Fréttir

true

Gleðin sem gjöf er heiti ljósmyndasýningar Steinu Matt

Steinunn Matthíasdóttir ljósmyndari í Búðardal hefur sett upp ljósmyndasýninguna Gleðin sem gjöf í kirkjutröppum Akureyrarkirkju. „Sýningin stendur fyrir virðingu og lífsgleði með það í huga að vekja fólk til umhugsunar um virðingu fyrir þeim sem eldri eru og lífsgæðum þeirra. Ljósmyndasýningin er sett upp í samstarfi við Helgu Möller söngkonu í tilefni flutnings hennar á…Lesa meira

true

Fékk veglegan námsstyrk frá Landsbankanum

Fimmtán námsmenn fengu nýverið námsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans. Styrkirnir voru þá veittir í tuttugasta og sjöunda sinn og nam heildarupphæð styrkjanna sex milljónum króna. Styrkirnir eru veittir í fimm flokkum: Til framhaldsskólanema, iðn- og verknema, háskólanema, háskólanema í framhaldsnámi og til listnema. Alls bárust rúmlega 700 umsóknir. Dómnefndin leitaðist við að velja metnaðarfulla og framúrskarandi…Lesa meira

true

Kortavelta ferðamanna jókst um fimmtíu prósent

Í maí síðastliðnum nam erlend greiðslukortavelta tæpum 20 milljörðum króna samanborið við rúmlega 13 milljarða í sama mánuði 2015. Um er að ræða 51,4% aukningu á milli ára. Í tilkynningu frá Rannsóknasetri verslunarinnar kemur fram að kortavelta ferðamanna jókst á milli ára í öllum útgjaldaliðum í maí. Erlendir ferðamenn greiddu tæpar 600 milljónir með kortum…Lesa meira

true

Tveimur grindhvölum komið til bjargar

Tveir grindhvalir syntu upp í kletta við Elínarhöfða á Akranesi seint í gærkvöldi. Félagar úr Björgunarfélagi Akraness brugðust skjótt við, fóru á staðinn og ýttu hvölunum á flot aftur. Að sögn Önnu Leif Elídóttur, sem var á staðnum, virtist sem að minnsta kosti annar hvalurinn hafi verið særður. Engu að síður náðist að stugga við…Lesa meira

true

AMÍ á Akranesi um næstu helgi

Nú er á lokametrunum undirbúningur fyrir Aldursflokkameistaramót Íslands, AMÍ, í sundi sem haldið verður helgina 24 – 26. júní á Akranesi. Um er að ræða lágmarkamót sem þýðir að aðeins þeir sem ná ákveðnum lágmörkum keppa á mótinu. Það eru því aðeins bestu sundmennirnir í sínum aldursflokkum sem keppa. „Það eru um 300 keppendur skráðir…Lesa meira

true

Sæmundur er Snæfellsbæingur ársins

Menningarnefnd Snæfellsbæjar útnefndi Sæmund Kristjánsson Snæfellsbæing ársins 2016 á þjóðhátíðardaginn. Sæmundur er fæddur á Hellissandi en fjögurra ára gamall flutti hann til Rifs. Hann fór til náms í vélsmiðunni Steðja í Reykjavík en eftir námið koma hann heim í Rif með unda stúlku sér við hlið; Auði Grímsdóttur sem er eiginkona hans í dag. Byggði…Lesa meira

true

Slitnir strengir eru bæjarlistamenn Akraness 2016

Slitnir strengir, sem áður hét Þjóðlagasveit Tónlistarskólans á Akranesi, fékk á þjóðhátíðardaginn útnefningu sem bæjarlistamaður Akraness árið 2016. Tók Skúli Ragnar Skúlason stjórnandi og stofnandi sveitarinnar á móti viðurkenningunni. Sveitin hefur verið starfrækt í þeirri mynd sem hún er í dag allt frá 2001. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri sem afhenti viðurkenninguna sagði að í rökstuðningi menningar-…Lesa meira

true

Geir Waage í hópi orðuhafa á þjóðhátíðardaginn

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands sæmdi tólf Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Í þeim hópi er séra Geir Waage sóknarprestur í  Reykholti. Hann fær riddarakross fyrir framlag til uppbyggingar Reykholtsstaðar og varðveislu íslenskrar sögu og menningar. Séra Geir hefur verið sóknarprestur í Reykholti síðan 1978, eða samfleytt í 38 ár. Á…Lesa meira

true

Bilun orskakaði sandblástur yfir nærliggjandi hús

Í gær varð bilun í búnaði til þess að sandsíló á athafnasvæði fyrrum Sementsverksmiðju á Akranesi yfirfylltist og sandmökk lagði yfir nærliggjandi hús og garða. Gunnar H. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar, sagði í samtali við fréttastofu RUV að óhappið hafi orðið vegna mannlegra mistaka þegar verið var að framleiða þurrkaðan og malaðan sand. Fyrir mistök yfirfylltist…Lesa meira

true

Límtré Vírnet selur þrjár nýjar reiðskemmur á Snæfellsnes

Segja má að hestamennska á Snæfellsnesi hafi tekið stórt stökk inn í framtíðina um síðustu helgi þegar skrifað var undir kaupsamninga vegna byggingar þriggja nýrra reiðskemma. Aðdragandinn er sá að fyrir nokkrum mánuðum tóku þrír aðilar á Snæfellsnesi sig saman og óskuðu eftir tilboðum í reiðskemmubyggingar. Þetta voru fulltrúar Hesteigendafélags Stykkishólms, Hestaeigendafélagið Hringur í Ólafsvík…Lesa meira