Fréttir

true

Fjölmennar körfuboltabúðir í Borgarnesi

Körufuboltabúðir Skallagríms og Arion banka voru haldnar með miklum glæsibrag í Borgarnesi helgina 5. og 6. janúar síðastliðna. Þangað mættu 112 ungir og efnilegir körfuknattleikskrakkar af Vesturlandi og æfðu undir leiðsögn þjálfara og leikmanna meistaraflokka Skallagríms. Gestaþjálfarar búðanna, þau Ólöf Helga Pálsdóttir og Finnur Freyr Stefánsson vöktu mikla lukku meðal krakkanna, að því er fram…Lesa meira

true

Tímaritið ROK er skrifað bæði á pólsku og íslensku

Skömmu fyrir jól kom út nýtt eintak af tímaritinu ROK. Það er gefið út bæði á íslensku og pólsku. Í tímaritunum eru greinar sem tengjast bæði Íslandi og Póllandi. Þar er að finna viðtöl og greinar um tónlist, ferðamennsku, listsköpun og allt það sem gæti talist mannlegt. Fyrstu fjögur tölublöðin komu öll út samtímis en…Lesa meira

true

Almenningi boðið að tjá sig um hvort breyta eigi klukkunni

Greinargerðin „Staðartími á Íslandi – stöðumat og tillögur“ hefur verið birt í samráðsgátt Stjórnarráðs Íslands. Samþykkt var að setja málið í opið samráð við almenning á ríkisstjórnarfundi 21. desember sl. og verður tími samráðs tveir mánuðir. „Greinargerðin var unnin í forsætisráðuneytinu og í henni er skoðað hvort færa eigi staðartíma nær sólartíma miðað við hnattræna…Lesa meira

true

Barn féll milli hæða

Sex ára gamalt barn féll á milli hæða í húsi innan umdæmis Lögreglunnar á Vesturlandi um hátíðirnar. Fallið var um tveir metrar og hlaut barnið áverka á baki og höfði. Barnið slapp engu að síður vel frá óhappinu, að sögn lögreglu. Sjúkraflutningamenn sem kallaðir voru á vettvang skoðuðu barnið gaumgæfilega og læknir mat áverka barnsins…Lesa meira

true

Snæfell aftur á sigurbraut

Snæfell vann góðan útisigur á baráttuglöðu liði Breiðabliks, 72-82, í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Breiðablik skoraði fyrstu stigin en Snæfell tók yfirhöndina og komst í 3-13 og höfðu síðan tólf stiga forskot eftir upphafsfjórðunginn, 16-28. Breiðabliksliðið kom ákveðið inn í annan leikhluta og minnkaði muninn jafnt og þétt á meðan Snæfell átti…Lesa meira

true

Þurfa að kaupa land undir reiðhöll

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar skömmu fyrir jól var samþykkt að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við skiptastjóra þrotabús Smellinn hf. um kaup á þriggja hektara landi í eigu lögaðilans en Smellinn var úrskurðað gjaldþrota 3. september 2010. Um er að ræða land undir fyrirhugaða reiðhöll Hestamannafélagsins Dreyra á Æðarodda. Þegar samningsdrög úr þeim viðræðum…Lesa meira

true

Skallagrímskonur steinlágu gegn Val

Það var fremur þunnskipað lið Skallagríms steinlá gegn Val á útivelli, 83-43, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í gærkvöldi. Liðið lék án Sigrúnar Sjafnar Ámundadóttur og munaði um minna. Valskonur tóku afgerandi forystu snemma í fyrsta leikhluta, komust í 21-6 eftir sjö mínútna leik og leiddu 26-11 eftir upphafsfjórðunginn. Leikurinn hélt áfram með…Lesa meira

true

Vaxandi samkeppni fasteignasala

Af 30 sölum fasteigna á Vesturlandi í síðasta mánuði voru sextán samningar um eignir á Akranesi. Þar af voru ellefu samningar um eignir í fjölbýli, þrír samningar um eignir í sérbýli og tveir samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 480 milljónir króna og meðalupphæð á samning 30 milljónir króna. Nú stefnir í að fimmta…Lesa meira

true

Vilja endurheimta Hítará sem næst fyrri farvegi

Stjórn Veiðifélags Hítarár hefur óskað eftir því við Borgarbyggð að leyft verði að grafa í gegnum skriðuna sem féll í Hítardal 7. júlí í fyrrasumar þannig að endurheimta megi dýrmæt uppeldissvæði árinnar sem næst fyrri farvegi árinnar. Borgarbyggð er að hluta eigandi lands sem skriðan féll yfir, en sveitarfélagið á eyðibýlið Hítardalsvelli. Byggðarráð samþykkti á…Lesa meira

true

Útibú Domusnova opnað á Akranesi eftir helgi

Stefnt er að því að opna útibú fasteignasölunnar Domusnova á Akranesi næstkomandi mánudag, 14. janúar. Víðir Arnar Kristjánsson, framkvæmdastjóri Domusnova, segir í samtali við Skessuhorn að fyrirtækið telji mikil tækifæri felast í fasteignamarkaðnum á Vesturlandi og þá sérstaklega á Akranesi. „Við teljum að aukinn fjöldi nýbygginga á svæðinu muni koma af stað miklu lífi í…Lesa meira