Fréttir

true

Mannamót markaðsstofanna verður á fimmtudaginn

Mannamót markaðsstofa landshlutanna fer fram fimmtudaginn 17. janúar, að þessu sinni í Kórnum í Kópavogi. Undanfarin ár hefur viðburðurinn verið haldinn í flugskýli Ernis á Reykjavíkurflugvelli, en sökum mannfjölda í fyrra var ákveðið að færa hann í stærra húsnæði. Mannamót er haldið af markaðsstofum landshlutanna í samvinnu við flugfélagið Erni og Isavia. Markmiðið er að…Lesa meira

true

Jákvætt námskeið um hjónaband og sambúð

Séra Þórhallur Heimisson boðar námskeið fyrir hjón og sambúðarfólk 4. mars næstkomandi klukkan 19 í Reykjavík. Markmið kvöldsins er að kveikja ferskar hugmyndir í sambandinu, að finna nýjar leiðir til að leysa vanda, að gera gott samband betra og traustara og að skoða samskipti til að styrkja þau. Verkefni verða leyst, fyrirlestrar fluttir, æfingar og…Lesa meira

true

Afhentu undirskriftir gegn R-leið

Í morgun var sveitarstjóra Reykhólahrepps afhentur undirskriftalisti. Þar er því mótmælt að sveitarstjórn velji svokaða R-leið fyrir Vestfjarðaveg (60). Alls rituðu 95 einstaklingar nöfn sín á listann. Tveir þriðju þeirra eiga lögheimili í hreppnum en þriðjungur á frístundahús eða jarðir á svæðinu.Lesa meira

true

Náði sér ekki á strik í fyrsta móti ársins

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hafnaði í 49. sæti á Fatima Bint Mubarak Ladies Open golfmótinu sem fram fór í Abu Dhabi um helgina. Mótið var fyrsta mót keppnistímabilsins á Evrópumótaröð kvenna. Valdís lék hringina þrjá í mótinu samanlagt á 14 höggum yfir pari og náði sér í raun aldrei almennilega á strik.…Lesa meira

true

Örplast finnst í íslenskum kræklingi

Plastmengun er víða í heiminum, á sjó og landi. Nýleg rannsókn sem Umhverfisstofnun vann um plastmengun í kræklingi við strendur landsins leiddi í ljós að örplast finnst í fjörukræklingi á öllum stöðum sem kannaðir voru. Ákveðið var að rannsaka krækling því hann er talin hentug bendilífvera fyrir mat á örplastmengun í hafi. Þá var einnig…Lesa meira

true

Fiskeldisfyrirtæki ganga til liðs við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi

Á auka aðalfundi Landssambands fiskeldisstöðva (LF) 14. desember síðastliðinn var tekin sameiginleg ákvörðun aðildarfyrirtækjanna um að sækja um aðild að Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Jafnframt var ákveðið að leggja niður daglega starfsemi LF og mun henni framvegis verða sinnt af SFS. Þá hefur verið ákveðið að Einar K. Guðfinnsson, formaður stjórnar LF, gangi til…Lesa meira

true

Snæfellingar töpuðu heima

Snæfellingar máttu játa sig sigraða gegn Selfossi, 58-72, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í Stykkishólmi á föstudagskvöld. Snæfell byrjaði betur og komst í 8-0 áður en gestirnir að sunnan skoruðu fyrstu stigin sín. Áfram voru Hólmarar sterkari og leiddu 12-6 þegar komið var fram yfir miðjan fyrsta leikhluta. Þá tóku gestirnir…Lesa meira

true

Umhleypingar í kortunum

Í dag gengur í austan 10-18 m/sek með snjókomu, fyrst suðvestantil og hlýnar í veðri. Slydda eða rigning verður sunnantil á landinu síðdegis. Snýst síðan í suðvestan 8-13 m/sek með skúrum eða éljum um landið suðvestanvert í kvöld, en annars norðaustan og austan 13-20 og snjókoma, hvassast á annesjum. Norðaustan 15-23 um landið norðvestanvert á…Lesa meira

true

Söngbræður troðfylltu Þinghamar

Húsfyllir var í félagsheimilinu Þinghamri á Varmalandi síðastliðinn laugardagskvöld þegar karlakórinn Söngbræður bauð til árlegrar sviða- og hrossakjötsveislu. Dagskráin var hefðbundin, enda ekki þörf á að breyta sífellt því sem gott er. Fyrir mat söng kórinn nokkur lög við undirleik Birgis Þórissonar píanóleikara. Gunnar Örn Guðmundsson formaður kórstjórnar setti samkomuna en veislustjóri var Viðar Guðmundsson…Lesa meira

true

Éljagangur á Snæfellsnesi

Vetrarfærð er á vegum um allt land, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni í morgun; hálka, hálkublettir og snjóþekja. „Éljagangur er á Tröllaskaga, Siglufjarðarvegi og í Suðursveit á Suðausturlandi. Einnig er éljagangur á Snæfellsnesi. Þungfært er norður í Árneshrepp og á Hrafnseyrarheiði.“Lesa meira