Fréttir

true

UPPFÆRT: Búið að slökkva eld í Fjöliðjunni á Akranesi

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað út núna laust eftir kl. 21:30 vegna elds í húsnæði Fjöliðjunnar að Dalbraut 10 á Akranesi. Eldur logar í miðju hússins, í vinnusal starfsmanna Fjöliðjunnar. Töluverður eldur er í húsinu og reyk leggur frá svæðinu. Allt tiltækt lið Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar er á staðnum ásamt öðrum viðbragðsaðilum. Barist…Lesa meira

true

Gengið til samninga um byggingu Húss íslenskunnar

Gengið verður að tilboði lægstbjóðanda í byggingu Húss íslenskunnar sem rísa mun við Arngrímsgötu í Reykjavík. Í kjölfar útboðs vegna framkvæmdanna var gerð heildarkostnaðaráætlun fyrir verkefnið en hún nemur um 6,2 milljörðum kr. Ríkissjóður mun fjármagna um 70% af heildarkostnaði og Háskóli Íslands um 30% með sjálfsaflafé. Gert er ráð fyrir að smíði hússins muni…Lesa meira

true

Sker og Útgerðin í samstarf

Rut Ragnarsdóttur hjá Útgerðinni í Pakkhúsinu í Ólafsvík og Lilja Hrund Jóhannsdóttir hjá Sker Restaurant hófu samstarf í síðustu viku. Samstarfið byggir á því að hjá Útgerðinni verður verða til sölu léttar veitingar frá Sker Restaurant. Samstarfinu var fagnað 1. maí síðastliðinn þar sem gestum var boðið að njóta léttra veitinga í Pakkhúsinu þar sem…Lesa meira

true

Góður gangur í söfnun fyrir nýjum sjúkrarúmum

Síðastliðinn laugardag fór aðalfundur Vesturlandsvaktarinnar – Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Vesturlands fram á Akranesi. Gestur á fundinum var Janus Guðlaugsson sem flutti áhugavert erindi um heilsueflingu. Á fundinum var sagt frá yfirstandandi söfnunarátaki um sjúkrarúm. Búið er að tryggja að átta rúm verða keypt. Vilhjálmur Birgisson tilkynnti að Verkalýðsfélag Akraness myndi leggja fram framlög til kaupa á…Lesa meira

true

Áhersla lögð á samvinnu á íbúaþingi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi

Íbúaþing á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, sem haldið var í Hjálmakletti í Borgarnesi í gær, var vel sótt. Rétt um 50 manns mættu til að deila hugmyndum og skoðunum sínum um hvernig þeir vilja sjá landshlutann þróast næstu fjögur árin. Yfirskriftin var „Mótum framtíð Vesturlands í sameiningu“ og var mikill velvilji hjá þátttakendum að…Lesa meira

true

Jóhannes frá Vogalæk býður til afmælis

Jóhannes Sigurbjörnsson frá Vogalæk á Mýrum fagnar 80 ára afmæli. “Afmælisboð verður í Brákahlíð í Borgarnesi frá klukkan 16-18 á afmælisdeginum hans fimmtudaginn 9. maí.” -fréttatilkynningLesa meira

true

Lestrarklefinn hlaut viðurkenningu fyrir framlag til barnamenningar

Lestrarklefinn hlaut á sunnudaginn Vorvinda, viðurkenningu frá IBBY á Íslandi fyrir framlag sitt í þágu barnamenningar á Íslandi. Viðurkenninguna hefur IBBY á Íslandi veitt einstaklingum og stofnunum frá árinu 1987. Katrín Lilja Jónsdóttir, ritstjóri Lestararklefans, tók við viðurkenningunni fyrir hönd Lestrarklefans. „Við erum snortnar og þakklátar fyrir viðurkenninguna og heitum því að halda áfram að…Lesa meira

true

Álfasala SÁÁ er hafin

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands keypti í gær fyrsta álfinn af SÁÁ þetta árið og hófst þar með formlega álfasalan sem stendur yfir næstu dagana. Álfurinn er Íslendingum að góðu kunnur eftir áratuga starf í þágu áfengis- og vímuefnasjúklinga en hann stendur nú á tímamótum, er þrítugur í ár. „Álfasalan er stærsta fjáröflunarverkefni SÁÁ ár…Lesa meira

true

Snæfellingar sigruðu í Lengjubikarnum

Snæfellingar eru sigurvegarar í C deild Lengjubikars karla í knattspyrnu eftir sigur á GG í úrslitaleiknum á sunnudag. Leikurinn fór fram á Grindavíkurvelli. Hann var bæði jafn og spennandi og augljóst að bæði lið vildu vinna. Snæfellingar fengu draumabyrjun í leiknum þegar Matteo Tuta kom Stykkishólmsliðinu yfir strax á 10. mínútu leiksins. Þannig var staðan…Lesa meira

true

Borgnesingar byrja á sigri

Skallagrímsmenn hófu leik í 3. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn þegar þeir tóku á móti Einherja á Skallagrímsvelli. Sumarið byrjar vel hjá Borgnesingum, sem sigruðu leikinn 2-1. Einherji náði forystunni á 22. mínútu leiksins þegar Jareo Jolon Bennett skoraði fyrir liðið. Fimm mínútum fyrir hálfleik jafnaði Cristofer Rolin fyrir Borgnesinga og staðan 1-1 þegar…Lesa meira