Fréttir

true

Umhleypingar í kortunum

Í dag gengur í austan 10-18 m/sek með snjókomu, fyrst suðvestantil og hlýnar í veðri. Slydda eða rigning verður sunnantil á landinu síðdegis. Snýst síðan í suðvestan 8-13 m/sek með skúrum eða éljum um landið suðvestanvert í kvöld, en annars norðaustan og austan 13-20 og snjókoma, hvassast á annesjum. Norðaustan 15-23 um landið norðvestanvert á…Lesa meira

true

Söngbræður troðfylltu Þinghamar

Húsfyllir var í félagsheimilinu Þinghamri á Varmalandi síðastliðinn laugardagskvöld þegar karlakórinn Söngbræður bauð til árlegrar sviða- og hrossakjötsveislu. Dagskráin var hefðbundin, enda ekki þörf á að breyta sífellt því sem gott er. Fyrir mat söng kórinn nokkur lög við undirleik Birgis Þórissonar píanóleikara. Gunnar Örn Guðmundsson formaður kórstjórnar setti samkomuna en veislustjóri var Viðar Guðmundsson…Lesa meira

true

Éljagangur á Snæfellsnesi

Vetrarfærð er á vegum um allt land, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni í morgun; hálka, hálkublettir og snjóþekja. „Éljagangur er á Tröllaskaga, Siglufjarðarvegi og í Suðursveit á Suðausturlandi. Einnig er éljagangur á Snæfellsnesi. Þungfært er norður í Árneshrepp og á Hrafnseyrarheiði.“Lesa meira

true

Starfshópur um líknar- og lífslokameðferðir

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem gera á tillögur að skipulagningu líknar- og lífslokameðferðar á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Suðurlandi og Vesturlandi. Hópnum er ætlað að taka saman yfirlit yfir þá þjónustu sem stendur til boða sjúklingum sem eru í þörf fyrir líknar- og lífslokameðferð og búa í heilbrigðisumdæmum þessara landsvæða, greina núverandi þörf fyrir líknar-…Lesa meira

true

REKO hópar boða til samráðsfundur

Fimmtudaginn 24. janúar verður haldinn samráðsfundur á vegum REKO Reykjavík og REKO Vesturland fyrir bændur, heimavinnsluaðila og smáframleiðendur sem hafa tekið þátt í eða hafa áhuga á að taka þátt í hinni milliliðalausu sölu í nafni REKO. Fundurinn hefst kl. 17:30 og verður haldinn í fundarsal Hótel Sögu á 2. hæð í Bændahöllinni í Reykjavík.…Lesa meira

true

Hámarkshraði tekinn niður á einbreiðum brúm

Vegagerðin hefur ákveðið að lækka hámarkshraða í 50 km/klst. við allar einbreiðar brýr á þjóðvegum þar sem umferð er meiri en 300 bílar á dag að jafnaði alla daga ársins. Um er að ræða um 75 einbreiðar brýr, um helmingur þeirra á hringveginum. Þá verður viðvörunarskiltum breytt og einnig bætt við undirmerki á ensku á…Lesa meira

true

Endurskoðun samnings um starfsskilyrði sauðfjárræktar

Fulltrúar Bændasamtaka Íslands og stjórnvalda hafa skrifað undir samkomulag um endurskoðun á samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktarinnar hér á landi. „Markmið samkomulagsins er meðal annars að stuðla að auknu jafnvægi framboðs og eftirspurnar á markaði með sauðfjárafurðir, auka frelsi sauðfjárbænda og að auðveldara verði að takast á við sveiflur í ytra og innra umhverfi greinarinnar. Áhersla…Lesa meira

true

Áskorun til stjórnvalda vegna niðurskurðar til Hafró

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi ásamt Sjómannasambandi Íslands, VM – Félagi vélstjóra og málmtæknimanna og Félagi skipstjórnarmanna hafa sent stjórnvöldum áskorun þar sem mótmælt er fyrirhuguðum niðurskurði til reksturs Hafrannsóknastofnunar. „Árangur sá er náðst hefur í fiskveiðistjórnun á Íslandsmiðum grundvallast á rannsóknum. Án þeirra myndu menn renna blint í sjóinn, í bókstaflegri merkingu. Margir stofnar við…Lesa meira