Fréttir

true

Opið hús í dag vegna skipulagsbreytinga á Akranesi

Opið hús verður á bæjarskrifstofum Akraneskaupstaðar í dag, föstudaginn 18. janúar, milli kl. 12:30 og 17:00. Þar verða kynntar fyrirhugaðar skipulagsbreytingar. Í fyrsta lagi verður kynnt breyting á deiliskipulagi stofnanareits vegna fyrirhugaðrar hótelbyggingar að Kirkjubraut 39, sem stundum er kölluð Fólksbílastöðin. Breytingin felst í því að nýtingarhlutfall lóðarinnar er hækkað, hámarksfjöldi hæða verður fjórar hæðir…Lesa meira

true

Snjóþekja á flestum vegum

Vetrarfærð er í flestum landshlutum, þó síst á Suðvesturlandi. Hvergi er spáð hvössum vindi. Þar sem hiti er um og yfir frostmarki má búast við slæmri hálku meðan snjó og hálku er að taka upp. Á Vesturlandi ser snjóþekja eða hálka á flestum vegum og sumsstaðar ofankoma, segir í tilkynningu Vegagerðarinnar.Lesa meira

true

Íslensk getspá greiðir út fyrstu milljónavinninga ársins

Starfsmenn Íslenskrar getspár vita fátt skemmtilegra en að taka á móti vinningshöfum og í vikunni komu fyrstu milljónamæringar ársins 2019 í heimsókn í Laugardalinn. „Fyrsti vinningshafinn var eldri maður af Suðurlandi. Sá var með 3. vinning í fyrsta útdrætti ársins í EuroJackpot, vinning upp á rúmlega 14,5 milljónir króna. Er þetta annar stóri vinningurinn sem…Lesa meira

true

Leikur Skallagríms hrundi í lokafjórðungnum

Skallagrímur tapaði gegn Stjörnunni, 80-94, þegar liðin mættust í 14. umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik í gær. Leikið var í Borgarnesi og heimamenn voru mun betri nánast allan leikinn. Þeir misstu hins vegar niður 20 stiga forskot í síðari hálfleik áður en leikur þeirra hrundi í lokafjórðungnum og Stjarnan sigraði. Skallagrímsmenn byrjuðu leikinn af…Lesa meira

true

Föstudagurinn dimmi í Borgarnesi í dag

Í dag, föstudaginn 18. febrúar verður Föstudagurinn Dimmi haldinn í þriðja sinn í Borgarnesi. Þá eru íbúar hvattir til að hvíla raftækin í einn dag og draga fram vasaljósin og kertin og eiga notalega stund; spila, segja sögur og spjalla saman. „Minnumst gamla tímans og þökkum fyrir nútímaþægindi. Þetta er áskorun um að hvíla síma,…Lesa meira

true

Vill að skoðað verði hvort Menntaskólinn geti boðið upp á iðnnám

Hilmir B Auðunsson, pípulagningameistari og annar eigandi fyrirtækisins HP pípulagnir í Borgarnesi, segir mikinn skort vera á pípulagningarmönnum og öðrum iðnaðarmönnum í Borgarnesi og nágrenni. Hann segist áhyggjufullur yfir því hversu fáir sækja sér menntun í iðngreinum og hversu erfitt er orðið að fá fólk til starfa. Blaðamaður Skessuhorns hitti Hilmir á verkstæði fyrirtækisins í…Lesa meira

true

Umferðareftirlit við skóla sýndi góða niðurstöðu

Lögregla var við skólaeftirlit á Akranesi í vikunni sem leið, bæði við Grundaskóla og Brekkubæjarskóla. Þá hefur lögregla eftirlit með umferð og fólki við upphaf skóla, athugar hvort börn eru spennt í bílbelti og í bílstólum, eftir því sem við á. Að sögn lögreglu voru engin mál bókuð við eftirlitið sem gefur til kynna að…Lesa meira

true

Ókunnugur maður bauð barni upp í bíl

Grunnskólabarni á Akranesi var boðið far af ókunnugum manni á leið sinni heim frá skóla í dag. Barnið þáði ekki farið og hélt sína leið, en lét foreldri vita sem gerð síðan skólayfirvöldum viðvart. Staðgengill skólastjóra Brekkubæjarskóla sendi tölvupóst á alla foreldra nemenda við skólann síðdegis í dag og lét þá vita af atvikinu. Í…Lesa meira

true

Lesbókin til sölu

Rekstur kaffihússins Lesbókarinnar við Akratorg á Akranesi er til sölu, ásamt lausafé og búnaði. Ásett verð er 9,9 milljónir króna. Það er Steinþór Árnason veitingamaður sem hefur rekið Lesbókina síðan í janúar í fyrra, eftir að hann keypti reksturinn af þeim Christel Björgu Rúdólfsdóttur Clothier og Guðleifi Rafni Einarssyni. Greint var frá því í Skessuhorni…Lesa meira

true

Kvikmyndahátíðin Borgarnes Film Freaks á næsta leyti

Kvikmyndahátíðin Borgarnes Film Freaks verður haldin í Borgarnesi dagana 24. til 26. janúar næstkomandi. Er þetta í annað skipti sem hátíðin er haldin, en einnig var blásið til hennar í fyrra. Að þessu sinni verða myndirnar annars vegar sýndar á Sögulofti Landnámssetursins á fyrsta kvöldi hátíðarinnar og hins vegar í Félagsmiðstöðinni Óðali á föstudag og…Lesa meira