Fréttir

true

Sauðfjárbændur samþykktu endurskoðun á samningi

Kosningu sauðfjárbænda um endurskoðun á samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktarinnar lauk í gær. Kosningin var rafræn og tóku 45% bænda þátt; 1.035 greiddu atkvæði af 2.297 sem voru á kjörskrá. Þrátt fyrir andstöðu í röðum bænda við væntanlegar breytingar var mikill meirihluti sem samþykkti endurskoðun samningsins, eða rúmlega 68%. Um 30% höfnuðu samkomulaginu og rúmlega eitt…Lesa meira

true

Fengu hákarl á línuna

Áhöfnin á Lilju SH frá Rifi fékk hákarl á línuna á dögunum. Hákarlinn var þriggja metra langur og vóg um 300 kíló. Áttu þeir eftir að draga töluvert af línunni þegar hákarlinn kom upp og brugðu þeir því á það ráð að binda hann við bátinn þar sem þeir gátu ekki dregið hann um borð.…Lesa meira

true

Æskan á millistríðsárunum – ný sýning á Sarpi

Þessa dagana standa nokkur söfn landsins í sameiningu að vefsýningunni Æskan á millistríðsárunum. Þrjú söfn á Vesturlandi koma að sýningunni; Safnahús Borgarfjarðar, Norska húsið – Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla og Byggðasafn Akraness og nærsveita. Auk þeirra safna standa að sýningunni Þjóðminjasafn Íslands, Síldarminjasafn Íslands, Minjasafnið Bustarfelli, Minjasafn Austurlands, Listasafn Íslands, Listasafn Árnesinga, Heimilisiðnaðarsafnið, Byggðasafnið Reykjum,…Lesa meira

true

Sirkus Íslands á ferð um Vesturland

Sirkus Íslands lagði land undir fót um síðustu helgi með nýja sýningu sem þeir nefna Bæjarsirkusinn. Sýnt var í Hjálmakletti í Borgarnesi á laugardaginn og félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík daginn eftir. Aðsókn var góð á báðar sýningar en þó voru mun fleiri gestir á sýningunni í Ólafsvík þar sem um 150 manns á öllum aldri…Lesa meira

true

Landsmót barna- og unglingakóra á Akranesi um miðjan mánuðinn

Helgina 15. – 17. mars verður Landsmót barna- og unglingakóra haldið í Grundaskóla á Akranesi. Mót eins og þessi eru haldin annað hvert ár á mismunandi stöðum á landinu og nú er komið að Akranesi. Það er eldri hópur Skólakórs Grundaskóla sem er gestgjafakór í ár og stjórnandi kórsins, Valgerður Jónsdóttir, heldur utan um skipulag…Lesa meira

true

Björgun tekur að sér lengingu Norðurgarðs í Grundarfjarðarhöfn

Í dag var skrifað undir samning við Björgun ehf. um framkvæmdir við fyrsta áfanga við lengingu Norðurgarðs Grundarfjarðarhafnar. Þetta kemur fram í frétt á Facebook síðu bæjarfélagsins. „Áfanginn felst í dælingu púða undir 130 m lengingu garðsins, en verkið var boðið út í janúar síðastliðnum. Í Grundarfirði eru hafnarskilyrði afar góð og tækifæri til að…Lesa meira

true

Alda Karen hélt fyrirlestur í FSN

Alda Karen Hjaltalín fyrirlesari kom og hélt fyrirlestur í sal Fjölbrautaskóla Snæfellinga í dag. Alda Karen er þekkt fyrir fyrirlestra sína en þessi unga kona hefur talað fyrir fullu húsi í Hörpu og Laugardalshöll nýverið. Tíundabekkjar nemendum af Snæfellsnesi var einnig boðið á fyrirlesturinn með Öldu Karen og var þétt setið í salnum. Alda Karen…Lesa meira

true

Búist við fjölmennum fundi í kvöld

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur í kvöld boðað til fundar með vestlenskum bændum á Hótel Hamri í Borgarnesi. Tilefnið er frumvarp sem hann hefur lagt fram og hægt er að lesa á samráðsgátt stjórnvalda. Snýst frumvarpið um innflutning á m.a. ófrystu kjöti. Með frumvarpinu telur ráðherra sig vera að bregðast við dómum Hæstaréttar…Lesa meira

true

Milljónir í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar

Íslenska ríkið var í Landsrétti á föstudag dæmt til að greiða manni samtals fjórar og hálfa milljón króna í bætur vegna fjártjóns sem hann varð fyrir í kjölfar ólögmætrar uppsagnar úr starfi aðstoðarskólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Héraðsdómur hafði áður fallist á að ákvæði ráðningarsamnings um eins mánaðar uppsagnarfrest á reynslutíma ætti ekki við um…Lesa meira

true

Berghlaupið í Hítardal fær nafnið Skriðan

Hið mikla berghlaup sem gekk fram úr Fagraskógarfjalli í Hítardal 7. júlí síðasta sumar á að fá nafnið Skriðan. Örnefnanefnd hefur fjallað um og veitt umsögn sína um skriðuna. Áður hafði nefndin samþykkt að vatnið sem myndaðist við ofanvert framhlaupið, þar sem það stíflaði Hítará, fengi nafnið Bakkavatn. Í bréfi Örnefnanefndar til Borgarbyggðar segir að…Lesa meira