Fréttir

true

Klúbbar á svæðinu standa fyrir golfmóti umhverfis Snæfellsnes

Eins og við sögðum frá í síðasta Skessuhorni fór Sveitakeppni Golfsambands Íslands fram helgina 24.-26. júní síðastliðinn. Í frétt Skessuhorns láðist að geta árangurs sveitar Golfklúbbsins Jökuls í Snæfellsbæ og er beðist velvirðingar á því. Klúbburinn keppti nú í fyrsta skipti í efstu deild karla ásamt sjö öðrum klúbbum. Keppt var á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík.…Lesa meira

true

Sumarmarkaður á Breiðabliki um helgina

Hinn árlegi Sumar-Sveitamarkaður verður haldinn í félagsheimilinu Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi um helgina, dagana 2.-3. júlí. Hefst hann klukkan 12 báða dagana og stendur til kl. 18. Framleiðendur eru frá býlum á sunnanverðu Snæfellsnesi, allt frá Hítará að Hellnum, eða hafa tengingu inn á svæðið. Á boðstólnum verður bæði matur og handverk. Matur eins…Lesa meira

true

Garðar skoraði þrennu í sigri Skagamanna

Í gærkvöldi lauk níundu umferð í Pepsi deild karla í knattspyrnu með leik ÍA og Stjörnunnar á Akranesvelli. Leikurinn var líflegur og lauk með 4 – 2 sigri Skagamanna þar sem Garðar Gunnlaugsson skoraði þrennu en þetta var fyrsta þrenna Skagamanna í efstu deild í 12 ár. Skagamenn lyftu sér upp fyrir KR í níunda…Lesa meira

true

Spá jafnvel þrumum og eldingum síðdegis

Síðdegis í dag búast veðurfræðingar við myndarlegum skúradembum á Suður- og Vesturlandi. Samhliða þeim verða þrumur og eldingar og jafnvel hagl. Í nótt og á morgun má búast við norðaustan- og norðan strekkingi sem getur staðbundið verið varasamt fyrir þau ökutæki sem viðkvæmust eru fyrir vindi.Lesa meira

true

Hostel brátt opnað í Munaðarnesi

Þeir Ragnar Jakob Kristinsson og Sigurður Karlsson tóku við rekstri á Munaðarnes Restaurant í fyrrasumar. Þar hafa þeir komið með ýmsar nýjungar, t.d. að bjóða upp á námskeiðsaðstöðu í sal veitingahússins en hann er einstaklega heppilegur fyrir slíkt. Nú stendur til að opna hostel í húsi fyrir aftan veitingastaðinn, þar sem áður var bar. „Það…Lesa meira

true

Setningu Írskra daga frestað til 14:30

Af óviðráðanlegum orsökum hefur setningu Írskra daga á Akranesi verið frestað frá klukkan 10:00 í dag til kl. 14:30. Athöfnin átti að fara fram á Kirkjubraut á móts við Gamla Kaupfélagið, en verður á Akrartorgi. Þar munu meðal annarra leikskólabörn koma saman og framkvæma gjörning í takt við hið heimsfræða “Hú!” á landsleikjum á EM.  Þá…Lesa meira

true

„Við veðjum bara á að veðrið verði gott“

„Það er ástæðulaust að breyta miklu þegar eitthvað hefur gengið vel, eins og hefur til dæmis sannast með landsliðið núna. Þjóðhátíð hefur líka verið eins í fjöldamörg ár,“ segir Hallgrímur Ólafsson, verkefnastjóri Írskra daga, í samtali við Skessuhorn þegar hann er spurður um fyrirkomulag bæjarhátíðarinnar í ár. Hann segist því litlu ætla að breyta og…Lesa meira

true

Borgfirðingur með stóru B-i og telur dreifbýlið sitja á hakanum

Birna Guðrún Konráðsdóttir á Borgum í Stafholtstungum hefur vermt formannssætið í Veiðifélagi Norðurár frá árinu 2009 og verið í stjórn félagsins frá 2005, þrátt fyrir að vera ekki mikil veiðikona sjálf. „Það er örugglega ágætt að ég sé ekki með veiðidellu. Þá væri ég eflaust alltaf að freistast til að komast í veiði sjálf og…Lesa meira

true

Uppáhalds minningar stuðningsmanna ÍA

Skagamenn eiga ríka og merkilega sögu í knattspyrnu. Þeir hafa unnið fjölda titla og skapað marga atvinnu- og landsliðsmenn. Stuðningsmenn Skagans eiga fjölmargar minningar af fallegum og tilfinningaríkum augnablikum. Í dag sendi Knattspyrnufélag ÍA frá sér myndband  sem ber yfirskriftina „Við erum ÍA“ þar sem stuðningsmenn rifja upp þeirra uppáhalds augnablik og leiki. Myndbandið er…Lesa meira

true

Tófan reyndist vera með tíu spörfuglsunga í kjaftinum

Guðmundur Sigvaldason refaskytta á Reykhólum sinnir grenjavinnslu á svæðinu frá Gilsfjarðarbotni að Klettshálsi á Barðaströnd. Nýverið skaut hann tófu sem var á leið heim í greni sitt. Í kjafti tófunnar voru hvorki fleiri né færri en tíu fuglsungar, aðallega skógarþrestir. „Ég hef aldrei séð tófu með svona marga unga, en hins vegar hef ég séð…Lesa meira