Fréttir

true

Viðburðaríkt afmælisár hjá Elkem

„Í tilefni 40 ára afmælisins verður árshátíðin okkar haldin í Edinborg. Fyrirtækið býður þangað öllum starfsmönnum og við fljúgum út í þremur hollum. Þetta hefur mælst afar vel fyrir og stefnir í fjölmennustu árshátíð fyrirtækisins til þessa,“ segir Gestur Pétursson, forstjóri Elkem Ísland, ánægður í samtali við Skessuhorn. Hann bætir því við að ýmislegt fleira…Lesa meira

true

Félagsmenn VLFA samþykktu

Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Akraness samþykktu nýgerðan kjarasamning félagsins við Samtök atvinnulífsins með 88% greiddra atkvæða. Þetta kom fram á heimasíðu félagsins nú rétt í þessu.Lesa meira

true

Þór í framboði til formanns Landsbjargar

Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður haldið á Egilsstöðum dagana 17. og 18. maí næstkomandi. Að venju má ætla að nokkur hundruð manns taki þátt í þinginu, björgunarleikum og árshátíð Landsbjargar sem fram fer á laugardeginum. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að undirbúningur fyrir þingið sé í fullum gangi. Meðal annars skráning í björgunarleikana. Þá hefur…Lesa meira

true

Félagsmenn VR ánægðir með nýja samninga

Niðurstöður í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna VR í kosningu fyrir nýgerða kjarasamninga liggja nú fyrir. Kjarasamningur VR við SA var samþykktur með 88,35% atkvæða, en já sögðu 6.277 félagsmenn og nei 700, eða 9,85%. Auð atkvæði voru 127 eða 1,7%. Á kjörskrá um samning VR og SA voru 34.070 félagsmenn og greiddu 7.104 atkvæði, og var…Lesa meira

true

Smiðjur og kaffihús undir einu þaki í Stykkishólmi

Við Aðalgötu 20 í Stykkishólmi eru þrjár konur saman með opin verkstæði þangað sem hægt er að koma og fylgjast með þeim vinna. Sigríður Erla Guðmundsdóttir er með verkstæðið Leir7 þar sem hún vinnur með leir frá Ytri-Fagradal á Skarðsströnd í Dölum. Lára Gunnarsdóttir er með verkstæði sem heitir Smávinir og þar vinnur hún muni…Lesa meira

true

Bokashi til jarðvegsbætingur

Vesturland er dreifbýlt og á stundum langt að sækja sorp á hvert heimili. Því ætti það að vera hagur íbúanna að geta dregið úr sameiginlegum kostnaði sveitarfélaganna vegna sorphirðu. Í pistli sem Þórunn Reykdal skrifar og birtist í Skessuhorni vikunnar miðlar hún af reynslu sinni af því að hefja moltugerð í eldhússkápnum og minnka þar…Lesa meira

true

Elkem í fjörutíu ár

Framleiðsla kísiljárns á Grundartanga hófst 30. apríl 1979 og fagnar því Járnblendiverksmiðjan fjörutíu ára afmæli í næstu viku. Í Skessuhorni sem kom út í dag er þessara tímamóta minnst með ýmsum hætti í samantekt Kristjáns Gauta Karlssonar blaðamanns. Fyrst má nefna að rætt er við Jón Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Íslenska járnblendifélagsins, um aðdragandann og fyrstu…Lesa meira

true

Aðildarfélög Starfgreinasambandsins samþykkja samninga

Starfsgreinasambandið hefur upplýst að nýr kjarasamningur þess og Samtaka atvinnulífsins á almennum vinnumarkaði hafi verið samþykktur í öllum aðildarfélögum SGS. Var hann samþykktur með miklum meirihluta í öllum aðildarfélögum utan einu. Þátttaka í kosningunni var hins vegar afar dræm, eða 12,78%. 80,06% sögðu já, 17,33% nei og 2,61% tóku ekki afstöðu.Lesa meira

true

Gestastofa fyrir friðland fugla opnuð á Hvanneyri

Síðdegis í dag verður Gestastofa fyrir friðland fugla í Andakíl opnuð hjá Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri. Um er að ræða fyrsta áfanga gestastofunnar. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra mun opna stofuna og um leið staðfesta verndaráætlun fyrir fyrir friðlandið í Andakíl. Gestum er boðið að vera viðstaddir þennan viðburð sem hefst klukkan 18:00 í húsnæði Landbúnaðarsafnsins.Lesa meira

true

Gæti slagað í hlýjustu sumarkomu frá upphafi

Næstu daga er útlit fyrir austlægan vind á landinu og hlýindi. Það loft sem berst yfir landið er talsvert hlýrra en það sem að jafnaði er á þessum árstíma. Þá er útilit fyrir að verði bjart nokkuð víða og hitinn gæti náð allt að 17 stigum í mörgum landshlutum, en hlýjast um vestanvert landið eins…Lesa meira