Fréttir

true

Bændasamtökin fara fram á þriggja ára aðlögunartíma

Lagafrumvarp sem heimilar innflutning á hráu ófrosnu kjöti, eggjum og ógerilsneyddri mjólk og mjólkurafurðum er nú til umfjöllunar á Alþingi. Bændasamtök Íslands hafa í umsögnum sínum og umfjöllun um málið lagst gegn samþykkt þess. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur kynnt aðgerðaáætlun í fimmtán liðum sem ætlað er að efla matvælaöryggi, tryggja vernd búfjárstofna og bæta samkeppnisstöðu…Lesa meira

true

Gullni söguhringurinn í Dölum og Sturlufélag stofnað

Sunnudaginn 12. maí var formleg afhjúpun söguskiltis við Hjarðarholtsafleggjara, vestan Búðardals, en það er fyrsta skiltið af fjórum sem reist verða í Dölum í tengslum við hinn Gullna söguhring Dalanna. Verkefnið er unnið að frumkvæði Sturlunefndar og nær Gullni söguhringurinn frá Búðardal, út fyrir Klofning og að Saurbæ. Skiltin segja frá mikilsverðu fólki og tíðindum…Lesa meira

true

Jafntefli í fyrsta leik Skagakvenna

Kvennalið ÍA tók á móti FH síðastliðinn föstudag í sínum fyrsta heimaleik og jafnframt fyrsta leik á tímabilinu. Gestirnir úr FH eru nýliðar í Inkasso deildinni eftir að hafa fallið niður úr efstu deild fyrir ári síðan en á sama tíma voru Skagastúlkur hársbreidd frá því að koma sér upp og hefja nú nýtt áhlaup…Lesa meira

true

Hægt að sækja um þátttöku í þingfundi ungmenna 17. júní

Í tilefni af 75 ára afmæli lýðveldisins verður haldinn þingfundur ungmenna á aldrinum 13‒16 ára, 17. júní næstkomandi. Opnað hefur verið fyrir umsóknir til þátttöku í þingfundinum á vef Stjórnarráðsins, www.stjornarradid.is/ungthing. Markmiðið með fundinum er að gefa ungu fólki kost á að kynna sér störf Alþingis og tækifæri til að koma málefnum sínum á framfæri…Lesa meira

true

Fjöliðjan mun fara í húsnæði hjá Akri

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur ákveðið að taka á leigu húsnæði hjá Trésmiðjunni Akri við Smiðjuvelli 9 til að hýsa starfsemi Fjöliðjunnar eftir brunann á Dalbraut í síðustu viku. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri staðfestir í samtali við Skessuhorn að ákvörðun liggi fyrir og að gengið verði frá leigusamningi í þessari viku.Lesa meira

true

Elsa Lára ráðin aðstoðarskólastjóri

Elsa Lára Arnardóttir hefur verið ráðin í stöðu aðstoðarskólastjóra Brekkubæjarskóla á Akranesi og tekur við starfinu af Magnúsi V Benediktssyni. Níu sóttu um stöðuna en einn dró umsókn sína til baka. Elsa Lára hefur með hléum starfað sem umsjónarkennari við skólann. Hún er með B.ed gráðu í grunnskólakennarafræðum og er að ljúka meistaranámi í forystu…Lesa meira

true

Nýja Frístundamiðstöðin við Garðavöll vígð í gær

Akraneskaupstaður og Golfklúbburinn Leynir buðu bæjarbúum og gestum til formlegrar opnunar á nýrri Frístundamiðstöð við Garðavöll í gær. Frístundamiðstöðin er þúsund fermetrar að flatarmáli, fjölnota hús sem í senn verður klúbb- og félagsaðstaða golfklúbbsins Leynis með æfingaaðstöðu í kjallara, fundaaðstöðu og veitingastaðnum Galitó bistro café, en auk þess allt að tvö hundruð manna veislusalur til…Lesa meira

true

Fjölmenni mætti í Brákarey á árlega stórsýningu

Sýning Fornbílafjelags Borgarfjarðar og Bifhjólafjelagsins Raftanna var haldin í Brákarey í gær. Félögin tvö hafa staðið að þessari sýningu í sameiningu undanfarin ár en Raftar héldu sína fyrstu sýningu 2001. Gríðarlegur fjöldi fólk á öllum aldri lagði leið sína í eyjuna og fjölmargir sem komu akandi á eðaltækjum, mótorhjólum eða eldri bílum. Komu gestir m.a.…Lesa meira

true

Skemmdir unnar á Hnausavita

Lögreglan á Vesturlandi hefur óskað eftir upplýsingum frá almenningi um mögulegar mannaferðir dagana 26. apríl til 3. maí, en þá voru unnar skemmdir á Grundarfjarðarvita (einnig nefndur Hnausaviti) að Búðum, við norðanvert Kirkjufell. Frá þessu er greint á upplýsingasíðu Grundarfjarðarbæjar. „Hafi fólk orðið vart við mannaferðir á eða við það svæði, eða búi yfir ábendingum…Lesa meira

true

Skagamenn sigruðu Val á Hlíðarenda

ÍA og Valur áttust við í þriðju umferð Pepsí Max deildarinnar í fótbolta í gærkvöldi. Spilað var á gervigrasinu á Hlíðarenda og voru aðstæður býsna góðar; sól, heiðskýrt, lítilsháttar gola en fremur kalt. Fyrirfram hafði verið búist við að leikurinn yrði brekka fyrir Skagamenn, en sú varð ekki raunin. 2-1 sigur var staðreynd og um…Lesa meira