Fréttir

true

Primera Air gjaldþrota

Fréttavefurinn Vísir.is greinir frá því síðdegis í dag að Primera Air Nordic og Primera Air Scandinavia muni sækja um greiðslustöðvun á morgun. Samkvæmt heimildum Vísis var starfsmönnum félagsins tilkynnt um þessi áform í tölvupósti í dag. Þeim hefur öllum verið sagt upp, eftir því sem Vísir kemst næst. „Í póstinum kemur fram að seinkun á…Lesa meira

true

Féll af vélarhlíf bifreiðar

Tveir piltar gerðu sér það að leik að aka bíl á meðan annar stóð á vélarhlíf hans á Akranesi síðastliðinn fimmtudag. Endaði það með ósköpum, því sá sem stóð á vélarhlífinni féll fram af bílnum þegar hann var kominn á töluverða ferð með þeim afleiðingum að hann meiddist alvarlega á höfði. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni…Lesa meira

true

Innbrotsþjófar stungu lögreglu af á stolnum bíl

Þrír karlar og ein kona voru handtekin í Borgarnesi í nótt og eru nú í haldi Lögreglunnar á Vesturlandi. Þetta staðfestir Jón S. Ólason yfirlögregluþjónn í samtali við Skessuhorn. Fólkið er grunað um innbrot í nokkur fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu og í Kjós. Fyrst er talið að fólkið hafi brotist inn í fyrirtæki í Reykjavík og…Lesa meira

true

Dagur þorsksins í húsi Sjávarklasans á miðvikudaginn

Næstkomandi miðvikudag efnir Hús sjávarklasans til Dags þorsksins í fjórða skipti. Hús sjávarklasans við gömlu höfnina í Reykjavík verður þá opnað öllum áhugasömum og fjöldi íslenskra fyrirtækja mun kynna þær fjölmörgu afurðir sem framleiddar eru úr þorskinum hér á landi og þá tækni sem þróuð hefur verið til að hámarka nýtingu og gæði afurðanna. Skipulögð…Lesa meira

true

Stórt tap í fyrsta leik Skagamanna

ÍA mátti sætta sig við stórt tap gegn Álftanesi, 72-136, þegar liðin mættust í fyrsta leik 2. deildar karla í körfuknattleik á föstudag. Gestirnir frá Álftanesi höfðu undirtökin í upphafi leiks og leiddu með 30 stigum gegn 15 eftir eftir fyrsta leikhluta. En Skagamenn svöruðu fyrir sig í öðrum leikhluta, léku mun betur en í…Lesa meira

true

Alþjóðleg landslagsarkitektaverðlaun fyrir hönnun stígs á Saxhól

Teiknistofan Landslag hlaut í liðinni viku ein virtustu verðlaun sem veitt eru fyrir landslagsarkitektúr, hin alþjóðlegu Rosa Barba Landscape Prize. Verðlaunin fékk fyrirtækið fyrir hönnun á tröppustíg upp á Saxhól í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Þetta er án efa mesta viðurkenning sem íslenskir landslagsarkitektar hafa hlotið og ætti að hvetja hönnuði og framkvæmdaaðila til faglegra og vandaðra…Lesa meira

true

Lengsta ferð sumarsins ellefuhundruð sinnum lengri en sú stysta

Steinar Ragnarsson úr Borgarnesi hefur síðastliðin átta ár starfað við hópferðaakstur hjá Reyni Jóhannssyni á Akranesi og ekur einum af bláu bílunum sem merktir eru Trex. Sem slíkur ekur Steinar með íslenska hópa og erlenda ferðamenn vítt og breitt um landið. Í gær fékk hann það hlutverk að ferja gesti sem viðstaddir voru afhendingu Hvalfjðarganga…Lesa meira

true

Met Baldurs stendur enn óhaggað

Sauðamessa var fyrst haldin í Borgarnesi haustið 2004, en þessi árlega hátíð verður eins og kunnugt er um næstu helgi. Þessi hátíð til heiðurs íslensku sauðkindinni hefur laðað að þúsundir gesta, en talið var að um fjögur þúsund manns hafi sótt hana 2004. Einn er sá dagskrárliður sem haldist hefur óbreyttur alla tíð, en það…Lesa meira

true

OR hlýtur risastyrk til að breyta mengun í stein

Orkuveita Reykjavíkur ásamt samstarfsaðilum hefur hlotið ríflega tveggja milljarða króna styrk úr Horizon 2020 Rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB. Styrkurinn er til verkefnisins GECO, sem miðar að sporlausri nýtingu jarðhita. OR leiðir þetta samstarfsverkefni 18 fyrirtækja og stofnana víðs vegar úr Evrópu. Markmið GECO, sem stendur fyrir Geothermal Emission Control, er að þróa jarðhitavirkjanir með sem…Lesa meira