Fréttir

true

Stærsta landbúnaðarsýningin í hálfa öld

Stórsýningin Íslenskur landbúnaður 2018 fór fram í og við Laugardalshöllinni í Reykjavík frá föstudegi til sunnudags um nýliðna helgi. Sýningarsvæði hallarinnar var stappfullt sýnendum og þétt raðað í höllina. Einnig var sýningarsvæði utan dyra þar sem stærri tæki og tól fengu að njóta sín. Gestir gátu valið um að njóta sýningar, ræða við fólk, þiggja…Lesa meira

true

Sömdu Sturlungar þetta allt saman?

Fyrirlestur dr. Hauks Þorgeirssonar í minningu Snorra Sturlusonar, sem fresta þurfti 2. október síðastliðinn verður á dagskrá í Bókhlöðu Snorrastofu annað kvöld, þriðjudaginn 16. október kl. 20:30. „Eins og áður hefur komið fram gerir Haukur þar grein fyrir leitinni að höfundi Íslendingasagna, sem á áhugaverðan hátt tengist nafni Snorra.  Snorrastofa hvetur fólk til að kynna…Lesa meira

true

Lokað við Höfðasel í kvöld

Veitur tilkynna að vegna vinnu við endurnýjun aðveituæðar hitaveitu, verður lokað að Höfðaseli inn í Gámu á Akranesi sem og vegurinn upp að Akrafjalli, frá klukkan 19:00 í kvöld og þar til klukkan 10 í fyrramálið, laugardag.Lesa meira

true

Sé nægum þrýstingi beitt víkur umhverfisvernd

Landssamband veiðifélaga lýsir yfir vonbrigðum með þá niðurstöðu Alþingis að breyta fiskeldislögum þannig að opnað sé á möguleika ráðherra til að gefa út rekstrarleyfi til bráðarbirgða til allt að 20 mánaða. „Lýsir Landsambandið einnig furðu sinni á því að hafa á engu stigi fengið að hafa umsögn um umrædda lagasetningu. Af umræðum undanfarna daga verður…Lesa meira

true

Frumvarp ráðherra svar við ákalli Vestfirðinga

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingar á lögum um fiskeldi. „Frumvarpinu er ætlað að lagfæra með almennum hætti annmarka á lögum um fiskeldi til framtíðar. Sá annmarki birtist í því að samkvæmt gildandi lögum er eina úrræði Matvælastofnunar í þeim tilvikum sem rekstrarleyfi fiskeldisstöðvar er fellt úr gildi…Lesa meira

true

Vöðvasullur í sauðfé rakinn til óhreinsaðra hunda

Vöðvasullur hefur greinst í fé frá nokkrum bæjum við heilbrigðiseftirlit í sláturhúsum. Þessi sullur er ekki hættulegur fólki en veldur tjóni vegna skemmda á kjöti. Um er að ræða blöðrur í vöðvum sem innihalda lirfustig bandorms sem lifir í hundum. Því vill Matvælastofnun brýna fyrir hundaeigendum að láta ormahreinsa hunda sína. Vöðvasullur eru blöðrur í…Lesa meira

true

Vill ekki málaflokkur landbúnaðar verði veiktur

Sigurður Páll Jónsson, fulltrúi Miðflokksins í atvinnuveganefnd Alþingis, hefur krafist fundar í atvinnuveganefnd eins fljótt og verða vill. „Ástæðan er sú fyrirætlan ráðherra að færa málaflokk matvæla og landbúnaðar undir skrifstofu alþjóðamála í atvinnuvegaráðuneytinu og þar með að veikja og draga úr vægi landbúnaðar í ráðuneytinu,“ segir í tilkynningu. „Þá vekur nýfallinn dómur Hæstaréttar ýmsar…Lesa meira

true

Minningartónleikar í Borgarneskirkju í kvöld

Í kvöld klukkan 20 verður Minningarsamvera í Borgarneskirkju. Þar verður Atla Snæs Jónssonar minnst, en í dag eru 22 ár frá fæðingu hans og ríflega 20 ár frá því hann lést. Ýmsir listamenn munu stíga á stokk. Má þar nefna Svavar Knút, Þóru Sif, Daða, Anítu, Viðar og Barböru. Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum, en…Lesa meira

true

Fyrsti sigur Skallagríms í hús

Skallagrímsmenn eru komnir á blað í Domino‘s deild karla eftir góðan sigur á liði Grindvíkinga, 93-88 í gær. Leikið var í Borgarnesi og var þetta fyrsti heimaleikur Skallagríms í deildinni í vetur. Skallagrímur hóf leikinn af krafti. Liðið lét finna fyrir sér í vörninni og góð stemning einkenndi leik liðsins. Þeir voru enda sterkari í…Lesa meira

true

Bleiki dagurinn er í dag

„Í Bleiku slaufunni 2018 tökum við höndum saman við vinkonuhópa því samstöðukraftur kvenna getur verið magnaður. Það sýna hópar sem halda saman svo áratugum skiptir í gegnum súrt og sætt, veita ómetanlegan stuðning og hvatningu þegar á þarf að halda. Sameinumst um að hvetja „konurnar okkar“ til þátttöku í skimun,“ segir í tilkynningu frá Krabbameinsfélaginu…Lesa meira