Fréttir

true

Tækni- og hönnunarkeppni meðal grunnskólabarna

Liðið Myllarnir úr Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ bar sigur úr býtum í hinni árlegu tækni- og hönnunarkeppni First Lego League sem fram fór í Háskólabíói á laugardag. Liðið vann sér um leið þátttökurétt í norrænni keppni First Lego League. Háskóli Íslands hefur staðið fyrir tækni- og hönnunarkeppninni í rúman áratug en markmið hennar er að efla…Lesa meira

true

Eldur út frá brauðrist

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var í kvöld kallað út vegna bruna í húsi á Vesturgötu 101 á Akranesi. Í ljós kom að eldur hafði kviknað í brauðrist og fylltist húsið af reyk. Tveir voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar vegna gruns um reykeitrun, húsráðandi og nágranni sem kom til aðstoðar. Tjón varð minniháttar en skemmdir…Lesa meira

true

Heimagistingarvaktin „böstar“ óskráða gistiþjónustu

Til að tryggja rétta skráningu og bæta eftirlit með heimagistingu í landinu, var Heimagistingarvakt efld með sérstakri fjárveitingu ferðamálaráðherra síðasta sumar. Heimagistingarvaktin hefur þegar skilað umtalsverðum árangri. „Heimagistingarvaktin er starfrækt á vegum Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu sem hefur nú þegar samþykkt 1.860 skráningar á heimagistingu á þessu ári en á öllu síðasta ári var fjöldinn 1.059.…Lesa meira

true

„Ég er harðasti iðnaðarmaðurinn“

Leit stendur yfir að harðasta iðnaðarmanni Íslands. Það eru útvarpsstöðin X-ið 97.7 ásamt Würth sem standa fyrir valinu, sem nú fer fram í fjórða sinn. Undanfarnar vikur hefur hlustendum útvarpsstöðvarinnar boðist að tilnefna harðasta iðnaðarmanninn og hafa fjölmargar tilnefningar borist. Sérstök dómnefnd fór yfir tilnefningarnar og hefur valið sex iðnaðarmenn sem þóttu skara fram úr.…Lesa meira

true

Borgarbyggð hyggst fjárfesta fyrir rúma tvo milljarða

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í gær var framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins fyrir næstu fjögur ár lögð fram til fyrri umræðu og samþykkt að vísa henni til síðari umræðu. Samkvæmt tillögunni eru heildar fjárfestingar tímabilið 2019-2022 áætlaðar rúmir tveir milljarðar króna. Stærsta einstaka framkvæmdin er stækkun og endurbætur á Grunnskólanum í Borgarnesi sem nú er í gangi, en…Lesa meira

true

Árleg Legókeppni í Háskólabíói á morgun

Um tvö hundruð grunnskólanemendur víðs vegar af landinu taka þátt í hinni árlegu tækni- og hönnunarkeppni FIRST LEGO League sem fram fer í Háskólabíói á morgun, laugardaginn 10. nóvember. Að þessu sinni eru 22 lið frá 18 grunnskólum skráð til þátttöku og spreyta þau sig á forritun, rannsóknarverkefni, teymisvinnu og vélmennakappleik. Liðin hafa unnið ötullega…Lesa meira

true

Söfnun fyrir vefritið Úr vör á Karolina Fund

Söfnun stendur yfir á Karolina Fund fyrir nýtt vefrit, Úr vör, sem mun fjalla um hvernig fólk á Vestfjörðum og víðsvegar um landið notar skapandi aðferðir til að leita lausna. Stofnendur vefritsins eru hjónin Aron Ingi Guðmundsson og Julie Gasiglia sem stofnuðu og reka HÚSIÐ-Creative Space á Patreksfirði þar sem þau búa líka. „Úr vör…Lesa meira

true

Fasteignakaup á Vesturlandi í október

Á Vesturlandi var 67 kaupsamningum um fasteignir þinglýst í októbermánuði samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá. Þar af voru 30 samningar um eignir í fjölbýli, 22 samningar um eignir í sérbýli og 15 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan í þessum viðskiptum var 1.850 milljónir króna og meðalupphæð á samning því 27,6 milljónir króna. Af þessum 67…Lesa meira

true

Óhapp í göngunum í gærkvöldi

Umferðaróhapp varð í Hvalfjarðargöngunum á tólfta tímanum í gærkvöldi. Fréttavefurinn ruv.is greinir frá og segir að tvær bifreiðar hafi verið óökufærar eftir óhappið. Bílstjórar komust þó nokkuð vel frá slysinu, að því er segir í dagbók lögreglu, en annar þeirra kvartaði yfir eymslum í hálsi.Lesa meira

true

Hross tekin úr vörslu eigenda

Matvælastofnun tók tvær hryssur og folöld þeirra úr vörslu hestaeiganda á Suðurlandi í vikunni sem leið. Þetta er í annað skipti á hálfu ári sem sami eigandi er sviptur sömu hrossum. Ástæða vörslusviptingarinnar er ófullnægjandi aðbúnaður hrossanna. Um folöld og mjólkandi hryssur var að ræða sem haldið var í beitarlausu gerði þar sem ekki var…Lesa meira