Fréttir

true

Koma upp salernum og upplýsingaskiltum fyrir ferðamenn

Into the Glacier ehf fékk nýverið úthlutað 24 milljóna króna styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til að bæta merkingar fyrir ferðamenn og uppbyggingu framtíðar salernisaðstöðu á Geitlandi við rætur Langjökuls. „Við ætlum að auka upplýsingaflæði til ferðamanna um svæðið við og á jöklinum. Það er alltaf fólk að fara upp á jökul, hvort sem það er…Lesa meira

true

Hundagerði sett upp í Borgarnesi

Sveitarfélagið Borgarbyggð hefur komið upp nýju hundagerði í Borgarnesi. Gerðið er staðsett við þjóðveginn á milli leikskólans Klettaborgar og tjaldsvæðisins við Borgarvog. Hundaeigendur geta nýtt gerðið til að leyfa hundunum sínum að hlaupa um og leika sér. Þá eru eigendur beðnir um að hreinsa upp eftir hundana sína og ganga vel um gerðið. Við hliðið…Lesa meira

true

Grósku lokað á laugardaginn

Garðvöruversluninni Grósku á Akranesi verður lokað á laugardaginn, en frá því var greint á Facebook síðu verslunarinnar. Grósku opnaði Kristjana Helga Ólafsdóttir í október 2015 og í síðasta mánuði setti hún verslunina á sölu. En eins og kom fram í 11. tölublaði Skessuhorns hefur Kristjana núna fundið sig betur í öðrum störfum. „Við þökkum ykkur…Lesa meira

true

Bensó er nafn á nýrri verslun í Stykkishólmi

Verslun Olís í Stykkishólmi var eins og kunnugt er lokað í mars og reksturinn seldur að kröfu Samkeppniseftirlitsins í kjölfar þess að Olís og Hagar runnu saman. Síðastliðinn laugardag var ný verslun opnuð í húsinu og nefnist hún því kunnuglega nafni Bensó. Eigandi Bensó er Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson en verslunarstjóri er Eva Guðbrandsdóttir sem jafnframt…Lesa meira

true

Styrkur veittur til úrvinnslu gagna um fornleifar á Gufuskálum

Við úthlutun styrkja í liðinni viku úr fornminjasjóði var Fornleifastofnun Íslands veittur 2,5 milljóna króna styrkur til skrásetningar heimilda sem fengust við uppgröft á Gufuskálum árin 2008-2015. Þessi ár veitti Minjastofnun undanþágu til rannsókna sökum aðstæðna. Engar rannsóknir hafa farið fram á hinni fornu verstöð á Gufuskálum eftir það en staðurinn er sem kunnugt er…Lesa meira

true

Starfsemi Norðanfisks á Akranesi öll undir eitt þak

Sú breyting varð á rekstri fiskvinnslu Norðanfisks á Akranesi í síðustu viku að vinnsla fyrirtækisins var öll færð undir sama þak að Vesturgötu 5. Samhliða því að loka starfsstöðinni sem verið hefur í gamla HB Granda húsinu við Bárugötu þá var sjö manns hjá fyrirtækinu sagt upp störfum. Starfsemin við Bárugötu fólst einkum í vöruþróun…Lesa meira

true

Skoða fullvinnsla afurða í Dölum

Á miðvikudag í liðinni viku var blásið til fundar í Árbliki í Dölum þar sem ræddir voru möguleikar á að koma upp aðstöðu í héraðinu til frekari fullvinnslu afurða. Það var Skúli Hreinn Guðbjörnsson, bóndi og formaður byggðaráðs Dalabyggðar, sem stóð fyrir fundinum. Hann var að vonum ánægður með góða aðsókn á fundinn. Þar héldu…Lesa meira

true

Samið til fjögurra ára í tímamótasamningum

Seint í gærkvöldi var skrifað undir nýja kjarasamning verslunar-, skrifstofu- og verkafólks í húsnæði Ríkissáttasemjara. Samningar þessir ná til á annað hundrað þúsunda starfsmanna á almennum vinnumarkaði og verða án efa stefnumarkandi fyrir þá samningsaðila sem eftir eiga að ná saman við samningaborðið. Það einkennir þessa samninga að stjórnvöld koma til móts við aðila vinnumarkaðarins…Lesa meira

true

Andlát – Ófeigur Gestsson

Ófeigur Gestsson lést að kvöldi 2. apríl síðastliðins á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi, 75 ára að aldri. Hann hafði um árabil glímt við hjartveiki. Ófeigur var fæddur í Reykjavík 12. október 1943, sonur Gests Jónssonar gjaldkera og Kristínar Jónsdóttur húsmóður. Á fyrri hluta starfsferils síns vann hann í rúma tvo áratugi sem frjótæknir hjá Búnaðarsambandi…Lesa meira

true

Skaginn 3X vinnur mál

Hæstiréttur sneri með dómi í síðustu viku við úrskurði Landsréttar frá 12. október 2018 þar sem fyrrum starfsmaður Skagans 3X krefur fyrirtækið um greiðslu vegna frítökuréttar vegna skerts hvíldartíma og fyrir skert réttindi til vikulegs frídags. Skaginn 3X var sýknaður af kröfu stefndanda í dómi Hæstaréttar og málskostnaður á öllum dómstigum felldur niður. Í dómi…Lesa meira