Fréttir

true

Enn sigrar Víkingur á heimavelli

Í gærkvöldi mættust lið Víkings Ó. og Þróttar í níundu umferð Pepsi deildar karla. Leikurinn var fjörugur og fimm mörk voru skoruð. Fyrir leikinn var Víkingur í fimmta sæti með 14 stig en Þróttar í næst-neðsta með sjö stig. Víkingur vann gríðarlega sterkan sigur á Þrótti 3 – 2 þrátt fyrir að hafa lent tveimur…Lesa meira

true

Sá stóri sannarlega til staðar í Laxá í Leir

Veiðin hefur verið þokkaleg í Laxá í Leirársveit það sem af er veiðitímabilinu. Fiskurinn er vænn sem hefur verið að fást. En baráttan getur verið löng við spræka laxa eins og sannaðist nýlega í Miðfellsfljótinu. Skúli Valberg Ólafsson og Ragnar Þórisson voru þá við veiðar og settu í 93 cm hæng. Tók hann lítinn Sun Ray…Lesa meira

true

Sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs hættir

Jón Hrói Finnsson hefur sagt starfi sínu lausu sem sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs hjá Akraneskaupstað. Í uppsagnarbréfi sínu 22. júní síðastliðinn kemur fram að honum hafi verið borðið starf sem framkvæmdastjóri Búsetudeildar Akureyrarkaupstaðar og hafi hann þáð starfið. „Ástæður þess sem ég hugsa mér til hreyfings eru af persónulegum toga og ég vil þakka samstarfsfólki…Lesa meira

true

Á annað þúsund hraðakstursbrot á landinu á einni viku

Óvenju mörg hraðakstursbrot komu upp hjá Lögreglunni á Vesturlandi í liðinni viku. Frá því á mánudag í síðustu viku voru 1.310 hraðakstursbrot skráð á landinu, sem er liðlega helmingi meira en venjulegt er. Fimm lítilsháttar umferðaróhöpp urðu í umdæminu í vikunni og var einn þeirra sem lenti í óhappi á Snæfellsnesi grunaður um ölvun við…Lesa meira

true

Símon er nýr leigutaki Vatnasvæðis Lýsu á Snæfellsnesi

„Ég hef tekið Vatnasvæði Lýsu á leigu í sumar, allt svæðið. Nú má veiða alveg niður í ós,“ segir Símon Sigurmonsson í Görðum, nýr leigutaki svæðisins. Fram að þessu hafa hinir og þessir haft svæðið á leigu undanfarin ár. Má þar nefna Laxá og Stangaveiðifélag Reykjavíkur. Einkaaðilar voru auk þess með neðsta svæðið en það…Lesa meira

true

Segja áform um sjókvíaeldi ógna óspilltum stofnum villtra laxa

Aðalfundur Landssambands veiðifélaga var haldinn á Bifröst fyrr í þessum mánuði. Fundurinn samþykkti að lýsa yfir þungum áhyggjum af og mótmæla stórfelldum áformum erlendra og innlendra fjárfesta um eldi á norskum laxi í sjókvíum hér við land. „Aðalfundurinn telur að þessi áform stefni óspilltum stofnum villtra laxa í voða og séu í raun aðför að…Lesa meira

true

Landsleikurinn sýndur á risaskjá í Garðalundi

Írskir dagar fara fram á Akranesi um helgina, en dagskráin hefst á morgun. Mikið verður um að vera en dagskránni í ár lýkur með fremur óhefðbundnum hætti. Íslenska landsliðið í knattspyrnu leikur við Frakkland í 8 – liða úrslitum Evrópumótsins á sunnudaginn klukkan 19:00. Leikurinn verður sýndur á risaskjá í Garðalundi og verður stemningin líklega ekki…Lesa meira

true

Þjóðbúningahátíðin Skotthúfan í Stykkishólmi um næstu helgi

Þjóðbúningahátíð verður haldin í tólfta skipti í Stykkishólmi dagana 1.-3. júlí nk. Það var Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla, Norska húsið í Stykkishólmi, sem bryddaði upp á þeirri nýjung fyrir ellefu árum að hvetja fólk sem átti í fórum sínum þjóðbúning, að klæða sig upp og þiggja kaffi og pönnukökur í Norska húsinu. Skapaðist strax góð…Lesa meira

true

Íslandsmót yngri flokka í hestaíþróttum haldið í Borgarnesi

Hestamannafélagið Skuggi heldur Íslandsmót yngri flokka í Borgarnesi dagana 14. – 17. júlí n.k. Svanhildur Svansdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri mótsins. „Mótsnefnd mun kappkosta að mótið verði hið glæsilegasta og fari fram við bestu aðstæður sem svæðið býður upp á. Boðið verður upp á hesthúspláss og hey og einnig verður seldur spænir á svæðinu. Tjaldsvæði…Lesa meira

true

Húsbílum lagt ólöglega í Borgarnesi

Vegfarendur í Borgarnesi ráku upp stór augu síðastliðinn laugardag þegar sextán húsbílum var lagt í Brákarey. Samkvæmt lögreglusamþykkt sem er í gildi fyrir Borgarbyggð má ekki gista í tjöldum, húsbílum, hjólhýsum eða tjaldvögnum á almannafæri utan sérmerktra svæða. Ekki eru sérmerkt stæði fyrir húsbíla í Borgarnesi en þeim má leggja á tjaldsvæði bæjarins í Granastaðalandi.…Lesa meira