
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur úthlutað styrkjum að upphæð 71,5 milljónum króna til sjö verkefna á vegum sex landshlutasamtaka sveitarfélaga. Styrkjunum er úthlutað til sértækra verkefna á sóknaráætlunarsvæðum fyrir árið 2019 í takti við stefnumótandi byggðaáætlun. Alls bárust 19 umsóknir um styrki að fjárhæð rúmar 278 m.kr. fyrir árið 2019. Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknir…Lesa meira








