Fréttir

true

Afgangur af rekstri Hvalfjarðarsveitar

Rekstrarniðurstaða Hvalfjarðarsveitar var jákvæð um 74,9 milljónir á síðasta ári. Ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2018 var afgreiddur á fundi sveitarstjórnar 26. mars síðastliðinn. Tekjur A og B hluta sveitarsjóðs námu 838,8 milljónum króna á síðasta ári, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 830,9 milljónum. Rekstrargjöld samstæðunnar námu alls 781,3 milljónum króna. Veltufé frá rekstri…Lesa meira

true

Travel West Iceland bæklingur í lokavinnslu

Vinnsla á hinu árlega Ferðablaði Vesturlands; Travel West Iceland 2019-2020 er nú á lokametrunum fyrir prentun. Útgáfuþjónusta Skessuhorns gefur blaðið út, sem nú kemur út í 20. skipti, en í nánu samstarfi við Markaðsstofu Vesturlands. Bæklingurinn er í A5 broti, 116 síður og í honum er að finna upplýsingar um á þriðja hundrað þjónustuaðila á…Lesa meira

true

Lionsklúbbur Akraness færði sjúkrahúsinu gjafir

Í gærkvöldi hélt Lionsklúbbur Akraness árlegan afmælisfund sinn í fundasal Heilbrigðisstofnunar Vesturlands (HVE) við Merkigerði. Í lok fundar var sjúkrahúsinu afhentar gjafir, en klúbburinn er í hópi dyggra styrktaraðila HVE og hefur í gegnum tíðina fjármagnað kaup á fjölmörgum tækjum til lækninga og þjónustu við sjúklinga. Að þessu sinni var HVE fært tæki til gjörgæsluvöktunar…Lesa meira

true

Hótel Varmaland verður opnað í júní

Framkvæmdir hafa staðið yfir við Hótel Varmaland í vetur. Áætlað er að nýtt 61 herbergis hótel verði opnað þar 1. júní næstkomandi, eins og stefnt hefur verið að frá því í haust. Það var í september síðastliðnum sem þeir Þórir Garðarsson og Sigurdór Sigurðsson, oft kenndir við Allrahanda, festu kaup á hótelbyggingunni í gamla Húsmæðraskólanum…Lesa meira

true

Undirbúningur að sjötíu listamanna sýningu á Snæfellsnesi

Sýningin „Nr. 3 Umhverfing“ verður sett upp víðsvegar um Snæfellsnes næsta sumar og koma hvorki fleiri né færri en sjötíu listamenn að henni, þekktir sem minna þekktir. Sýningin verður formlega opnuð í Breiðabliki laugardaginn 22. júní og stendur til 31. ágúst. Um er að ræða myndlistarsýningu á verkum listamanna sem hafa á einhvern hátt tengingu…Lesa meira

true

Mokveiði fyrir hrygningarstopp

Sjómenn á Breiðafirði þurftu að hverfa frá mokfiskiríi þegar hrygningastopp hófst á mánudaginn. Stoppið á Vestursvæði, sem nær yfir nánast allan Breiðafjörðinn og innanverðan Faxaflóa, stendur til 21. apríl næstkomandi. Sumarliði Ásgeirsson, tíðindamaður Skessuhorns í Stykkishólmi, var um borð í Kap II VE-7, sem landaði þrisvar á Grundarfirði frá föstudegi til sunnudags. Hann segir skipverja…Lesa meira

true

Ekið á bíl í basli

Umferðaróhapp varð á Holtavörðuheiði síðastliðna nótt. Hringt var eftir aðstöð lögreglu vegna bifreiðar á norðurleið sem hafði fests í snjó og hálku í brekku. Fimm voru í bílnum. Ökumaður reyndi að losa bílinn og snúa við en á meðan var lögregla í sambandi við farþega bílsins símleiðis. Á meðan á þessu stendur heyrir lögreglumaður hróp…Lesa meira

true

Fyrirlestur í kvöld um klausturhald, konur og pólitík

Í kvöld, þriðjudaginn 2. apríl, flytur Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur fyrirlestur í Bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti um klausturhald, konur og pólitík. “Kristnitakan um árið 1000 fól í sér nýja stjórnskipan í landinu, byggðri á reglugerðum frá höfuðstöðvum kaþólsku kirkjunnar í Róm. Í fyrstunni gekk ágætlega að fylgja þeim eftir en eftir að Gregor páfi VII hóf…Lesa meira

true

Hálka og skafrenningur á heiðum

Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði og krapi og skafrenningur á Bröttubrekku. Víðast hvar annarsstaðar er snjóþekja, hálka eða hálkublettir á vegum, segir á bloggsíðu Vegagerðarinnar. Holtavörðuheiði er ekki lengur lokuð, en hún var  það um tíma í morgun vegna bíls sem farið hafði útaf.Lesa meira

true

Ringó er vaxandi íþróttagrein hjá eldra fólki

Sú hefð hefur skapast að þau lið sem æfa ringó á suðvesturhorni landsins hafa komið saman þrisvar yfir keppnisárið; á Hvolsvelli/HSK, í Mosfellsbæ/FaMos, Kópavogi/Glóðin og í Borgarnesi/UMSB. Hefur þessi hittingur eflt starfið og komið á góðum kynnum milli áðurnefndra liða. Nýverið mættust liðin í íþróttahúsinu í Borgarnesi og reyndu með sér. Til keppninnar mættu sjö…Lesa meira