Fréttir

true

Málefni Lauga rædd á fjölmennum íbúafundi

Sveitarfélagið Dalabyggð boðaði til íbúafundar í Dalabúð í síðustu viku. Á dagskrá fundarins var eitt mál, Laugar í Sælingsdal, staða og framtíð. Fundinum stýrði Páll S Brynjarsson, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Fyrirkomulag fundarins var þannig að allir sjö fulltrúar í sveitarstjórn lýstu í upphafi afstöðu sinni til sölu fasteigna á Laugum og skýrðu stöðu…Lesa meira

true

Eyþór Ingi heldur hátíðartónleika á Vesturlandi

Stórsöngvarinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson heldur hátíðartónleika um allt land á aðventunni. Hátíðartónleikaröðin hefst á Húsavík fyrsta sunnudag í aðventu en að þeim loknum leggur hann í ferðalag um Vesturland. Hann syngur í Akraneskirkju miðvikudaginn 5. desember, Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík 6. desember og Borgarneskirkju 7. desember. Auk þess að vera landsþekktur söngvari hefur Eyþór getið…Lesa meira

true

Sauðamessa hefur runnið sitt skeið

Félagarnir Gísli Einarsson og Björn Bjarki Þorsteinsson í Borgarnesi birtu um helgina tímamótayfirlýsingu, þar sem fram kemur að Sauðamessan í Borgarnesi í október hafi jafnframt verið sú síðasta. Hafa þeir ákveðið að leggja hátíðina niður í þeirri mynd sem landmenn þekkja hana, en eru þó hvergi af baki dottnir í hátíðarhöldum. „Eftir stendur sú hefð…Lesa meira

true

Bilun er í stofnæð hitaveitunnar frá Deildartungu

Á ellefta tímanum í morgun varð bilun á Deildartunguæð rétt austan við Flókadalsá í Borgarfirði. Hitaveitulögnin flytur eins og kunnugt er heitt vatn úr Deildartunguhver til Borgarness og Akraness. Lokað var fyrir vatnsrennslið um leið og bilunin uppgötvaðist og viðgerð stendur nú yfir. Truflun verður á afhendingu á heitu vatni til nokkurra bæja í Borgarbyggð…Lesa meira

true

Nú fer hver að verða síðastur fyrir REKO á laugardag

Næsta afhending REKO Vesturland verður laugardaginn 17. nóvember á bílastæðinu við Dalbraut 1, Krónuna á Akranesi, milli klukkan 11 og 12. „Framboðið hefur aldrei verið meira. Tólf framleiðendur bjóða vörur sínar og er fjölbreytileikinn mikill,“ segir í tilkynningu. Í boði er úrval af lambakjöti, nautakjöti, mjólkurvörum, fiski og skelfiski, velferðarkjúklingur, kálfakjöt og innmatur, landnámshænsnaegg, tvíreykt…Lesa meira

true

Góð ferð sundgarpa úr Sundfélagi Akraness á Íslandsmeistaramót

Íslandsmeistaramót í 25m laug fór fram um síðustu helgi í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Átti Sundfélag Akranes þar ellefu keppendur. Alls tók 171 sundmaður þátt frá 12 félögum. Ungmennin úr ÍA áttu mjög góða helgi þar sem persónulegar bætingar voru alls 44 og syntu þau 15 sinnum til úrslita á mótinu. Brynhildur Traustadóttir varð Íslandsmeistari í…Lesa meira

true

Bilun í hitaveitu á Akranesi

Vegna bilunar í götulögn hitaveitu á Akranesi segir í tilkynningu frá Veitum að búast megi við lágum þrýstingi á heitu vatni í dag austan Þjóðbrautar til klukkan 19 í kvöld, þriðjudag.Lesa meira

true

Fórnarlamba umferðarslysa minnst

Fórnarlamba umferðarslysa á Íslandi verður minnst á alþjóðlegum minningardegi sunnudaginn 18. nóvember. Minningarathöfn verður við þyrlupallinn við bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi í Reykjavík kl. 16 en þetta verður í sjöunda sinn sem minningardagurinn er haldinn hér á landi. Hliðstæð athöfn fer fram víða um heim undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í…Lesa meira

true

Hafna hækkunarbeiðni Íslandspósts

Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt ákvörðun sína nr. 21/2018, þar sem stofnunin hafnar erindi Íslandspósts ohf. um 8% hækkun á gjaldskrá félagsins innan einkaréttar.  Í ákvörðun stofnunarinnar kemur m.a. fram að krafa félagsins um 8% hækkun, sem byggðist á magnminnkun, sé hærri en sem nemur tekjutapi félagsins af þeirri magnminnkun sem erindi félagsins byggir á.Lesa meira