Fréttir

true

Smíðaði afsteypu af góðkunningja Grundarfjarðar

Unnsteini Guðmundssyni í Grundarfirði er margt til lista lagt en hann starfar sem vélstjóri hjá G.Run hf þegar hann er ekki að hanna vélar eða smíða listaverk. Hann hannaði til að mynda sporðskerann sem fjallað var um í Skessuhorni á síðasta ári. Unnsteinn hefur nýlokið við smíði á stærðarinnar hvalsugga sem prýðir nú Paimpol garðinn…Lesa meira

true

Borgfirðingabók 2016 komin út

Borgfirðingabók 2016 er komin úr prentun og er þessa dagana að berast áskrifendum. Bókin er 17. árgangur ársrits Sögufélags Borgarfjarðar. Borgfirðingabók er meginverkefni sögufélagsins nú um stundir og mikið hefur verið lagt í útgáfuna sem er tæpar 300 blaðsíður og ríkulega myndskreytt. Mjög víða er komið við í efnistökum og þau fjölbreytt að þessu sinni.…Lesa meira

true

Ungir tónlistarmenn halda tónleika í Skessubrunni

Sunnudaginn 26. júni kl.14:00 verða tónleikar ungra tónlistarmanna haldnir í Skessubrunni í Svínadal. Húsið verður opnað kl. 13:00 og verður hægt að kaupa súpu og fleira á staðinum. Allir eru hjartanlega velkomnir. Það verða þrír tónlistarmenn sem koma fram á þessum tónleikum: Ásta Marý Stefánsdóttir – söngkona, Sirgríður Hjördís Indriðadóttir – flautuleikari, Heiðmar Eyjólfsson –…Lesa meira

true

Atvinnuleysi í lágmarki

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 203.600 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í maí 2016, sem jafngildir 86,1% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 195.400 starfandi og 8.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 82,7% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 4,1%. Samanburður mælinga fyrir maí 2015 og 2016 sýnir…Lesa meira

true

Rallað um heiðir á Ströndum á laugardaginn

Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur stendur fyrir annarri umferð Íslandsmótsins í rallý um næstu helgi. Að þessu sinni verður haldið til Hólmavíkur og haldin keppni í samstarfi við öfluga heimamenn. Á laugardag hefst keppni á Tröllatunguheiði en um hana verður ekið til skiptis við Steinadalsheiði. Áætlað er að keppni ljúki kl. 17.40 með tilkynningu úrslita og verðlaunaafhendingu við…Lesa meira

true

Safnarasafn opnað á Akranesi

Safnarasafnið á Akranesi var opnað á þjóðhátíðardaginn. Safnið samanstendur af ólíkum einkasöfnum sem eru í eigu nokkurra Akurnesinga. Hjónin Kristbjörg Traustadóttir og Björgvin Björgvinsson stóðu fyrir opnun safnsins og halda utan um það í sumar. Akraneskaupstaður útvegaði húsnæðið og allt sem þurfti til að hægt væri að setja safnið upp. „Við fórum á fund hjá…Lesa meira

true

Tökur á sjónvarpsþáttaröð standa yfir

Í gær fóru fram tökur fyrir sjónvarpsþáttaröðina „Fangar“ á Sjúkrahúsinu á Akranesi. Þáttaröðin er framleidd af íslenska framleiðslufyrirtækinu Mystery sem framleiddi m.a. kvikmyndina Málmhaus sem Ragnar Bragason leikstýrði en hann leikstýrir einnig þessari þáttaröð. Þættirnir fara í sýningu á næsta ári en mikið er lagt í þá; þeir hafa fengið styrk bæði frá Kvikmyndamiðstöð Íslands…Lesa meira

true

Tæplega 600 hraðakstursbrot á einni viku

Lögreglumenn á Vesturlandi kærðu alls 37 ökumenn fyrir of hraðan akstur í liðinni viku. Sá sem ók hraðast mældist á 128 km/klst. Þá mynduðu hraðamyndavélar 550 hraðakstursbrot í vikunni á landinu öllu. Upp kom eitt ölvunarakstursmál og alls urðu átta umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi en engin slys á fólki. Einnig voru skráningarnúmer tekin…Lesa meira

true

Útnesvegur í regnbogans litum

Útnesvegur á milli Rifs og Hellissands á Snæfellsnesi er heldur betur líflegur á litinn þessa dagana. Ástæðan er sú að verið er að gera rannsókn á því hvort hægt sé að fæla kríuungana af malbikinu með því að mála veghluta með skærum litum. Það eru þau Kristinn Kristinsson og Hanna Kristrún líffræðingar hjá Vör sjávarrannsóknasetri…Lesa meira

true

Forsetakosningum lokið í Flatey

  Í gær var atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í Flatey á Breiðafirði. Á vef Reykhólahrepps segir að sýslumaður Vestfjarða hafi mætt í eyjuna og nýttu allir sex íbúarnir í eyjunni atkvæðisrétt sinn. Auk þeirra nýttu 16 aðkomumenn tækifærið og greiddu atkvæði utan kjörfundar í Flatey þennan dag, en kosið var í Frystihúsinu. Í frétt á Reykhólavefnum…Lesa meira