Fréttir

true

Góð línuveiði á Flákanum

Meðfylgjandi mynd var tekin síðdegis í dag um borð í Sverri SH-126 á Breiðafirði, en báturinn er á landleið til Ólafsvíkur. Veiðin er um níu tonn; sjö af þeim þorkur og tvö af ýsu. Aflinn fékkst á landbeitta línu, 36 bala, sem lögð var í Flákanum. Það er Sverrisútgerðin sem gerir bátinn út, en skipstjóri…Lesa meira

true

Bílar sátu fastir á Bröttubrekku

Laust fyrir klukkan fimm í gærmorgun barst björgunarsveitinni Ósk í Búðardal beiðni um aðstoð vegna bíla sem sátu fastir á norðanverðri Bröttubrekku. Vonskuveður var á brekkunni um þetta leyti, um 25 m/s og snjókoma. Starf björgunarsveitarmanna gekk þó vel. Greiðlega gekk að losa bílana og koma þeim niður af brekkunni. Menn og tæki voru komnir…Lesa meira

true

Hrekkjavökuklifurmót á Vökudögum

Klifurfélag ÍA stóð fyrir Hrekkjavökuklifurmóti á Smiðjuloftinu síðasta laugardag. Keppt var í fjórum aldursflokkum. Krakkarnir voru hvattir til að mæta í búningum og helst mæta hryllilegir til fara, enda hrekkjavakan tilefni mótsins. Púkar, uppvakningar, draugar, vampýrur og aðrar hryllingsverur klifruðu upp eftir veggjunum hvattir áfram af foreldrum og öðrum ættingjum. Veitt voru verðlaun í tveimur…Lesa meira

true

Snæfellingar töpuðu stórt

Snæfellingar máttu sætta sig við stórt tap gegn Hamri, 60-89, í fjórðu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi á föstudagskvöld. Gestirnir byrjuðu af miklum krafti og höfðu öll völd á vellinum í upphafi leiks. Allt virtist ganga upp hjá þeim á meðan heimamenn höfðu engin svör. Hamar komst í 19-0 áður…Lesa meira

true

Umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar

Akraneskaupstaður veitir á hverju ári einstaklingum og hópum sem staðið hafa vel að því að fegra bæinn umhverfisviðurkenningar. Voru þær afhentar á Breiðinni síðastliðinn laugardag. Fjölmargar tillögur bárust í ár frá íbúum Akraness til valnefndar sem skipuð var Sindra Birgissyni umhverfisstjóra og Helenu Guttormsdóttur lektor við LbhÍ. Valnefndin skilaði tillögum til skipulags- og umhverfisráð þar…Lesa meira

true

Frábær endurkoma Skallagríms

Skallagrímur sigraði á ÍR, 99-96, í æsispennandi leik í Domino‘s deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikið var í Borgarnesi. Heimamenn byrjuðu leikinn betur og leikur þeirra einkenndist af góðri stemningu. Gestirnir voru þó aldrei langt undan og fjórum stigum munaði eftir fyrsta leikhluta, 27-23. Jafnræði var með liðunum í öðrum fjórðungi. ÍR-ingar jöfnuðu metin…Lesa meira

true

Menningarstarf Safnahúss á fullveldis- og menningarári

Borgarbyggð tekur í gegnum starfsemi Safnahúss Borgarfjarðar þátt í tvenns konar menningardagskrá á landsvísu í ár. Annars vegar með tónleikum sem hluta af afmælisdagskrá fullveldisins og hins vegar með sýningu um Hvítárbrúna nú í nóvember, en það verkefni er þáttur í viðburðaskrá Menningararfsárs Evrópu. Það er Minjastofnun sem heldur utan um þá dagskrá hér á…Lesa meira

true

Skýrsla um áhrif veiðigjalda í NV kjördæmi

Fjórðungssamband Vestfirðinga, SSNV og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi réðu í sumar Deliotte til að vinna skýrslu um áhrif veiðigjalda í landshlutanum. Borin eru saman fiskveiðiárin 2016 og 2017. Í skýrslunni, sem nýverið kom út, kemur skýrt fram hversu mikil áhrif veiðigjöld hafa á fyrirtæki í kjördæminu og sennilega eru áhrif þeirra mest á Snæfellsnesi. Greiningin…Lesa meira

true

Anna tekin við af Gylfa og stýrir Speli

Anna Kristjánsdóttir tók á laugardaginn við af Gylfa Þórðarsyni sem framkvæmdastjóri Spalar, félagsins sem átti og rak Hvalfjarðargöngin þar til þau voru afhent ríkinu í lok september. Anna mun gegna starfinu þar til félaginu verður slitið á næsta ári og verður því að líkindum fyrsta og eina konan í framkvæmdastjórastóli fyrirtækisins. Anna er aðalbókari Spalar…Lesa meira

true

Dælan hætt að ganga á Grund

Síðastliðinn föstudag var hætt sölu eldsneytis á Grund í Skorradal. Lýkur um leið samfelldri 67 ára sölu eldsneytis á bænum. Það var Olíufélagið Essó sem setti upp dælu á Grund og hóf sölu 13. september 1951. Fyrsta dælan var handdrifin, en rafmagn kom ekki á bæinn fyrr en 1957 og nokkrum árum síðar rafdrifin dæla.…Lesa meira