Fréttir

true

Strætó fellir niður ferðir vegna veðurs

Vegna slæmrar veðurspár hefur Strætó bs fellt niður ferðir Akureyrarbílsins, leið 57. Gul viðvörun Veðurstofunnar er í gildi vegna hvassviðris í dag. Farþegum Strætó er bent á að fylgjast með tilkynningum á heimasíðu Strætó.Lesa meira

true

Glæsileg frístundamiðstöð brátt tekin í notkun

Framkvæmdum er nú nánast lokið við byggingu nýju frístundamiðstöðvarinnar við Garðavöll á Akranesi. Risið er glæsilegt þúsund fermetra fjölnota hús sem í senn verður klúbb- og félagsaðstaða golfklúbbsins Leynis með æfingaaðstöðu í kjallara, fundaaðstaða, veitingastaður og allt að tvö hundruð manna veislusalur til útleigu. Salinn verður ýmist hægt að stúka niður fyrir smærri samkomur eða…Lesa meira

true

Mávarnir í loðnuveislu í Borgarfirði

Svo virðist sem flestir mávar á Vesturlandi haldi nú árshátíð sína með tilheyrandi veisluhöldum í Borgarfirði. Loðnuganga hefur gengið inn fjörðinn á síðustu dögum. Hafa þúsundir máva verið á sveimi fyrir utan og sunnan Borgarnes undanfarna daga og stungið sér grimmt eftir ætinu. Dauðri loðnu hefur svo skolað á land. Meðfylgjandi mynd tók Þorleifur Geirsson…Lesa meira

true

Snæfell úr leik í bikarnum

Snæfellingar máttu játa sig sigraða gegn KB þegar liðin mættust í fyrstu umferð Mjólkurbikars karla í knattspyrnu. Leikið var á Leiknisvelli í gærkveldi. Stykkishólmsliðið fékk óskabyrjun í leiknum þegar Matteo Tuta kom Snæfellingum yfir á 9. mínútu leiksins. Þeir voru hins vegar ekki lengi í forystu því Praveen Gurung jafnaði metin fyrir KB á 15.…Lesa meira

true

Prjónagleði um Hvítasunnuhelgina á Blönduósi

Í tilefni af Prjónagleðinni, sem haldinn verður hvítasunnuhelgina 7.-10. júní, verða sölubásar í Félagsheimilinu á Blönduósi. „Þar verður áhersla lögð á að kynna prjónavörur og þjónustu sem eru í boði fyrir áhugasama prjónara og einnig fyrir þá sem hafa gaman að því að skoða eitthvað fallegt. Þetta er fjórða Prjónagleðin og hefur úrvalið á vörum…Lesa meira

true

„Eigum að stefna að framleiðslu þess nautakjöts sem markaðurinn þarf“

Nautaeldi til kjötframleiðslu er stundað í smáum stíl hjá mörgum kúabændum í landinu. Þeir eru hins vegar færri sem hafa slíkt að aðalstarfi, þótt vissulega finnist slík bú. Hér um vestanvert landið má nefna Mýranaut á Leirulæk á Mýrum, Hvítanes í Hvalfjarðarsveit og Norðtungu í Þverárhlíð. Magnús Skúlason bóndi í Norðtungu hefur á liðnu ári…Lesa meira

true

Körfubíll í flota slökkviliðsins

Slökkvilið Borgarbyggðar fékk í síðustu viku í hendur Scania körfubíl sem keyptur var og fluttur inn notaður frá Svíþjóð. Bíllinn er búinn 32 metra langri bómu með öflugri vatnsbyssu sem er fjarstýranleg frá jörðu eða beint úr körfu. Er hér um að ræða langþráða viðbót við tækjakost slökkviliðsins og afar nauðsynlega í ljósi þess að…Lesa meira

true

Góður keppnisandi og gleði á bocciamóti í Stykkishólmi

Boccia mót var haldið í Stykkishólmi þriðjudaginn 9. apríl þar sem saman voru komin lið frá félagsmiðstöðinni X-inu, lið frá Aftanskini, sem er skipað heldriborgunum, og boccialið Snæfells sem er hópur fólks með skerta starfsgetu. „Hugmyndin að mótinu kviknaði á bocciaopnun í félagsmiðstöðinni X-inu sem er fyrir unga fólkið í 8.-10. bekk. Við vissum að…Lesa meira

true

Fyrirlestur um að vera besta útgáfan af sjálfum sér

Evert Víglundsson, eigandi og yfirþjálfari CrossFit Reykjavíkur og upphafsmaður CrossFit á Íslandi, verður með fyrirlestur þriðjudaginn 23. apríl kl. 20 á Akranesi um hvernig við getum orðið besta útgáfan af sjálfum okkur. Evert mun í fyrirlestrinum fara yfir mikilvægi svefns, næringar, hreyfingar, félagsskapar og streitustjórnunar. „Vilt þú verða betri í einhverju í lífinu? Þá er…Lesa meira

true

Agla færir Brákarhlíð gjöf

Nýverið komu félagskonur úr Lionsklúbbnum Öglu í Borgarnesi færandi hendi á Brákarhlíð. Gjöfin er eyrnamerkt til uppbyggingar á gróðurhúsi fyrir starfsfólk og íbúa. Það voru þær Jóna Ester Kristjánsdóttir og Þuríður Helgadóttir sem tóku við gjöfinni f.h. Brákarhlíðar og frá Öglum voru þær mættar Elfa Hauksdóttir, Steinunn Ásta Guðmundsdóttir, María Guðmundsdóttir og María Erla Geirsdóttir.…Lesa meira