Fréttir

true

Grunnskólabörn í varðskipinu Þór í Stykkishólmi

Varðskipið Þór kom í fyrsta sinn til hafnar í Stykkishólmi síðastliðinn fimmtudag. Nemendum í þriðja bekk í Grunnskólanum í Stykkishólmi var boðið um borð í varðskipið og fengu þeir bæði höfðinglegar móttökur og leiðsögn hjá sjálfum forstjóra Gæslunnar; Georg Lárussyni. Börnin í þriðja bekk eru um tuttugu talsins. Þau voru að vonum glöð með þetta…Lesa meira

true

Kartöfluuppskeran fremur rýr að þessu sinni

Vætutíð framan af sumri var ekki hagfeld til kartöfluræktunar, ef marka má uppskeruna víða. Þó eru að sjálfsögðu undantekningar á því þar sem aðstæður hafa hentað veðráttu sumarsins. Þá eru sumir sem einfaldlega geta ræktað kartöflur, sama hvernig viðrað, hafa það í blóðinu. Meðfylgjandi myndir voru teknar við kartföflugarðana á Akranesi um þarsíðustu helgi. Þar…Lesa meira

true

Sýningin Íslenskur landbúnaður um helgina

Sýningin Íslenskur landbúnaður 2018 verður haldin í Laugardalshöllinni í Reykjavík dagana 12. til 14. október næstkomandi. Að sögn Ólafs M. Jóhannessonar, framkvæmdastjóra sýningarinnar, verður þetta stærsta landbúnaðarsýning sem haldin hefur verið í Laugardalshöll. Þegar hafa um eitt hundrað sýningaraðilar pantað bása bæði á úti- og innisvæði sýningarinnar og er uppselt. Jafnframt er haft eftir Ólafi…Lesa meira

true

Hreystigarður fyrir fullorðna á döfinni á Akranesi

Bæjarráð Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum sl. fimmtudag að settur yrði upp hreystigarður fyrir fullorna á Langasandssvæðinu. Verður garðurinn fyrir neðan Akraneshöllina. Hreystigarðurinn verður útbúinn átta líkamsræktartækjum með gervigras sem undirlag og gróður í kring til skjól- og rýmismyndunar. Sömuleiðis verða sett upp upplýsingaskilti sem sýna m.a. hvernig nota megi tækin til fjölbreyttar líkamsræktar. Tækin…Lesa meira

true

Snæfell steinlá gegn Vestra

Snæfell tapaði stórt gegn Vestra, 80-47, þegar liðin mættust á Ísafirði í fyrstu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Snæfellingar skoruðu fyrstu stig leiksins, sem fór rólega af stað, en ekki leið á löngu þar til heimamenn í Vestra náðu undirtökunum og leiddu með sex stigum að loknum fyrsta leikhluta, 14-8. Snæfellingar héldu…Lesa meira

true

Snæfell sigraði Íslandsmeistarana

Snæfellskonur gerðu sér lítið fyrir og lögðu Íslandsmeistara Keflavíkur, 87-75, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna á laugardag. Leikurinn var jafnframt fyrsti heimaleikur Stykkishólmsliðsins í vetur. Snæfellskonur byrjuðu af krafti og komust í 10-0 áður en gestirnir komust á blað. Þær höfðu yfirhöndina allan fyrsta leikhlutann og höfðu afgerandi forystu að honum loknum, 34-18.…Lesa meira

true

Námskeið fyrir grunnskólabörn á Vesturlandi í skapandi skrifum

Menntamálastofnun og Samtök íslenskra barna- og unglingabókahöfunda (SÍUNG) bjóða upp á námskeið í skapandi skrifum í völdum skólum á Vesturlandi. Bergrún Íris Sævarsdóttir, rithöfundur og teiknari, stýrir námskeiðinu sem er ætlað til að auka áhuga barna á lestri bóka og ritun. Allir skólar á Vesturlandi sem var boðið var upp á námskeiðið hafa þegið boðið.…Lesa meira

true

Umferð jókst mest á Suðurlandi en dróst saman á Norðurlandi

Umferðin á Hringveginum í nýliðnum septembermánuði jókst um tæp sex prósent sem er töluvert meira en meðaltalsauking septembermánaða frá því árið 2005. Aukningin er hinsvegar töluvert minni en hún hefur verið nýliðin ár. Umferðin jókst mest á Suðurlandi, eða um 10,5%, en hún dróst saman um 2,1% á Norðurlandi. Á Vesturlandi jókst umferð um 3,1%…Lesa meira

true

Lagasetning í undirbúningi um eignarhald bújarða

Starfshópur um endurskoðun eignarhalds á bújörðum, sem skipaður var af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í júní 2017, skilaði nýverið skýrslu þar sem lagðar eru til breytingar á lögum í því skyni að viðhalda ræktanlegu landbúnaðarlandi og búsetu í sveitum landsins. Í framhaldi af þeirri vinnu hyggst forsætisráðherra skipa starfshóp um endurskoðun laga og reglna er varða…Lesa meira

true

Fiskeldi er nú þegar burðarás í vestfirsku atvinnulífi

Á haustþingi Fjórðungssambands Vestfirðinga sem haldið var í síðustu viku var einróma samþykkt harðorð ályktun af kjörnum fulltrúum allra sveitarfélaga á Vestfjörðum. Tengist hún framtíð fiskeldis í sjó. „Það er áfall fyrir Vestfirði og þjóðarbúið í heild að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafi hafnað beiðni fyrirtækjanna Arnarlax (Fjarðarlax) og Arctic Fish (Arctic Sea Farm) um…Lesa meira