Fréttir

true

Tónleikar í upphafi aðventu

Menningarnefnd Snæfellsbæjar stóð fyrir jólatónleikum í síðustu viku eins og svo oft áður í upphafi aðventu. Að þessu sinni var það söngkonan Guðrún Árný sem heimsótti Snæfellsbæ og söng Skólakór Snæfellsbæjar með henni í Ólafsvíkurkirkju. Voru tónleikarnir mjög vel heppnaðir þar sem Guðrún Árný flutti jólalög af mikilli einlægni bæði ein og með skólakórnum en…Lesa meira

true

Taka niður umferðarhraðann inn í Stykkishólm

Nú undir mánaðamótin voru starfsmenn Vegagerðarinnar að setja niður umferðareyju ásamt gangbrautarskiltum á þjóðveginum þar sem ekið er inn í Stykkishólm. Var þetta gert að beiðni bæjarfélagsins og til að ná niður hraða ásamt því að gera gangandi vegfarendum auðveldara að komast yfir veginn. Það er frekar óvenjulegt að svona framkvæmdir séu unnar á þessum…Lesa meira

true

Brúarlandshjón gerð að heiðursfélögum í Skógræktarfélaginu

Skógræktarfélag Borgarfjarðar fagnaði áttræðisafmæli sínu á sérstökum hátíðarfundi í húsi gamla Héraðsskólans í Reykholti síðastliðinn sunnudag. Hátíðarfundinn setti Gísli Karel Halldórsson formaður afmælisnefndar og bauð gesti velkomna. Þá fór formaðurinn Óskar Guðmundsson í Véum yfir sögu félagsins og rifjaði upp áfangasigra og gat forystufólks í hreyfingu skógræktarmanna um áratugaskeið. Formaður lýsti svo kjöri nýrra heiðursfélaga…Lesa meira

true

Bjarnarfoss hlaut Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu

Verkefnið Bjarnarfoss í Staðarsveit – aðgengi fyrir alla allt árið, hlaut Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu árið 2018. Verðlaunin voru veitt síðdegis í gær, miðvikudaginn 5. desember. Er þetta í 24. skipti sem Ferðamálastofa gegnst við útnefningu umhverfisverðlauna, eða óslitið frá árinu 1995. Verðlaunin eru nú í þriðja sinn veitt fyrir verkefni sem hlaut styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.…Lesa meira

true

Bílvelta við Fiskilæk

Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á Vesturlandsvegi skammt frá Fiskilæk um kl. 19:30 í gærkvöldi. Bíllinn hafnaði utan vegar þar sem hann valt og endaði á hvolfi. Einn var fluttur á sjúkrahús, en ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðsli mannsins eru. Lögregla rekur slysið til erfiðra aðstæðna, en fljúgandi hálka var á vegkaflanum við…Lesa meira

true

Hætta framköllun en selja nú garn og gjafavöru

Á næsta ári fagnar Framköllunarþjónustan í Borgarnesi þrjátíu ára afmæli. Fyrstu tíu árin var starfsemin til húsa við Borgarbraut 13 en síðan á núverandi stað við við Brúartorg 4 í húsi sem stundum er kallað Bananinn og stendur beint á móti N1. Húsið byggðu þau hjón Svanur Steinarsson og Elfa Hauksdóttir. Auk Framköllunarþjónustunnar leigja þau…Lesa meira

true

Flögguðu á Háahnúki í kulda og trekki

Að morgni 1. desember síðastliðins stóðu nokkrar konur, sem hafa langt skátastarf að baki, fyrir gönguferð undir yfirskriftinni „Flaggað á Háahnúki“. Konurnar starfa allar með eldri skátum í Svannasveitinni á Akranesi en Bandalag íslenskra skáta hafði hvatt til þess að skátar flögguðu sem víðast þennan dag. Tilefnið var að fagna 100 ára fullveldi Íslands og…Lesa meira

true

Víða hálka á vegum

Í tilkynningu frá Vegagerðinni nú rétt í þessu segir að nú er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum leiðum á Vesturlandi. Flughált er á Útnesvegi á Snæfellsnesi.Lesa meira

true

Skiptifatamarkaður fær góðar viðtökur í Andabæ

Í leikskólanum Andabæ á Hvanneyri er skiptifatamarkaður í gangi. Markaðurinn er hluti af grænfánaverkefninu skólans. Foreldrar og starfsfólk hafa safnað saman fötum og komið þeim til starfsfólks leikskólans. „Þetta er gott dæmi um samfélagsverkefni sem gagnast almenningi í kringum okkur,“ segir Ástríður Guðmundsdóttir leikskólastjóri. „Flest barnafólk kannast við það hvernig börn vaxa upp úr fötunum…Lesa meira

true

Fyrsta gjöfin í sjóð til byggingar gróðurhúss í Brákarhlíð

Kvenfélag Álftaneshrepps á Mýrum færði nýverið Brákarhlíð og Hollvinasamtökum heimilisins tvö hundruð þúsund króna peningagjöf. Gjöfin er framlag til byggingar gróðurhúss í garði við Brákarhlíð. „Þetta er fyrsta gjöfin sem berst til þessa verkefnis í kjölfar umfjöllunar í Skessuhorni í haust þar sem þennan draum okkar um gróðurhús bar á góma. Þessir fjármunir sem um…Lesa meira