Fréttir

true

Formannsskipti hjá Björgunarfélagi Akraness

Aðalfundur Björgunarfélags Akraness var haldinn þriðjudagskvöldið 23. apríl. Góð aðsókn var á fundinn. Tvær breytingar voru gerðar á stjórn björgunarfélagsins. Birna Björnsdóttir, fráfarandi formaður, gaf ekki kost á sér til endurkjörs og þá hafði Kristján Hagalín Guðjónsson gengið úr stjórninni á miðju síðasta tímabili. Nýr formaður Björgunarfélags Akraness er Gísli Sigurjón Þráinsson. Aðrir stjórnarmenn eru;…Lesa meira

true

Skagamenn áfram í bikarnum

Skagamenn eru komnir í 16 liða úrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu eftir öruggan 3-0 sigur á Augnabliki í gær. Leikið var í Fífunni í Kópavogi. Skagamenn fengu algera óskabyrjun því Steinar Þorsteinsson skoraði strax á upphafsmínútunni og ÍA komið yfir. Óttar Bjarni Guðmundsson bætti öðru marki við á 15. mínútu leiksins og þannig stóðu leikar…Lesa meira

true

Hreinsuðu rusl að eigin frumkvæði

Þessar glaðlegu stúlkur, Ásdís Rebekka, Eva María og Tinna Dís eru allar nemendur í 4. bekk Brekkubæjarskóla á Akranesi. Ljósmyndari Skessuhorns hitti þær á göngu nýverið þar sem þær voru að tína rusl úr beðum og meðfram umferðargötum við Stillholt og Kirkjubraut á Akranesi. Aðspurður sögðust þær vera að hreinsa upp rusl að eigin frumkvæði.…Lesa meira

true

Raflína fór í sundur

Vinnuflokkur Rarik lauk klukkan 20:30 í gærkvöldi við viðgerð á Laugargerðislínu. Raflína hafði farið í sundur við Rauðkollsstaði. Umfang bilunarinnar var umfangsmeira en gert var ráð fyrir í fyrstu, en straumlaust var á stóru svæði á sunnanverðu Snæfellsnesi.Lesa meira

true

Fleiri gestir og fjölbreyttari geitaafurðir

Í veðurblíðunni á Sumardaginn fyrsta renndi blaðamaður í hlað á Geitfjársetrinu á Háafelli í Hvítársíðu. Töluvert rennerí var af gestum og framan við gömlu útihúsin spókuðu geitur sig með nokkurra daga gamla kiðlinga. Þrátt fyrir að enn væri vika eftir af aprílmánuði var græna grasið sprottið til gagns og nutu geiturnar þess að kroppa það.…Lesa meira

true

Óskað eftir styrkumsóknum

Akraneskaupstaður óskar eftir umsóknum um styrki til íþrótta- og tómstundamála, en bæjarfélagið veitir 15,5 milljónum til íþrótta- og tómstundafélaga á árinu 2019. Markmiðið er að styðja virk félög á Akranesi til að halda uppi öflugu íþrótta-, félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga. Styrkjunum er ætlað að veita fjárhagslegan stuðning til þjálfunar og leiðsagnar barna…Lesa meira

true

Baráttukveðjur til íslensks launafólks

Í dag er alþjóðlegur baráttudagur verkafólks 1. maí. Skessuhorn sendir launþegum hér á landi sem erlendis baráttukveðjur í tilefni dagsins. Tökum undir slagorð verkalýðshreyfingarinnar sem að þessu sinni er: Jöfnum kjörin – samfélag fyrir alla! Minnum jafnframt á dagskrá hvarvetna á þéttbýlisstöðum á Vesturlandi.Lesa meira

true

Fjölbreytt dagskrá í boði á 1. maí

Alþýðusambandi Íslands hafa borist tilkynningar um 1. maí hátíðarhöld í meira en 30 sveitarfélögum á landinu auk fjölmargra viðburða á höfuðborgarsvæðinu hjá stóru stéttarfélögunum. Meðfylgjandi upplýsingar sendi ASÍ og snerta Vesturland: Akranes Safnast verður saman við Kirkjubraut 40, kl. 14:00 og genginn hringur á neðri-Skaga. Hátíðardagskrá í sal Verkalýðsfélags Akraness á 3. hæð Kirkjubrautar 40…Lesa meira

true

Krónan fær Kuðunginn fyrir samfélagsábyrgð í umhverfismálum

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra veitti í dag Krónunni Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu ráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í Ártúnsskóla í Reykjavík og Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi útnefndir Varðliðar umhverfisins. Í rökstuðningi dómnefndar fyrir valinu á Krónunni sem handhafa Kuðungsins kemur fram að allt frá árinu 2015 hafi fyrirtækið markvisst…Lesa meira

true

Trausti Jónsson leitar upphafs íslenskrar dægurlagatónlistar

Trausti fjallar í fyrirlestri í Bókhlöðu Snorrastofu í kvöld um fyrstu ár íslenskrar dægurtónlistar, sem fylgt verður eftir með lifandi tónlist í Reykholtskirkju. Hann er best þekktur sem veðurfræðingur en er jafnframt áhugamaður um tónlist. Kvöldstundina hefur hann nefnt „Var hún á leiðinni?“ Svipast um eftir upphafi íslenskrar dægurtónlistar – með fáeinum tóndæmum. Fjallað verður…Lesa meira