Fréttir

true

Gerir piparkökuhús af mikilli nákvæmni

Valdís Einarsdóttir á Akranesi er sannkölluð listakona en hún hefur í ríflega þrjá áratugi hannað og búið til piparkökuhús sem eru ekkert í líkingu við þau hefðbundnu piparkökuhús sem sjá má á mörgum heimilum í desember. Valdís hafði um árabil fyrir jólin keppt í piparkökuhúsasamkeppni Kötlu og margoft lent í verðlaunasæti. Eftir að hafa sigrað…Lesa meira

true

Húsbíll fauk út af í hávaðaroki

Ótrúlegt umferðaróhapp varð um áttaleytið á föstudagskvöld. Þá fauk húsbíll út af Vesturlandsvegi við Skipanes í Hvalfjarðarsveit. Virðist sem vindhviða hafi feykt bílnum út af veginum og yfir skurð þar sem bíllinn staðnæmdist. Í dagbók lögreglu er bókað sérstaklega að mjög slæmt veður hafi verið á svæðinu þegar óhappið varð. Til marks um það var…Lesa meira

true

„Algjör kúvending að flytja heim til Íslands og gerast hrossabóndi“

Einar Ólafsson keypti Söðulsholt á Snæfellsnesi árið 1998 og fluttist þangað alfarið skömmu eftir aldamótin. Hann var þá búinn að vinna erlendis á fjórða áratug og langaði að flytja heim til Íslands. Eftir heimkomuna endurnýjaði hann kynnin af hestamennskunni, sem hafði blundað í honum allt frá barnsaldri en ekki fengið að njóta sín að ráði…Lesa meira

true

Skýrslan Áfangastaðaáætlun Vesturlands er komin út

Í síðustu viku var Skarphéðni Berg Steinarssyni ferðamálastjóra afhent eintak af nýrri áfangastaðaáætlun fyrir Vesturland, skýrslu sem unnin var af Markaðsstofu Vesturlands fyrir Ferðamálastofu. Skýrslan er talsvert mikil að vöxtum en í henni er safnað saman fjölmörgum hagnýtum upplýsingum um sitthvað sem snertir áfangastaðinn Vesturland. Skýrslunni er ætlað að stuðla að ábyrgri þróun ferðamála á…Lesa meira

true

Kynningarfundir á þremur stöðum í dag vegna “Betri rekstur”

Í dag fara fram þrír kynningarfundir um verkefnið Betri rekstur – bætt afkoma, sem Samtök sveitarfélga á Vesturlandi stendur fyrir. Þar býðst starfandi fyrirtækjum á Vesturlandi aðstoð við að meta hvar tækifæri þeirra liggja til að bæra árangur sinn í rekstrinum. „Starfandi fyrirtæki eru burðarás verðmætasköpunar í samfélaginu. Það skiptir því miklu máli að þau…Lesa meira

true

Lífleg fasteignaviðskipti í janúar

Á Vesturlandi var 42 samningum um húsnæði þinglýst í janúar. Þar af voru 15 samningar um eignir í fjölbýli, 14 samningar um eignir í sérbýli og 13 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 1.281 milljón króna í þessum viðskiptum og meðalupphæð á samning 30,5 milljónir króna. Af þessum 42 voru 24 samningar um eignir…Lesa meira

true

Útskrift frá Bifröst á laugardaginn

Laugardaginn 23. febrúar næstkomandi kl. 13:00 verður brautskráning frá Háskólanum á Bifröst. Alls munu um 80 nemendur útskrifast úr grunnnámi og meistaranámi ásamt Háskólagátt og símenntun. Vilhjálmur Egilsson rektor skólans mun útskrifa nemendur ásamt sviðsstjórum. Tónlistaratriði í athöfninni verða í höndum Karlakórsins Söngbræðra ásamt undirleikurum. Boðið verður upp á móttöku að athöfn lokinni. -fréttatilkynningLesa meira

true

Sýna samstöðu með þolendum kynbundins ofbeldis

Dansbyltingin Milljarður rís fer fram í íþróttahúsinu í Grundarfirði á morgun, fimmtudaginn 14. febrúar, klukkan 12.15-13.00. „Þetta er í sjöunda sinn sem viðburðurinn er haldinn hér á landi og fólk kemur saman og dansar fyrir heimi þar sem allir, óháð kyni og kynhneigð, fá að njóta sömu tækifæra án ótta við ofbeldi. Það er óhugnanleg…Lesa meira

true

Fjármálaráðherra kallar eftir skýringum stjórna fyrirtækja í ríkiseigu

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sendi í dag stjórnum fyrirtækja í ríkiseigu bréf þar sem þess er óskað að þær upplýsi ráðuneytið um það hvernig brugðist hefur verið við tilmælum ráðuneytisins, sem send voru stofnunum í janúar 2017 og síðar ítrekuð, um að gæta varkárni við launaákvarðanir. Bréfið var einnig sent til Bankasýslu ríkisins sem…Lesa meira