Fréttir

true

Stefnan að fella strompinn á hádegi á fimmtudag

Stefnt er að því að fella sementsstrompinn á Akranesi á hádegi á fimmtudag, 21. mars kl. 12:15. Miðast það við að framvinda við undirbúning gangi eftir. Ef undirbúningurinn gengur ekki eftir eins og áætlað er, þá verður fellingu strompsins frestað. Ný dagsetning verður þá auglýst á heimasíðu Akraneskaupstaðar með sólarhrings fyrirvara. Strompurinn verður sprengdur í…Lesa meira

true

Marshallaðstoð til umfjöllunar í kvöld í Snorrastofu

Í kvöld, þriðjudaginn 19. mars, flytur Sigrún Elíasdóttir sagnfræðingur frá Ferjubakka, fyrirlestur um aðstoð Bandaríkjastjórnar við Íslendinga eftir síðari heimsstyrjöldina, kennda við þáverandi utanríkisráðherra þeirra, George Marshall. Í fyrirlestrinum verður leitað svara við því, hver hugmyndafræðin var á bakvið aðstoðina, hvernig fjármagn hennar var nýtt og hver aðkoma okkar ráðamanna var að ákvörðunum í þeim efnum. Þá verður einnig skoðað hver framtíð landsins hefði orðið án þessa erlenda fjármagns. Sigrún Elíasdóttir er Borgfirðingur, með MA gráðu í sagnfræði og…Lesa meira

true

Stöðvaður á ofsaakstri við Gufuá

Ungur ökumaður var tekinn við ofsaakstur á Vesturlandsvegi við Gufuá í Borgarhreppi um kaffileytið á laugardaginn. Maðurinn var mældur á hvorki meira né minna en 172 km/klst. hraða, en hámarkshraði á veginum er 90 km/klst. Ökumaðurinn viðurkenndi brot sitt. Að sögn lögreglu á maðurinn yfir höfði sér ökuleyfissviptingu og 240 þúsund krónur í sekt. „Ökumaður…Lesa meira

true

Nýtt olíuflutningaskip á ferðinni

Keilir, nýjasta skip Olíudreifingar, kom í fyrsta skipti til hafnar í Ólafsvík í síðustu viku. Keilir kom til landsins 13. febrúar síðastliðinn frá Tyrklandi þar sem skipið var smíðað. Keilir er 49 metra langur, búinn átta farmgeymum og getur flutt allar tegundir af eldsneyti sem í boði eru hérlendis. Dælugeta þess er þrefalt meiri en…Lesa meira

true

Sníða af vankanta áður en aðalskipulagstillaga verður kynnt

Skipulagsstofnun gaf Reykhólahreppi fyrr í mánuðinum umsögn um tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Vestfjarðavegar. Stofnunin hefur það lögboðna hlutverk að yfirfara framsetningu og efni aðalskipulagstillagna sveitarfélaga áður en þær eru auglýstar til opinberrar kynningar fyrir almenningi. Tilgangur þess er að tryggja að framsetning skipulagstillagna sé skýr og að efni þeirra og framsetning sé…Lesa meira

true

Borgfirðingar gestrisnir í einmenningnum

Það var létt og skemmtileg stemning í árlegri keppni Bridgefélags Borgarfjarðar í einmenningi, sem spiluð var í gærkveldi. Spilað var á sjö borðum og meðal þátttakenda voru ungir spilarar sem í vetur hafa tekið þátt í ungliðabridds, kennslu undir leiðsögn Ingimundar Jónssonar. Jafnt var í efstu sætum á mótinu utan þess sem forysta Magnúsar Magnússonar…Lesa meira

true

Í fyrsta skipti sem mótframboð berst gegn tillögu trúnaðarráðs í StéttVest

Dagana 1. til 5. apríl næstkomandi fer fram kosning um þrjú trúnarstörf í stjórn Stéttarfélags Vesturlands, þ.e. formann, ritara og fyrsta meðstjórnanda. Samkvæmt 20. grein laga félagsins er skylt að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við kjör stjórnar þegar mótframboð berst. Er þetta í fyrsta skipti frá stofnun félagsins árið 2006 sem mótframboð kemur fram við tillögu sem…Lesa meira

true

TF-EIR er ný leiguþyrla Landhelgisgæslunna

Síðastliðinn föstudag kom ný leiguþyrla Landhelgisgæslunnar til landsins. Ber hún nafnið TF-EIR. „Vélin færir Landhelgisgæsluna fyrr inn í nútímann en ráðgert var en hún er önnur tveggja véla af gerðinni Airbus H225 sem leysa leiguþyrlurnar TF-GNA og TF-SYN af hólmi. Seinni leiguþyrlan kemur til landsins á næstu vikum en hún ber einkennisstafina TF-GRO,“ segir í…Lesa meira

true

Gott ástand friðlýstra áfangastaða

Umhverfisstofnun kynnti nýverið ástandsmat áfangastaða innan friðlýstra svæða á árinu 2018. Þar er fjallað um ástand þekktra áfangastaða víða um land, sem eiga það sammerkt að vera undir álagi vegna gestasóknar. Notað er litakerfi í skýrslunni. Þeir áfangastaðir sem fá heildareinkunn lægri en 5 eru rauðir og teljast í verulegri hættu hvað varðar verndargildi staðanna.…Lesa meira

true

Samningur um gagnkvæmar veiðar Íslands og Færeyja

Kristján Þór Júlíusson og Högni Hoydal, sjávarútvegsráðherrar Íslands og Færeyja, hafa náð samkomulagi um fiskveiðisamning á milli Íslands og Færeyja. Samningurinn felur í sér endurnýjun á samningi frá 2018 sem veitir Íslandi aðgang að lögsögu Færeyja til að veiða kolmunna og norsk-íslenska síld og samhliða fá Færeyjar aðgang að lögsögu Íslands fyrir sömu tegundir. Ísland…Lesa meira