Fréttir

true

Tveimur grindhvölum komið til bjargar

Tveir grindhvalir syntu upp í kletta við Elínarhöfða á Akranesi seint í gærkvöldi. Félagar úr Björgunarfélagi Akraness brugðust skjótt við, fóru á staðinn og ýttu hvölunum á flot aftur. Að sögn Önnu Leif Elídóttur, sem var á staðnum, virtist sem að minnsta kosti annar hvalurinn hafi verið særður. Engu að síður náðist að stugga við…Lesa meira

true

AMÍ á Akranesi um næstu helgi

Nú er á lokametrunum undirbúningur fyrir Aldursflokkameistaramót Íslands, AMÍ, í sundi sem haldið verður helgina 24 – 26. júní á Akranesi. Um er að ræða lágmarkamót sem þýðir að aðeins þeir sem ná ákveðnum lágmörkum keppa á mótinu. Það eru því aðeins bestu sundmennirnir í sínum aldursflokkum sem keppa. „Það eru um 300 keppendur skráðir…Lesa meira

true

Sæmundur er Snæfellsbæingur ársins

Menningarnefnd Snæfellsbæjar útnefndi Sæmund Kristjánsson Snæfellsbæing ársins 2016 á þjóðhátíðardaginn. Sæmundur er fæddur á Hellissandi en fjögurra ára gamall flutti hann til Rifs. Hann fór til náms í vélsmiðunni Steðja í Reykjavík en eftir námið koma hann heim í Rif með unda stúlku sér við hlið; Auði Grímsdóttur sem er eiginkona hans í dag. Byggði…Lesa meira

true

Slitnir strengir eru bæjarlistamenn Akraness 2016

Slitnir strengir, sem áður hét Þjóðlagasveit Tónlistarskólans á Akranesi, fékk á þjóðhátíðardaginn útnefningu sem bæjarlistamaður Akraness árið 2016. Tók Skúli Ragnar Skúlason stjórnandi og stofnandi sveitarinnar á móti viðurkenningunni. Sveitin hefur verið starfrækt í þeirri mynd sem hún er í dag allt frá 2001. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri sem afhenti viðurkenninguna sagði að í rökstuðningi menningar-…Lesa meira

true

Geir Waage í hópi orðuhafa á þjóðhátíðardaginn

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands sæmdi tólf Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Í þeim hópi er séra Geir Waage sóknarprestur í  Reykholti. Hann fær riddarakross fyrir framlag til uppbyggingar Reykholtsstaðar og varðveislu íslenskrar sögu og menningar. Séra Geir hefur verið sóknarprestur í Reykholti síðan 1978, eða samfleytt í 38 ár. Á…Lesa meira

true

Bilun orskakaði sandblástur yfir nærliggjandi hús

Í gær varð bilun í búnaði til þess að sandsíló á athafnasvæði fyrrum Sementsverksmiðju á Akranesi yfirfylltist og sandmökk lagði yfir nærliggjandi hús og garða. Gunnar H. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar, sagði í samtali við fréttastofu RUV að óhappið hafi orðið vegna mannlegra mistaka þegar verið var að framleiða þurrkaðan og malaðan sand. Fyrir mistök yfirfylltist…Lesa meira

true

Límtré Vírnet selur þrjár nýjar reiðskemmur á Snæfellsnes

Segja má að hestamennska á Snæfellsnesi hafi tekið stórt stökk inn í framtíðina um síðustu helgi þegar skrifað var undir kaupsamninga vegna byggingar þriggja nýrra reiðskemma. Aðdragandinn er sá að fyrir nokkrum mánuðum tóku þrír aðilar á Snæfellsnesi sig saman og óskuðu eftir tilboðum í reiðskemmubyggingar. Þetta voru fulltrúar Hesteigendafélags Stykkishólms, Hestaeigendafélagið Hringur í Ólafsvík…Lesa meira

true

Ragnar safnar fyrir ferðalyftara með buffsölu

Líf Ragnars Egilssonar breyttist svo um munaði 28. júní 2014. Síðdegis á laugardegi lenti hann í alvarlegu mótorhjólaslysi rétt fyrir utan Akranes með þeim afleiðingum að hann hálsbrotnaði. Ragnar er 33 ára Skagamaður sem í dag er bundinn hjólastól, lamaður fyrir neðan háls. „Ég er nýlega búinn að taka fram úr olíuflutningabíl og er að…Lesa meira

true

Þjóðhátíðardagur Íslendinga er í dag

Þjóhátíðardagur Íslands er í dag, 17. júní. Dagurinn er fæðingardagur Jóns Sigurðssonar forseta og var fyrst minnst með opinberum samkomum árið 1907. Almennur þjóðminningardagur á aldarafmæli Jóns forseta var svo haldinn 17. júní 1911. Árið 1944 var 17. júní valinn stofndagur lýðveldisins sem fagnar því 72 ára afmæli í dag. Skessuhorn óskar landsmönnum öllum til hamingju með…Lesa meira

true

Víðgelmir nú aðgengilegur öllum

Hjónin Stefán Stefánsson og Þórhalla Laufey Guðmundsdóttir keyptu síðasta haust jörðina Fljótstungu í Borgarfirði. Þau hjónin, ásamt börnum sínum, hafa staðið í miklum framkvæmdum þar undanfarnar vikur, nánar tiltekið í hellinum Víðgelmi sem tilheyrir Fljótstungu. Þau Stefán og Þórhalla eru sjálf búsett á Akureyri en elsti sonur þeirra, Hörður Míó Ólafsson, er staðarhaldari í Fljótstungu…Lesa meira