu Pálu Harðardóttur, yfirþroskaþjálfa…Lesa meira

true

Sauðburður stendur nú sem hæst

Í Skorholti í Hvalfjarðarsveit eru ríflega 800 fjár á fóðrum og segist Baldvin Björnsson bóndi eiga von á að um 750 kindur beri í vor og 1350 lömb séu væntanleg. Geldfé hafði í síðustu viku, þegar ljósmyndari Skessuhorns kom við á bænum, verið komið fyrir í gömlu húsunum á Fiskilæk og sömuleiðis þeim ám sem…Lesa meira

true

Nýja Frístundamiðstöðin við Garðavöll var vígð á laugardaginn

Akraneskaupstaður og Golfklúbburinn Leynir buðu bæjarbúum og gestum til formlegrar opnunar á nýrri Frístundamiðstöð við Garðavöll síðastliðinn laugardag. Ítarlega er greint frá því í Skessuhorni sem kom út í dag. Frístundamiðstöðin er þúsund fermetrar að flatarmáli, fjölnota hús sem í senn verður klúbb- og félagsaðstaða golfklúbbsins Leynis með æfingaaðstöðu í kjallara, fundaaðstöðu og veitingastaðnum Galitó…Lesa meira

true

Gras á tjaldsvæði!

Ólögleg fíkniefni fundust inni á klósetti tjaldsvæðisins við Kalmansvík á Akranesi í vikunni sem leið. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að um marijúana var að ræða. Ekki er vitað hver skildi efnið eftir þar sem það fannst.  Lesa meira

true

Helga leysir Maggý af í atvinnuráðgjöfinni

Helga Guðjónsdóttir í Ólafsvík hefur verið ráðin til starfa hjá Samstökum sveitarfélaga á Vesturlandi í tímabundið starf í fjarveru Margrétar Bjarkar Björnsdóttur sem er farin í ársleyfi meðan hún stýrir Markaðsstofu Vesturlands. Helga mun sinna verkefnum hjá atvinnuráðgjöf SSV. Frá þessu er greint á síðu samtakanna.Lesa meira

true

Glæsileg verkefnasýning í FSN

Það var mikið um að vera í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði kennsluvikuna 6. til 10. maí. Undanfarnar annir hefur síðasta fasta kennsluvika verið verkefnavika þar sem nemendur vinna lokaverkefni, ýmist einstaklings eða samvinnuverkefni þar sem reynir á þá þekkingu, leikni og hæfni sem þeir hafa öðlast í náminu. Um allan skólann mátti sjá vinnandi hendur…Lesa meira

true

Skagakonur áfram í bikarnum

Skagakonur eru komnar áfram í Mjólkurbikar kvenna í knattspyrnu eftir 0-1 sigur á FH í gærkvöldi. Leikið var á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði. Um hörkuleik var að ræða þar sem bæði lið sýndu mikla baráttu og fengu ágætis marktækifæri. Hvorugu liðinu tókst þó að skora í fyrri hálfleik og staðan því markalaus þegar liðin gengu til…Lesa meira

true

Ríkið dæmt til að greiða sveitarfélögum hundruð milljóna

Allar líkur eru á að íslenska ríkið þurfi að greiða fimm sveitarfélögum samtals 683 milljónir króna eftir að Hæstiréttur Íslands kvað upp dóm í máli Grímsness- og Grafningshrepps gegn ríkinu í gær, þriðjudaginn 14. maí. Ríkinu er gert að greiða hreppnum 234 milljónir, auk vaxta. Málið snýst um greiðslur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, ekki síst vegna…Lesa meira