Fréttir

true

Sníða af vankanta áður en aðalskipulagstillaga verður kynnt

Skipulagsstofnun gaf Reykhólahreppi fyrr í mánuðinum umsögn um tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Vestfjarðavegar. Stofnunin hefur það lögboðna hlutverk að yfirfara framsetningu og efni aðalskipulagstillagna sveitarfélaga áður en þær eru auglýstar til opinberrar kynningar fyrir almenningi. Tilgangur þess er að tryggja að framsetning skipulagstillagna sé skýr og að efni þeirra og framsetning sé…Lesa meira

true

Borgfirðingar gestrisnir í einmenningnum

Það var létt og skemmtileg stemning í árlegri keppni Bridgefélags Borgarfjarðar í einmenningi, sem spiluð var í gærkveldi. Spilað var á sjö borðum og meðal þátttakenda voru ungir spilarar sem í vetur hafa tekið þátt í ungliðabridds, kennslu undir leiðsögn Ingimundar Jónssonar. Jafnt var í efstu sætum á mótinu utan þess sem forysta Magnúsar Magnússonar…Lesa meira

true

Í fyrsta skipti sem mótframboð berst gegn tillögu trúnaðarráðs í StéttVest

Dagana 1. til 5. apríl næstkomandi fer fram kosning um þrjú trúnarstörf í stjórn Stéttarfélags Vesturlands, þ.e. formann, ritara og fyrsta meðstjórnanda. Samkvæmt 20. grein laga félagsins er skylt að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við kjör stjórnar þegar mótframboð berst. Er þetta í fyrsta skipti frá stofnun félagsins árið 2006 sem mótframboð kemur fram við tillögu sem…Lesa meira

true

TF-EIR er ný leiguþyrla Landhelgisgæslunna

Síðastliðinn föstudag kom ný leiguþyrla Landhelgisgæslunnar til landsins. Ber hún nafnið TF-EIR. „Vélin færir Landhelgisgæsluna fyrr inn í nútímann en ráðgert var en hún er önnur tveggja véla af gerðinni Airbus H225 sem leysa leiguþyrlurnar TF-GNA og TF-SYN af hólmi. Seinni leiguþyrlan kemur til landsins á næstu vikum en hún ber einkennisstafina TF-GRO,“ segir í…Lesa meira

true

Gott ástand friðlýstra áfangastaða

Umhverfisstofnun kynnti nýverið ástandsmat áfangastaða innan friðlýstra svæða á árinu 2018. Þar er fjallað um ástand þekktra áfangastaða víða um land, sem eiga það sammerkt að vera undir álagi vegna gestasóknar. Notað er litakerfi í skýrslunni. Þeir áfangastaðir sem fá heildareinkunn lægri en 5 eru rauðir og teljast í verulegri hættu hvað varðar verndargildi staðanna.…Lesa meira

true

Samningur um gagnkvæmar veiðar Íslands og Færeyja

Kristján Þór Júlíusson og Högni Hoydal, sjávarútvegsráðherrar Íslands og Færeyja, hafa náð samkomulagi um fiskveiðisamning á milli Íslands og Færeyja. Samningurinn felur í sér endurnýjun á samningi frá 2018 sem veitir Íslandi aðgang að lögsögu Færeyja til að veiða kolmunna og norsk-íslenska síld og samhliða fá Færeyjar aðgang að lögsögu Íslands fyrir sömu tegundir. Ísland…Lesa meira

true

Landsmenn hlynntir því að lægst launuðu fái meiri kjarabót en aðrir

Ný skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir Alþýðusamband Íslands sýnir að 83% Íslendinga eru hlynntir því að launafólk með heildartekjur undir 500 þús. kr. á mánuði fyrir skatt, fái meiri skattalækkun en aðrir. Athygli vekur að stuðningur við slíka skattkerfisbreytingu er mikill í öllum aldurs- og tekjuhópum þó vissulega sé hann mestur hjá þeim tekjulægstu. „Þessi…Lesa meira

true

Snæfellingar heiðraðir á héraðsþingi HSH

Héraðsþing Héraðssambands Snæfellsness og Hnappadalssýslu var haldið í Stykkishólmi á fimmtudag. Þar voru meðal annars veittar viðurkenningar fyrir starf í þágu íþróttahreyfingarinnar. Það voru þau Ríkharður Hrafnkelsson, Gunnar Svanlaugsson, María Alma Valdimarsdóttir og Davíð Sveinsson sem voru heiðruð fyrir sitt framlag. Jóhann Steinar Ingimundarson, stjórnarmaður UMFÍ, afhenti starfsmerki UMFÍ og Garðar Svansson, stjórnarmaður ÍSÍ, afhenti…Lesa meira

true

Vilja að umferðaröryggi verði bætt á nokkrum stöðum í Borgarbyggð

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var í ályktun tekið undir ályktanir umhverfis,- skipulags- og landbúnaðarnefndar er varðar umferðaröryggi og úrbætur í umferðaröryggismálum. Því er beint til Vegagerðarinnar að vinna að úrbótum til að auka megi umferðaröryggi. „Brýnt er að hefja vinnu við hönnun á göngu- og hjólreiðastíg um Borgarfjarðarbrú þannig að framkvæmdir við það…Lesa meira

true

Þurfa á sigri að halda

Skagamenn þurfa að sigra í lokaleik 2. deildar karla og treysta á hagstæð úrslit í öðrum leikjum til að komast í úrslitakeppni deildarinnar. Þeir léku tvisvar í vikunni og töpuðu báðum leikjunum. Fyrst máttu þeir játa sig sigraða gegn Leikni R. á Akranesi 108-118 þegar liðin mættust á þriðjudag. Skagamenn léku svo aftur á sunnudaginn…Lesa meira