Fréttir

true

Fermingaarblað fylgir Skessuhorni í dag

Um næstu helgi verða fyrstu almennu fermingarathafnirnar á Vesturlandi á þessu ári. Byrjað verður í Reykhólakirkju næstkomandi laugardag. Daginn eftir verður fermt á Akranesi, í Borgarneskirkju og í Snókdalskirkju í Dölum. Tæplega tvöhundruð ungmenni fermast í landshlutanum að þessu sinni, en síðustu skráðu fermingardagar verða í júní. Með Skessuhorni í dag fylgir sérblað þar sem…Lesa meira

true

Neyðarkerra komin á Akranes

Síðastliðinn laugardag var Rauða krossinum á Akranesi afhent neyðarkerra sem gjöf frá nokkrum aðilum á Akranesi. Neyðarkerra sem þessi inniheldur allan mikilvægasta búnað til að starfrækja fjöldahjálparstöð með gistingu fyrir 30 manns fyrsta sólarhringinn í neyðaraðgerðum. RKÍ hefur undanfarið unnið að því að koma slíkum kerrum fyrir víða um land, en yfirleitt á ein kerra…Lesa meira

true

Sænskur höfundur á útgáfuhófi á Akranesi

Emelie Schepp er sænskur höfundur sem vakti athygli í heimalandi sínu fyrir fyrstu bók sína, Märkta för livet, og ekki síst vegna þess að hún gaf bókina út sjálf og uppskar titilinn „sjálfsútgefandi Svíþjóðar nr. 1.“ Seldist bókin í 40 þúsund eintökum út úr kjallaranum hjá henni. Nú hefur útgáfurétturinn verið seldur til 27 landa…Lesa meira

true

Kristjáni héldu engin bönd

Síðustu tvö mánudagskvöld hafa félagar í Briddsfélagi Borgarfjarðar spilað einmenning.  Þátttaka var með ágætum og mættu 24 til keppni hvort kvöld. Fyrra kvöldið var það reynsluboltinn Sveinn á Vatnshömrum sem fór með sigur af hólmi, rakaði saman 148 stigum sem gera 61,7% skor.  Rúnar Ragnarsson fylgdi honum fast á eftir með 147 stig og Kristján…Lesa meira

true

Héldu Íslandsmót í badminton

Íslandsmót unglinga í badminton var haldið á Akranesi helgina 11.-13. mars og voru þátttakendur 168 talsins frá tíu félögum; Aftureldingu, BH, Hamri, ÍA, KR, Samherjum, TBR, TBS, UMFS og Umf. Þór. Spilaðir voru 337 leikir um helgina. ÍA og UMFS áttu 18 keppendur á mótinu. Mótið gekk vel fyrir sig en veðrið var aðeins að…Lesa meira

true

Sýningin Akrafjall úr ýmsum áttum

Á Bókasafni Akraness hefur verið sett upp sýning á myndum af Akrafjalli. Myndirnar koma úr ýmsum áttum og eru unnar á mismunandi vegu. Þær eru í eigu Héraðsskjala- og Ljósmyndasafnsins, Bókasafnsins, Listasafns Akraneskaupstaðar og í einkaeigu. „Sumar myndanna voru keyptar í Búkollu – nytjamarkaði, en þar leynast ýmsir dýrgripir. Enn eru laus pláss á Veggnum…Lesa meira

true

Vegleg hátíðarhöld til að minnast þess að tíu ár eru frá Mýraeldum

Búnaðarfélag Mýramanna mun halda Mýraeldahátíð í reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi og síðan um kvöldið í Lyngbrekku laugardaginn 9. apríl næstkomandi. Hátíðin er haldin annað hvert ár til að minnast sinubrunans mikla sem varð í Hraunhreppi í Mýrasýslu fyrir tíu árum, dagana 30. mars til 2. apríl árið 2006. Eldarnir voru jafnframt stærstu einstöku gróðureldar sem…Lesa meira

true

Undankeppni Nótunnar á Vesturlandi og Vestfjörðum

Laugardagurinn 12. mars var mikill hátíðisdagur í Stykkishólmskirkju en þá voru haldnir svæðistónleikar Nótunnar, uppskeruhátíðar tónlistarskólanna, fyrir Vestfirði og Vesturland. Fjöldi nemenda af öllum stigum tónlistarnámsins kom fram og voru atriðin afar fjölbreytileg, sem gerði tónleikana einstaklega skemmtilega og áhugaverða. Viðurkenningar voru veittar fyrir framúrskarandi atriði og þrjú atriði valin til þátttöku á lokatónleikum Nótunnar…Lesa meira

true

Kristín er rósahafi vikunnar í Vetrarkærleiknum

Kristín Thorlacius fékk rós vikunnar í Vetrar-Kærleiknum sem Blómasetrið – Kaffi kyrrð stendur fyrir. Rósina fékk hún fyrir, eins og segir orðrétt í tilnefningunni: „Umhyggjusemi, jákvæðni og lífsgleði, fyrir að leggja sitt að mörkum að menntun og fræðslu í bæjarfélaginu. Hún er traust vinkona, fróð og vel gerð. Hún er öflug kona.“  Lesa meira

true

Veðrið í aðalhlutverki á loðnumiðunum

Tólf uppsjávarveiðiskip bíða þess nú í vari við norðanvert Snæfellsnes að veðrið gangi niður þannig að hægt verði að leita að loðnu í veiðanlegu magni á Breiðafirði. Skipin eru út af Ólafsvík og að sögn Alberts Sveinssonar, skipstjóra á Víkingi AK, ætti að viðra vel til veiða seint í kvöld og nótt. Í samtali við tíðindamann…Lesa meira