Fréttir

true

Bónus með ódýrustu páskaeggin

Lægstu verðin á páskaeggjum er hjá Bónus en þau hæstu í Super 1 og Iceland. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmt var 11. apríl síðastliðinn. Allt að 67% verðmunur var á páskaeggjum mill verslana. Munurinn á hæsta og lægsta verði nam oft mörg hundruð krónum og mest 1.400 krónum á einu…Lesa meira

true

Víðtækt samráð um heilsueflingu aldraðra

Þjóðin eldist og samkvæmt tölum Hagstofunnar mun fólki eldra en 80 ára fjölga um tæplega 6.000 eða 46% til ársins 2030. „Hætta á sjúkdómum eykst með hækkandi aldri og þar vega þungt ýmsir sjúkdómar tengdir lífsstíl. Margþættur ávinningur felst í því að efla heilsu aldraðra og gera þeim kleift að búa sem lengst á eigin…Lesa meira

true

Sinueldur við Litlu-Brekku á Mýrum

Síðdegis í dag var Slökkvilið Borgarbyggðar kallað út vegna elds í gróðurlendi skammt frá Litlu-Brekku á Mýrum. Auk mannskapar frá slökkviliðinu á Bifröst, Reykholti, Hvanneyri og Borgarnesi var kallað eftir aðstoð Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar einnig kölluð út til að flytja vatn í stórpoka yfir svæðið, en aðstoð hennar var afturkölluð…Lesa meira

true

Tækniskólinn sigurvegari í Söngkeppni framhaldsskólanna

Söngkeppni framhaldsskólanna var haldin í Bíóhöllinni á Akranesi í gærkvöldi. Þar voru flutt atriði 26 framhaldsskóla víðsvegar af landinu. Það voru Vinir hallarinnar sem héldu utan um skipulag viðburðarins ásamt RUV, en keppnin var sýnd í beinni á Ríkissjónvarpsstöðinni. Birgir Þórisson var hljómsveitarstjóri og kynnar voru bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór. Fyrirkomulag keppninnar var…Lesa meira

true

Stjórn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi

Aðalfundur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi var haldinn síðastliðinn föstudag. Þar var Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Laxa-fiskeldis kjörinn formaður. Við stofnun samtakanna í október 2014 var Jens fyrst kjörinn formaður og hefur því gegnt stöðu formanns frá stofnun. Aðrir í stjórn voru kosnir: Anna Guðmundsdóttir, fjármálastjóri. Gjögur hf. Ásgeir Gunnarsson, framkvæmdastjóri veiða og vinnslu. Skinney–Þinganes hf.…Lesa meira

true

Bálhvasst síðdegis og í kvöld

Gul viðvörun er vegna veðurs á öllu sunnan- og vestanverðu landinu í dag og kvöld. Suðaustan stormur, 18-25 m/s verður á Faxaflóasvæðinu en hvassast verður á Reykjanesi. Hvassar hviður við fjöll, um 40 m/s, til dæmis á Kjalarnesi og við Hafnarfjall. Á Breiðafjarðarsvæðinu verður suðaustan stormur, 15-23 m/s og hvassar hviður, um 35 m/s, á…Lesa meira

true

Rúta á hliðina á veginum við Hafnarfjall

Töluvert hvasst var á vestanverðu landinu um miðjan dag í gær og svo aftur seint í gærkvöldi. Vindhraði í hviðum mældist tvívegis upp í 50 metra á sekúndu á veginum við Hafnarfjall. Um miðjan dag fékk hópferðabíll sem var á suðurleið á sig vindstreng og lenti í fyrstu í vegkantinum. Skömmu síðar fór bíllinn á…Lesa meira

true

Fyrsta þungarokkshljómsveitin til að hljóta verðlaun á Nótunni

Tónlistarskólinn á Akranesi tók þátt í lokahátíð Nótunnar, uppskeruhátíðar tónlistarskólanna hér á landi, sem fram fór í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri 6. apríl síðastliðinn. Hljómsveitin Skull Crusher var fulltrúi tónlistarskólans að þessu sinni og flutti Metallica lagið For Whom the Bell tolls. Hljómsveitina skipa þeir Baldur Bent Vattar Oddsson á bassi, Fannar Björnsson á rafgítar,…Lesa meira

true

Nýtt alþjóðlegt meistaranám við Háskólann á Bifröst

Haustið 2019 hefst kennsla í nýju meistaranámi, alþjóðlegri stjórnmálahagfræði við Háskólann á Bifröst. Námið verður kennt á ensku og er alþjóðlegt. Hægt verður að stunda námið hvar sem er í heiminum því námið verður allt í fjarnámi og á það jafnt við um vinnuhelgar og aðra hóptíma. Námið er það eina sinnar tegundar á Íslandi…Lesa meira

true

Söfnuðu og gáfu til hjálparstarfs

Í vetur héldu nemendur Hvanneyrardeildar Grunnskóla Borgarfjarðar flóamarkað þar sem þeir tóku á móti fjölbreyttum munum og fatnaði frá fólkinu í nærsamfélaginu. Nemendur auglýstu flóamarkaðinn og kom fjöldi fólks til þess að skoða og versla. Nemendur Hvanneyrardeildar náðu að safna 69.315 kr. sem þau ákváðu að verja til góðs málefnis. Þau völdu að gefa vatnsdælu…Lesa meira