Fréttir

true

Nýtt riðutilfelli greint í Skagafirði

Riðuveiki hefur verið staðfest á bænum Álftagerði í nágrenni Varmahlíðar í Skagafirði. Síðast greindist riða á þessu svæði í september síðstliðnum á bænum Vallanesi. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða. „Riðan greindist í sýnum úr tveimur kindum frá bænum þar sem nú eru um 370 fjár. Bóndinn hafði samband við héraðsdýralækni vegna…Lesa meira

true

Svekkjandi tap Skallagríms

Skallagrímur heimsótti Keflavík í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Borgnesingar höfðu yfirhöndina lengi vel, en Keflvíkingar náðu að hleypa mikilli spennu í leikinn í lokafjórðungnum, þar sem þær jöfnuðu metin, knúðu fram framlengingu og stálu  sigrinum á endasprettinum. Lokatölur urðu 61-54 fyrir Keflavík. Skallagrímskonur byrjuðu heldur brösulega og hittu illa úr skotum sínum.…Lesa meira

true

Bílasprautun Vesturlands opnuð um mánaðamótin

Þeir Guðmundur Antonsson og Grétar Jónsson hafa undanfarið unnið hörðum höndum að opnun nýs sprautu- og réttingaverkstæðis á Akranesi. Ber það heitið Bílasprautun Vesturlands og er staðsett að Smiðjuvöllum 7. Stefnt er að opnun verkstæðisins föstudaginn 1. febrúar næstkomandi. „Núna erum við að klára að koma okkur fyrir, setja upp og prófa tækin og koma…Lesa meira

true

Styttist í gangsetningu hjá GRun

Nú er allt á fullu í nýrri verksmiðju G.Run hf í Grundarfirði. Sjá má iðnaðarmenn í hverjum krók og kima í verksmiðjunni en stefnt er á gangsetningu um næstu mánaðamót. „Það verður öryggisúttekt hjá okkur síðustu vikuna í janúar og strax að henni lokinni hefst vinnsla,“ segir Unnsteinn Guðmundsson vélstjóri og einn eigenda Guðmundar Runólfssonar…Lesa meira

true

Vasaljósalestur á lestrarstund í Brekkubæjarskóla

Lestrarstundin Allir lesa var haldin í Brekkubæjarskóla á Akranesi þriðjudaginn 8. janúar síðastliðinn, í tengslum við hina árlegu Bókamessu Brekkubæjarskóla. Á lestrarstund taka allir nemendur og starfsfólk skólans sér bók í hönd á sama tíma og lesa sér til yndisauka í tuttugu mínútur. Eins og gengur og gerist eru nemendur í mismunandi kennslustundum þegar Lestrarstundin…Lesa meira

true

Snæfell mætir Val í undanúrslitum bikarsins

Snæfell og Valur munu etja kappi í undanúrslitum Geysisbikars kvenna í körfuknattleik. Dregið var í bikarnum í hádeginu í dag. Sigurvegari þeirrar viðureignar mun mæta sigurvegaranum úr viðureign Breiðabliks og Stjörnunnar í bikarúrslitaleiknum. Í karlaflokki mætast annars vegar Stjarnan og ÍR en hins vegar KR og Njarðvík. Bikarúrslitavika KKÍ hefst í Laugardalshöllinni miðvikudaginn 13. febrúar…Lesa meira

true

Borgarnes Film Freaks hefst á morgun

Kvikmyndahátíðin Borgarnes Film Freaks hefst í Borgarnesi á morgun, fimmtudaginn 24. janúar og stendur yfir í þrjá daga. Opnunarkvöldið hefst kl. 18:00 á Sögulofti Landnámsseturs Íslands. Á föstudag og laugardag verður sýnt í Félagsmiðstöðinni Óðali og þá hefjast sýningar kl. 19:00. Allt í allt verða sýndar 29 myndir frá 16 löndum. „Þessa þrjá daga gefst…Lesa meira

true

Of lítill svefn hefur slæm áhrif á börn og ungmenni

Breyting á klukkunni er sögð hafa sérstaklega mikil áhrif á unglinga og ungt fólk sem er ekki að sofa nóg. Í Skessuhorni sem kom út í dag er rætt við Kristjönu Kristinsdóttur skólasálfræðing í Grundaskóla á Akranesi um væntanlega breytingu á klukkunni og svefn barna og unglinga. „Það er mikið áhyggjuefni hversu lítið ungt fólk…Lesa meira

true

Höfum aldrei kynnst neinu þessu líku áður

Ferðamenn er að finna á hverju strái jafnvel þó hávetur sé. Þessi tveir félagar frá Suður-Kóreu voru nýlega komnir til landsins þegar ljósmyndari Skessuhorns ók fram á bíl þeirra utan vegar við hringtorg í Mosfellsbæ í dag. „Við erum á leiðinni á Þingvelli og ætlum í ferð okkar að reyna að sjá norðurljósin. Það er…Lesa meira

true

Ríflega fimmtugur Land Rover á götuna eftir gagngera viðgerð

Þegar Gísli Einarsson, dagskrárgerðarmaður, lífskúnstner og fyrrum ritstjóri Skessuhorns fagnaði fertugsafmæli sínu 26. janúar 2007 færðu nokkrir vina hans honum að gjöf norðlenskan Land Rover jeppa af árgerð 1966. Bíll þessi hafði þá lokið hefðbundnum skyldustörfum, en hann hafði m.a. dyggilega þjónað þingeyskum bónda við búskap í rúma tvo áratugi, en farið eftir það á…Lesa meira