Fréttir

true

Páskagangan í Snæfellsbæ

Nokkur hópur göngufólks í Snæfellsbæ lagði af stað frá Arnarstapa að morgni páskadags og gekk hina vinsælu gönguleið yfir að Hellnum og til baka aftur. Stoppað var í Fjöruhúsinu á Hellnum hjá Sigríði Einarsdóttur og gætt sér á gómsætum vöfflum, sultu og rjóma og drukkið kaffi og súkkulaði með. Hópurinn var á öllum aldri, allt…Lesa meira

true

Safnadagur á Snæfellsnesi á morgun

Sumardagurinn fyrsti er árlegur safna- og sýningadagur á Snæfellsnesi. Þá eru dyr safna og sýninga um allt Snæfellsnes opnðar, fyrir íbúa og aðra gesti að ganga inn um. Allir eru boðnir velkomnir sér að endurgjaldslausu. Safnadagurinn er samvinnuverkefni Svæðisgarðsins Snæfellsness, Byggðasafns Snæfellinga og Hnappdæla og safna- og sýningafólks á Nesinu. Fjölmörg söfn á Snæfellsnesi taka…Lesa meira

true

Viðburðaríkt afmælisár hjá Elkem

„Í tilefni 40 ára afmælisins verður árshátíðin okkar haldin í Edinborg. Fyrirtækið býður þangað öllum starfsmönnum og við fljúgum út í þremur hollum. Þetta hefur mælst afar vel fyrir og stefnir í fjölmennustu árshátíð fyrirtækisins til þessa,“ segir Gestur Pétursson, forstjóri Elkem Ísland, ánægður í samtali við Skessuhorn. Hann bætir því við að ýmislegt fleira…Lesa meira

true

Félagsmenn VLFA samþykktu

Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Akraness samþykktu nýgerðan kjarasamning félagsins við Samtök atvinnulífsins með 88% greiddra atkvæða. Þetta kom fram á heimasíðu félagsins nú rétt í þessu.Lesa meira

true

Þór í framboði til formanns Landsbjargar

Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður haldið á Egilsstöðum dagana 17. og 18. maí næstkomandi. Að venju má ætla að nokkur hundruð manns taki þátt í þinginu, björgunarleikum og árshátíð Landsbjargar sem fram fer á laugardeginum. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að undirbúningur fyrir þingið sé í fullum gangi. Meðal annars skráning í björgunarleikana. Þá hefur…Lesa meira

true

Félagsmenn VR ánægðir með nýja samninga

Niðurstöður í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna VR í kosningu fyrir nýgerða kjarasamninga liggja nú fyrir. Kjarasamningur VR við SA var samþykktur með 88,35% atkvæða, en já sögðu 6.277 félagsmenn og nei 700, eða 9,85%. Auð atkvæði voru 127 eða 1,7%. Á kjörskrá um samning VR og SA voru 34.070 félagsmenn og greiddu 7.104 atkvæði, og var…Lesa meira

true

Smiðjur og kaffihús undir einu þaki í Stykkishólmi

Við Aðalgötu 20 í Stykkishólmi eru þrjár konur saman með opin verkstæði þangað sem hægt er að koma og fylgjast með þeim vinna. Sigríður Erla Guðmundsdóttir er með verkstæðið Leir7 þar sem hún vinnur með leir frá Ytri-Fagradal á Skarðsströnd í Dölum. Lára Gunnarsdóttir er með verkstæði sem heitir Smávinir og þar vinnur hún muni…Lesa meira

true

Bokashi til jarðvegsbætingur

Vesturland er dreifbýlt og á stundum langt að sækja sorp á hvert heimili. Því ætti það að vera hagur íbúanna að geta dregið úr sameiginlegum kostnaði sveitarfélaganna vegna sorphirðu. Í pistli sem Þórunn Reykdal skrifar og birtist í Skessuhorni vikunnar miðlar hún af reynslu sinni af því að hefja moltugerð í eldhússkápnum og minnka þar…Lesa meira

true

Elkem í fjörutíu ár

Framleiðsla kísiljárns á Grundartanga hófst 30. apríl 1979 og fagnar því Járnblendiverksmiðjan fjörutíu ára afmæli í næstu viku. Í Skessuhorni sem kom út í dag er þessara tímamóta minnst með ýmsum hætti í samantekt Kristjáns Gauta Karlssonar blaðamanns. Fyrst má nefna að rætt er við Jón Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Íslenska járnblendifélagsins, um aðdragandann og fyrstu…Lesa meira

true

Aðildarfélög Starfgreinasambandsins samþykkja samninga

Starfsgreinasambandið hefur upplýst að nýr kjarasamningur þess og Samtaka atvinnulífsins á almennum vinnumarkaði hafi verið samþykktur í öllum aðildarfélögum SGS. Var hann samþykktur með miklum meirihluta í öllum aðildarfélögum utan einu. Þátttaka í kosningunni var hins vegar afar dræm, eða 12,78%. 80,06% sögðu já, 17,33% nei og 2,61% tóku ekki afstöðu.Lesa meira