
Byggðarráð Borgarbyggðar er nú í fyrsta sinn aðeins skipað konum. Fremur sjaldgæft er að pólitísk slagsíða sé á þann veginn. Hitt er mun algengara. Það eru þær Lilja Björg Ágústsdóttir, forseti sveitarstjórnar og oddviti Sjálfstæðisflokksins, Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, oddviti Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og formaður byggðarráðs, og Guðveig Anna Eyglóardóttir oddviti Framsóknarflokksins sem skipa ráðið.…Lesa meira








