Fréttir

true

Ragnar Þór sendir frá sér aðvörun

„Seðlabankinn, Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld fá hér með aðvörun,“ skrifar Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og deilir frétt á samfélagsmiðlum þess efnis að Seðlabankinn hafi nú tekið ákvörðun um að halda stýrivöxtum áfram óbreyttum, eða 4,25%. „Ef ekki verður látið af gengdarlausu vaxtaokri á íslenska alþýðu og endalausum hótunum um að hækka vexti og verðlag…Lesa meira

true

Veturinn virðist ætla að þjófstarta

Veðurfræðingar spá nú vaxandi austlægri átt með morgninum. Það verður austan- og norðaustan 13-23 m/s eftir hádegi með rigningu eða slyddu, fyrst syðst. Hvassast með suðurströndinni. Hann verður norðlægari með kvöldinu og bætir í vind um landið norðanvert. Norðaustan hvassviðri eða stormur norðan- og norðvestantil í nótt og á morgun með snjókomu. Lengst af hægari…Lesa meira

true

„Hann fékk aldrei tækifæri til að misstíga sig“

Í Skessuhorni sem kom út í dag er opnuviðtal við Báru Tómasdóttur og Andreu Ýr Arnarsdóttur, móður og systur Einars Darra Óskarssonar. Þær ræða um Einar, minningarsjóðinn og þjóðarátakið „Ég á bara eitt líf“ og vandamálið sem misnotkun ungs fólks á lyfseðilsskyldum lyfjum er orðið. Neonbleiki liturinn sem einkennir Minningarsjóð Einars Darra hefur farið um…Lesa meira

true

Samningur um víðtæka forvarnarfræðslu í Hvalfjarðarsveit

Í liðinni viku var undirritaður forvarnarsamningur milli fjölskyldu- og frístundanefndar og fræðslunefndar Hvalfjarðarsveitar og forvarnarhópsins Ég á bara eitt líf.  Snýr hann að víðtækri forvarnarfræðslu í Hvalfjarðarsveit og er jafnframt fyrsti forvarnarsamningurinn sem forvarnarhópurinn Ég á bara eitt líf undirritar. Um er að ræða samvinnuverkefni tveggja nefnda sveitarfélagsins til að styrkja forvarnir í Hvalfjarðarsveit fyrir…Lesa meira

true

„Er ekki hérna til að halla mér aftur í stólnum“

Sigurður Páll Jónsson tók sæti á Alþingi fyrir Miðflokkinn eftir kosningar til Alþingis síðastliðið haust. Hann er 8. þingmaður Norðvesturkjördæmis og situr í atvinnuveganefnd. Áður hafði hann af og til sest á þing sem varaþingmaður Framsóknarflokksins frá því desember 2013 til og með maí 2017. Í aðdraganda alþingiskosninganna 2017, fyrir rétt tæpu ári síðan, sagði…Lesa meira

true

Hrafnaþing á haustmorgni

Það var óvenjuleg sjón sem blasti við Hilmari Sigvaldasyni, vitaverði í Akranesvita, þegar hann mætti til vinnu í morgun. Hópur hrafna var þá á sveimi við vitann, taldi Hilmar að nálægt 20 hrafnar hefðu verið þar á flugi. Algengast er að sjá hrafna tvo og tvo saman, en stundum þrjá eða fleiri á haustin, þá…Lesa meira

true

Sáttanefnd skipuð vegna sýknudóms í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu

Forsætisráðherra hefur skipað sáttanefnd til að leiða viðræður við fyrrum sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu og aðstandendur þeirra. Voru þeir sem kunnugt er sýknaðir með dómi Hæstaréttar Ísland 27. september í endurupptökumáli. Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur er formaður nefndarinnar sem fulltrúi forsætisráðuneytis. Auk hennar sitja í nefndinni Bryndís Helgadóttir, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu og Magnús Óskar Hafsteinsson,…Lesa meira

true

Vel heppnað Akranesmeistaramót í sundi

Akranesmeistaramótið í sundi fór fram síðastliðinn fimmtudag í sundlauginni við Jaðarsbakka þar í bæ. Alls tóku 33 sundmenn ellefu ára og eldri þátt í mótinu og var það mjög vel heppnað, að því er fram kemur í tilkynningu á Facebook-síðu Sundfélags Akraness. Akranesmeistarar 2018 í flokki 11-12 ára eru þau Guðbjarni Sigþórsson og Freyja Hrönn…Lesa meira

true

Herða regluverk um sölu rafrettna

Neytendastofa vinnur nú að útfærslu á gjaldtöku vegna markaðssetningar á rafrettum sem innihalda nikótín og áfyllinga fyrir þær. Gert er ráð fyrir að framleiðendur vörunnar sæki um markaðsleyfi og greiði áskilið gjald, nema í tilvikum þegar smásalar kjósa sjálfir að tilkynna vöru á markað. Í reglugerð ráðherra sem Neytendastofa styðst við er kveðið á um…Lesa meira

true

Minningarfyrirlestur frestast um hálfan mánuð

Tilkynning frá Snorrastofu í Reykholti: “Af óviðráðanlegum ástæðum frestast minningarfyrirlestur Hauks Þorgeirssonar um Snorra Sturluson, „Sömdu Sturlungar þetta allt saman?“, sem vera átti í kvöld í Bókhlöðu Snorrastofu, 2. október, um hálfan mánuð, til þriðjudagsins 16. október kl. 20:30.”Lesa meira