Fréttir

true

Vegurinn um Húsafellsskóg lagfærður til muna

Þessa dagana vinna starfsmenn Borgarverks að breikkun vegarins í gegnum Húsafellsskóg, frá þjóðnustumiðstöðinni og upp að Hvítá. Vegurinn var mjór og víða í kröppum beygjum og því víða blindhorn á honum og erfitt fyrir stóra bíla að mætast. Þá náði birkikjarr víða að blinda sýn ökumanna. Fjölmargar hríslur voru færðar af þeim sökum. Mikil og…Lesa meira

true

Landsmót hestamanna hafið á Hólum

Landsmót hestamanna hófst í dag á Hólum í Hjaltadal. Keppni hófst á B-flokki gæðinga og í kjölfarið og næstu daga fylgir hver viðburðurinn á fætur öðrum. Hámarki nær mótið á laugardaginn þegar öll úrslit verða. Á sunnudeginum verða þó ýmsir hestatengdir viðburðir í gangi en mótinu lýkur síðar þann dag. Mótshaldarar búast við allt að…Lesa meira

true

Snæfellsjökulshlaup við erfiðar aðstæður

Sjötta Snæfellsneshlaupið fór fram á laugardaginn. Líkt og áður var hlaupið ræst frá Arnarbæ á Arnarstapa, hlaupið yfir Jökulháls og endað í Ólafsvík. Alls eru hlaupnir um 22 kílómetrar við misjafnar aðstæður, að sögn Fannars Baldursson sem sér um hlaupið ásamt konu sinni Rán Kristinsdóttur. Fannar sagði að aðstæður hafi veirð erfiðar á Jökulhálsinum en…Lesa meira

true

Bláfáninn kominn á loft við Langasand

Í liðinni viku var Bláfáninn við Langasand á Akranesi dreginn að húni fjórða árið í röð. Bláfáninn er alþjóðlegt umhverfismerki og tákn um markvissa og skilgreinda umhverfisstjórnun. Til að öðlast Bláfánann þarf baðströndin á Langasandi að uppfylla 32 skilyrði sem lúta að vatnsgæðum, umhverfisstjórnun, upplýsingagjöf og öryggi. Aðeins tvær aðrar íslenskar baðstrendur hafa fengið Bláfánann;…Lesa meira

true

Golfklúbburinn Leynir komst upp um deild í karla- og kvennaflokki

Íslandsmót golfklúbba 2016 fór fram um liðna helgi. Mótið hófst á föstudegi og lauk í gær. Mótið hlaut nýtt nafn í vor en áður hét það Sveitakeppni GSÍ. Flestir af bestu kylfingum landsins kepptu á mótinu og margar hörkuviðureignir litu dagsins ljós. Keppt var í fjórum deildum í karlaflokki og tveimur deildum í kvennaflokki. Golfklúbbur…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur í fyrsta leik Domino‘s deildar kvenna

Leikjaröð liða í Domino‘s deild karla og kvenna auk fyrstu deildar karla er orðin ljós. Það er þó enn langt í mót en fyrsti leikur Domino‘s deildar karla verður spilaður 5. október en hjá konunum og fyrstu deild karla hefst mótið degi síðar. Nýliðarnir í Domino‘s deild kvenna, Skallagrímur í Borgarnesi, mæta meisturunum í Snæfelli…Lesa meira

true

Laxveiðin byrjar allsstaðar vel

Það er ekki hægt að segja annað en laxveiðin byrji vel þetta sumarið. Allsstaðar komnir laxar og víða mikið. Um miðja síðustu viku var Blanda á toppnum, en þar höfðu þá veiðst 535 laxar. Í öðru sæti var Þverá og Kjarará með 302 laxa og Norðurá fyldi í kjölfarið með 280. Veiði er hafin í…Lesa meira

true

Á þriðja þúsund brautskráðust frá Háskóla Íslands

Háskóli Íslands útskrifaði á laugardaginn 2.108 einstaklinga með 2.127 prófskírteini. Í febrúarmánuði síðastliðnum brautskráði skólinn 410 kandídata og er því heildarfjöldi brautskráðra á árinu kominn 2.518. Við útskriftarathöfnina, sem fram fór í Laugardalshöll, sagði Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands meðal annars: „Í mínum huga ber okkur brýn samfélagsleg skylda að stuðla að því að…Lesa meira

true

Guðni Th Jóhannesson verður næsti forseti Íslands

Íslendingar gengu að kjörborðinu í gær og kusu sér nýjan forseta. Guðni Th Jóhannesson sagnfræðingur hlaut flest atkvæði þeirra níu frambjóðenda sem í kjöri voru. Fékk hann alls 71.356 atkvæði, eða 39,1% fylgi þeirra sem kusu. Kjörsókn á landinu var venju fremur góð í þessum forsetakosningum. 75,7% nýttu atkvæðisréttinn, eða 185.390 manns. Í öðru sæti varð…Lesa meira

true

Veiðidagur fjölskyldunnar er í dag

Veiðidagur fjölskyldunnar er í dag, sunnudaginn 26. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið. Landssamband stangaveiðifélaga hefur staðið fyrir Veiðidegi fjölskyldunnar í á þriðja áratug ásamt veiðiréttareigendum. Hugmyndin á bak við daginn er að kynna stangveiði sem fjölskylduíþrótt. Í ár verða 29 vötn í boði á…Lesa meira