Fréttir

true

„Hæ, sjómenn íslenskir erum við og björg að landi berum við…“

Þannig er upphaf textans sem Jónas gerði ódauðlegan við lag Jóns Múla bróður síns. Eins og það getur verið þægilegt á vetrum að stunda innivinnu eins og kallað er, þegar snjór og kalsatíð ríkir, getur það að sama skapi tekið á sálartetrið að vera lokaður inni við störf á skrifstofu heilu dagana þegar tíðarfarið er…Lesa meira

true

Hvalfjarðardagar tókust vel í blíðskapar veðri

Hvalfjarðardagar fóru fram um liðna helgi frá föstudegi og til sunnudags. Veðurguðirnir voru í sannkölluðu hátíðarskapi og skartaði fjörðurinn sínu fegursta sem og mannlíf og dýralíf eins og meðfylgjandi myndir bera með sér. Að sögn Ásu Líndal Hinriksdóttur félagsmála- og frístundafulltrúa, sem sá um utanumhald viðburða, gekk hátíðin vel og voru margir dagskrárliðir afar vel…Lesa meira

true

Nýjar áskoranir á nýju skólaári

Þegar sumri tekur að halla fara að sjást krakkar á rölti í bæjum og til sveita, flestir með tilhlökkun í svipnum og með skólatöskur á bakinu. Eflaust fagna einhverjir foreldrar endurkomu rútínunnar og snemmbúnari háttatíma. Starfsfólk í skólum fagnar nýju skólaári og nýjum áskorunum og tekið er brosandi á móti börnunum sem koma endurnærð aftur…Lesa meira

true

Sveitarfélög greiða nú skólagögnin

Ný könnun Velferðarvaktarinnar á kostnaðarþátttöku grunnskólabarna í skólagögnum, svo sem ritföngum og pappír, sýnir að á næsta skólaári munu 99% grunnskólabarna búa í sveitarfélögum sem hafa afnumið hana. Fyrir tveimur árum var hlutfallið 23% og 85% á síðasta skólaári. Siv Friðleifsdóttir, formaður Velferðarvaktarinnar segir þessa þróun einstaklega ánægjulega: „Nýja könnunin sýnir að sveitarfélögin eru að…Lesa meira

true

Segir prósentur aflgjafa misskiptingar

„Það er þyngra en tárum taki að hlusta á lukkuritara forréttindahópanna tala um að lágtekjufólk hafi hækkað mest í kaupmætti og dregið hafi úr ójöfnuði og misskiptingu,“ skrifar Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness og heldur áfram: „Það blasir við að allur þessi samanburður byggist á prósentuhagfræði en sú hagfræði stenst ekki nokkra skoðun enda fer…Lesa meira

true

Afleit veðurspá fyrir morgundaginn

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir hluta landsins á morgun, fimmtudag. Næstu nótt er víða spáð frosti inn til landsins, einkum í lægðum og dældum þar sem kalt loft getur safnast fyrir. Hvassviðri mun vara fram á föstudag á miðhálendinu. Á Faxaflóasvæðinu og við Breiðafjörð er spáð stífri suðaustanátt eftir hádegi á morgun með…Lesa meira

true

Margt annað en mygluostar framleiddir í Búðardal

Í frétt Skessuhorns í dag og veffrétt á skessuhorn.is í gær var sagt því að Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði hafa sent atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti bréf þar sem samtökin lýsa sjónarmiðum sínum varðandi fyrirhugaða úttekt á áhrifum innflutningskvóta í ostum sem verndaðir eru með upprunatáknum eða landfræðilegum merkingum samkvæmt reglum Evrópusambandsins. Í fréttinni var vísað í…Lesa meira

true

Eldsneyti virðist hafa komist í frárennslislagnir

Í Búðardal hafa staðið yfir framkvæmdir við bensíntanka N1 við Vesturbraut 10. Eitthvað virðist hafa farið úrskeiðis við þá vinnu í ljósi þess að dæmi eru um að íbúar hafi vaknað upp í nótt við megna bensínlykt og í morgunsárið urðu starfsmenn leikskóladeildar Auðarskóla sömuleiðis varir við bensínlykt á salernum leikskólans. Íbúi við Búðarbraut, sem…Lesa meira

true

Nær tveggja milljarða gjaldfært tap Spalar vegna afskrifta

Spölur, eigandi og rekstraraðili Hvalfjarðarganganna, tapaði um 1,8 milljörðum króna eftir skatta á fyrri helmingi yfirstandandi árs. Á sama tímabili í fyrra hagnaðist félagið um liðlega 307 milljónir króna. Afskriftir jukust á sama tíma um nær 2,7 milljarða króna, sem skýrist af því að Spölur afhendir ríkinu Hvalfjarðargöngin síðar á þessu ári. Í árshlutauppgjöfi sem…Lesa meira

true

Flipar áldósa til stuðnings fötluðum á Spáni

Það eru greinilega margvísleg not fyrir flipa af áldósum. Á dögunum afhentu þau Daníel Guðmundsson og Dorothy M Breiðfjörð 15 kíló af flipum á Spáni. Flipana fengu þau hjá vinum og ættingjum á Íslandi sem hafa verið að safna og tóku þau flipana með sér til Spánar. Daníel bjó um tíma í Snæfellsbæ og nýtti…Lesa meira