Fréttir

true

Strompurinn fallinn

Sementsstrompurinn á Akranesi var sprengdur kl. 14:16 í dag. Sprakk sprengihleðsla í um 25 metra hæð og eftir það féll efri helmingur strompsins til jarðar. Til stóð a fjórum sekúndum síðar myndi sprengja önnur hleðsla við rætur strompsins. Við fyrri sprenginguna féll hins vegar brak á vírana sem tengdir voru sprengihleðslunni við rætur strompsins og…Lesa meira

true

Opnunartími Guðlaugar lengdur

Bæjarráð Akraness samþykkti á síðasta fundi sínum að lengja opnunartíma Guðlaugar, heitrar laugar við Langasand. Lengdur opnunartími tók gildi þegar í stað. Guðlaug er nú öllum opin án endurgjalds miðvikudaga til föstudaga frá kl. 16:00 til 20:00, milli kl. 10:00 og 16:00 á laugardögum og frá 12:00 til 18:00 á sunnudögum. Þannig verður það á…Lesa meira

true

Strompurinn fellur – BEIN ÚTSENDING

Skessuhorn, í samstarfi við ÍATV, sýnir beint frá fellingu sementsstrompsins í Akranesi nú í hádeginu. Til stóð að fella strompinn kl. 12:15, en því hefur nú verið seinkað til kl. 14:00. Fyrst verður sprengt í um 25 metra hæð og um fjórum sekúndum síðar við rætur hans. Þar með lýkur rúmlega sex áratuga sögu sementsstrompsins…Lesa meira

true

Lækkað álverð dregur úr jákvæðri afkomu OR

Ársreikningur Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árið 2018 hefur verið samþykktur í stjórn. Rekstrartekjur námu tæpum 46 milljörðum króna og rekstrarkostnaður 17,3 milljörðum. Að teknu tilliti til afskrifta, skatta og reiknaðra stærða var nettóhagnaður samsteypunnar jákvæður um sex milljarða króna, sem er tíu milljörðum króna lakari afkoma en var árið 2017. Lægra álverð spilar þar mest inní.…Lesa meira

true

Móta reglur um snjalltækjanotkun í skólum Borgarbyggðar

Fulltrúar Framsóknarflokksins í sveitarstjórn Borgarbyggðar lögðu það til á fundi í síðustu viku að lögð verði áherslu á að skólar sveitarfélagsins eigi að vera sá vettvangur þar sem börn og unglingar eiga félagsleg samskipti sín á milli án truflana frá símtækjum. „Vísbendingar eru um að snjallsímtæki geti haft neikvæð áhrif á athygli, þroska og andlega…Lesa meira

true

Felling strompsins í beinni á vef Skessuhorns

Skessuhorn, í samstarfi við ÍATV, sýnir beint frá fellingu sementsstrompsins í Akranesi nú í hádeginu. Til stendur að fella strompinn kl. 12:15, eins og áður hefur verið greint frá. Klukkan 11:30 á eftir birtist hér á vefnum frétt og spilari þar sem hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu frá þessum merkisviðburði. Áætlað er að…Lesa meira

true

Glímdu vel á grunnskólamóti

Ungir og efnilegir glímukappar úr Dölum gerðu góða ferð á Grunnskólamót Glímusambands Íslands sem fram fór á Hvolsvelli um helgina. Í flokki 6. bekkjar stelpna stærri röðuðu Dalastelpur sér í þrjú efstu sætin. Jasmin Hall Valdimarsdóttir sigraði, Embla Dís Björgvinsdóttir varð önnur og Kristín Ólína Guðbjartsdóttir hafnaði í þriðja sæti. Jóhanna Vigdís Pálmadóttir sigraði í…Lesa meira

true

Formannsskipti hjá RKÍ á Akranesi og Hvalfjarðarsveit

Rauði krossinn á Akranesi og Hvalfjarðarsveit hélt aðalfund sinn 18. febrúar síðastliðinn. Á fundinum var Ursula Árnadóttir kosin formaður en Alda Vilhjálmsdóttir sem gegnt hefur formennsku um áraraðir gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Tilgangur Rauða krossins er að vernda líf og heilsu og tryggja virðingu fyrir mannlegu lífi, vinna að gagnkvæmum skilningi, vináttu…Lesa meira

true

Dansnámskeið til styrktar verkefninu Sýnum karakter

Framundan er fjögurra vikna dansnámskeið á Hvanneyri og í Borgarnesi. Námskeiðið er hluti af styrktarátaki fyrir sjálfsstyrkingu og bætta félagsfærni barna og unglinga innan Ungmennasambands Borgarfjarðar. Námskeiðið er haldið af Aldísi Örnu Tryggvadóttur og mun allir ágóði þess renna til verkefnisins Sýnum karakter, sem UMSB er að innleiða í samvinnu við UMFÍ um þessar mundir.…Lesa meira

true

Nöfn fermingarbarna má ekki birta án upplýsts samþykkis

Á hverju ári fyrir fyrstu fermingarathafnir hefur Skessuhorn birt lista yfir nöfn væntanlegra fermingarbarna í landshlutanum. Samkvæmt persónuverndarlögum sem tóku gildi síðasta sumar er óheimilt að birta nöfn fermingarbarnanna án skriflegs leyfis foreldris. Ekki hefur náðst að fá undirskriftir allra foreldra og hefur ritstjórn því ákeðið að birta ekki nöfn fermingarbarna á Vesturlandi að þessu…Lesa meira