Fréttir

true

Samið við fyrirliðann og fjóra aðra leikmenn

Það hefur verið töluvert um að vera í leikmannamálum Víkings Ó. undanfarið, en nýverið samdi Ólafsvíkurliðið við fjóra leikmenn. Ber þar fyrst að nefna að fyrirliðinn Emir Dokara hefur gert nýjan samning við liðið út keppnistímabilið 2019. Emir leikur í vörninni og hefur verið á mála hjá Víkingi Ó. frá árinu 2011. Fyrirliðinn er jafnframt…Lesa meira

true

Tími til útivistar þegar sjónvarp og samskiptamiðlar spila ekki aðalhlutverk

„Útivistin hefur alltaf fylgt mér. Þegar ég er úti í náttúrunni og sérstaklega uppi á fjöllum er allt eitthvað svo einfalt og skýrt og það heillar mig,“ segir Skagakonan Belinda Eir Engilbertsdóttir þegar Skessuhorn heimsótti hana á í byrjun vikunnar. Við settumst niður og ræddum um útivistina, vinnuna, áhugamálin og lífið en Belinda og eiginmaður…Lesa meira

true

Útilífsnámskeið haldin á Vesturlandi næstu daga

Þær Anna Lind Björnsdóttir og Pálína Ósk Hraundal ætla að bjóða upp á útilífsnámskeið fyrir leikskólakennara og foreldra á Vesturlandi á næstu dögum. „Útivera er mikilvæg og með námskeiðinu viljum við hvetja kennara til meiri útiveru og útikennslu í daglegu starfi. Okkar áherslur eru einnig að hvetja foreldra og börn til meiri útiveru í daglegu…Lesa meira

true

Velti bíl undir áhrifum

Umferðaróhapp varð á Stangarholtsvegi við Þórdísarbyggð, skammt vestan við Borgarnes á mánudaginn. Par var þar á ferðinni, bílnum var ekið útaf þar sem hann valt ofan í skurð. Lögregla og sjúkralið voru send á staðinn en enginn slys urðu á fólki. Ökumaðurinn var hins vegar grunaður um að hafa verið í annarlegu ástandi. Hann viðurkenndi…Lesa meira

true

Nýuppteknar kartöflur í byrjun mars

Jafnan þegar komið er fram á þennan árstíma eru íslensku kartöflurnar aðeins farnar að tapa bragðgæðum. Þó ekki þessar á meðfylgjandi mynd. Jón Valgeir Viggósson á Bekansstöðum í Hvalfjarðarsveit ræktar kartöflur í garði skammt frá bænum. Af rælni datt Jóni í hug að stinga gaffli niður í garðinn um liðna helgi og viti menn; upp…Lesa meira

true

Breytingar og viðbygging Vínlandsseturs í útboð

Dalabyggð hefur auglýst útboð vegna fyrsta áfanga breytinga og viðbyggingu Vínlandsseturs í Búðardal. Verkinu er skipt í tvennt. Annars vegar skal færa núverandi stiga og gera stokk fyrir lyftu, gera nýjan stiga og styrkja milligólf með stálbitum og súlum, rífa inniveggi, byggja nýtt gólf ofan á steingólf, setja upp milliveggi og hurðir og smíða og…Lesa meira

true

Uppfært: Hvalfjarðargöngin lokuð um óákveðinn tíma

Vegfarandi um Vesturlandsveg var að láta ritstjórn Skessuhorns vita af því að Hvalfjarðargöngin eru lokuð núna. Hafa myndast bílaraðir beggja vegna ganga. Ástæðan er að sögn Vegagerðarinnar bilað ökutæki í göngunum. UPPFÆRT KL. 10:21. Opnað hefur verið að nýju fyrir umferð um göngin, samkvæmt tilkynningu frá vegfaranda.Lesa meira

true

Þurfa starfsleyfi til aukinnar urðunar

Næstkomandi þriðjudagsköld klukkan 20:30 fer fram upplýsingafundur í félagsheimilinu Lyngbrekku á Mýrum sem Sorpurðun Vesturlands boðar til. Tilefni fundarins er að kynna drög að matsáætlun fyrir sorpurðunina en það var Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur sem vann hana. Sækja þarf um aukna heimild til urðunar í ljósi þess að á síðasta ári fór sorpurðun í Fíflholtum framyfir…Lesa meira

true

Keppt í gæðingafimi í kvöld

Þriðja mótið í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum fer fram í Faxaborg í Borgarnesi í kvöld. Húsið verður opnað klukkan 19 en fyrsti hestur í braut kemur þar á slaginu klukkan 20. Keppendur eru 21 og verður síðust í braut Randi Holaker á Þyt frá Skáney sem eiga titil að verja frá því í fyrra. Aðgangseyrir er…Lesa meira

true

Saurbæjarprestakall lagt niður og víðar gerðar breytingar

Kirkjuþing samþykkti um síðustu helgi að leggja niður Saurbæjarprestakall í Vesturlandsprófastsdæmi. Breytingunni fylgir að framvegis eigi að vera þrír prestar í Garðaprestakalli á Akranesi. Eins og áður hefur verið rakið í Skessuhorni er meginástæða þess að prestakallið í Saurbæ er lagt niður kostnaður við viðgerðir á prestsbústaðnum. Nýverið var Hitaveitufélagi Hvalfjarðar og Kirkjumálasjóði gert að…Lesa meira