Fréttir

true

Bláfáninn kominn á loft við Langasand

Í liðinni viku var Bláfáninn við Langasand á Akranesi dreginn að húni fjórða árið í röð. Bláfáninn er alþjóðlegt umhverfismerki og tákn um markvissa og skilgreinda umhverfisstjórnun. Til að öðlast Bláfánann þarf baðströndin á Langasandi að uppfylla 32 skilyrði sem lúta að vatnsgæðum, umhverfisstjórnun, upplýsingagjöf og öryggi. Aðeins tvær aðrar íslenskar baðstrendur hafa fengið Bláfánann;…Lesa meira

true

Golfklúbburinn Leynir komst upp um deild í karla- og kvennaflokki

Íslandsmót golfklúbba 2016 fór fram um liðna helgi. Mótið hófst á föstudegi og lauk í gær. Mótið hlaut nýtt nafn í vor en áður hét það Sveitakeppni GSÍ. Flestir af bestu kylfingum landsins kepptu á mótinu og margar hörkuviðureignir litu dagsins ljós. Keppt var í fjórum deildum í karlaflokki og tveimur deildum í kvennaflokki. Golfklúbbur…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur í fyrsta leik Domino‘s deildar kvenna

Leikjaröð liða í Domino‘s deild karla og kvenna auk fyrstu deildar karla er orðin ljós. Það er þó enn langt í mót en fyrsti leikur Domino‘s deildar karla verður spilaður 5. október en hjá konunum og fyrstu deild karla hefst mótið degi síðar. Nýliðarnir í Domino‘s deild kvenna, Skallagrímur í Borgarnesi, mæta meisturunum í Snæfelli…Lesa meira

true

Laxveiðin byrjar allsstaðar vel

Það er ekki hægt að segja annað en laxveiðin byrji vel þetta sumarið. Allsstaðar komnir laxar og víða mikið. Um miðja síðustu viku var Blanda á toppnum, en þar höfðu þá veiðst 535 laxar. Í öðru sæti var Þverá og Kjarará með 302 laxa og Norðurá fyldi í kjölfarið með 280. Veiði er hafin í…Lesa meira

true

Á þriðja þúsund brautskráðust frá Háskóla Íslands

Háskóli Íslands útskrifaði á laugardaginn 2.108 einstaklinga með 2.127 prófskírteini. Í febrúarmánuði síðastliðnum brautskráði skólinn 410 kandídata og er því heildarfjöldi brautskráðra á árinu kominn 2.518. Við útskriftarathöfnina, sem fram fór í Laugardalshöll, sagði Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands meðal annars: „Í mínum huga ber okkur brýn samfélagsleg skylda að stuðla að því að…Lesa meira

true

Guðni Th Jóhannesson verður næsti forseti Íslands

Íslendingar gengu að kjörborðinu í gær og kusu sér nýjan forseta. Guðni Th Jóhannesson sagnfræðingur hlaut flest atkvæði þeirra níu frambjóðenda sem í kjöri voru. Fékk hann alls 71.356 atkvæði, eða 39,1% fylgi þeirra sem kusu. Kjörsókn á landinu var venju fremur góð í þessum forsetakosningum. 75,7% nýttu atkvæðisréttinn, eða 185.390 manns. Í öðru sæti varð…Lesa meira

true

Veiðidagur fjölskyldunnar er í dag

Veiðidagur fjölskyldunnar er í dag, sunnudaginn 26. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið. Landssamband stangaveiðifélaga hefur staðið fyrir Veiðidegi fjölskyldunnar í á þriðja áratug ásamt veiðiréttareigendum. Hugmyndin á bak við daginn er að kynna stangveiði sem fjölskylduíþrótt. Í ár verða 29 vötn í boði á…Lesa meira

true

Meiri kjörsókn á Akranesi en fyrir fjórum árum

Á hádegi í dag höfðu 769 kosið í stærstu kjördeildinni í Norðvesturkjördæmi, á Akranesi. Kosið er í Brekkubæjarskóla. Það jafngildir 15,57% atkvæðisbærra. Í kosningunum fyrir fjórum árum höfðu á sama tíma 13,56% kosið. Kjörsókn er því töluvert meiri. Ágætt veður er á Vesturlandi, hlýtt en skýjað.Lesa meira

true

Hægt að fletta upp kjördeildum og lögheimilum

Kosið verður til embættis forseta Íslands í dag, laugardaginn 25. júní. Víðast hvar verða kjörstaðir opnaðir klukkan 9:00, en þó eru undantekningar frá reglunni. Til dæmis hefjast kjörfundur ýmist klukkan 10 eða 11 í kjördeildum í Snæfellsbæ. Níu frambjóðendur eru í kjöri til forseta. Þeir eru:  Andri Snær Magnason, Karfavogi 16, Reykjavík Ástþór Magnússon, Bretlandi, dvalarstaður Vogasel…Lesa meira

true

Fjöldi íbúða Háskólans á Bifröst settur á sölu

Háskólinn á Bifröst skrifaði nýverið undir samning við Íbúðalánasjóð um fjárhagslega endurskipulagningu vegna íbúða á Bifröst. Í framhaldinu voru auglýstar til sölu tvær eignir á Bifröst. Um er að ræða rétt tæpar hundrað íbúðir, annars vegar í Sjónarhól og hins vegar að Hamragörðum 1. Sjónarhóll er fjölbýlishús sem stendur vestan við skólahúsin en Hamraborg 1 hýsir…Lesa meira