Fréttir

true

Nýr rekstraraðili tekur við Leifsbúð

Hafliði Elíasson hefur tekið við rekstri Leifsbúðar í Búðardal og var opnað með nýjum áherslum í vikunni sem leið. Opnunartími hefur lengst og er nú opið frá klukkan 12 til 15 og 18 til 22.  Áhersla er lögð á fjölbreyttan mat samhliða hefðbundnu kaffi og bakkelsi. Súpa dagsins verður fastur liður ásamt völdum sjávarréttum og…Lesa meira

true

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir í Skallagrím

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir hefur verið meðal bestu körfuknattleikskvenna á Íslandi undanfarin ár. Hún hefur nú skrifað undir samning um að spila með gamla uppeldisfélaginu á næstu leiktíð í efstu deild. Sigrún Sjöfn spilaði á síðustu leiktíð með Grindavík í Domino‘s deild kvenna en hún lék tvo leiki með Skallagrími í fyrstu deild kvenna í upphafi…Lesa meira

true

Guðmundur Óli ráðinn skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi

Guðmundur Óli Gunnarsson hefur verið ráðinn í stöðu skólastjóra Tónlistarskólans á Akranesi. Hann tekur við af Lárusi Sighvatssyni sem lætur af störfum eftir að hafa gegnt því í þrjá áratugi. Guðmundur Óli hefur komið víða við á sínum starfsferli. Hann lauk námi í hljómsveitarstjórn við Utrechts Conservatorium í Hollandi en nam einnig um tíma hjá…Lesa meira

true

Hreppslaug opnuð á morgun eftir endurbætur

Liðin eru 88 ár frá því Hreppslaug í Skorradal var byggð en hún er næstelsta 25 metra steinsteypta laug á landinu. Nú í byrjun sumars hafa staðið yfir framkvæmdir við laugina en eftir að hún var friðuð árið 2014 fékkst styrkur frá Minjastofnun til að laga laugarkerið sjálft. Þá var ákveðið að ráðast í frekari…Lesa meira

true

Ganga á Snæfellsjökul á sumarsólstöðum

Hjónin Jón Jóel Einarsson og Þuríður Maggý Magnúsdóttir reka á Arnarstapa ferðaþjónustufyrirtækið Go West, eða „Út og vestur“ eins og það kallast á íslensku. Undanfarin ár hafa þau boðið upp á svokallaða sólstöðugöngu í júní, þar sem gengið er upp á Snæfellsjökul á sumarsólstöðum og niður aftur. Að sögn Jóns Jóels er það Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull…Lesa meira

true

Könnuðu ástandið í sjónum við landið

Árlegum vorleiðangri Hafrannsóknastofnunar lauk 1. júní síðastliðinn. Farið var á rannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni. Leiðangurinn var liður í langtímavöktun á ástandi sjávar, næringarefnum, gróðri og átu á hafsvæðinu við Ísland. Í samantekt um niðurstöðu leiðangursins segir; „að hiti í efri sjávarlögum í hlýsjónum sunnan við landið, líkt og var vorið 2015, hafi verið nokkuð lægri en…Lesa meira

true

Tónlistarskólafólk langþreytt á samningsleysi

Tónlistarkennarar fjölmargra tónlistarskóla hafa síðustu daga sent frá sér ályktanir og yfirlýsingar þar sem þeir lýsa furðu yfir þeirri stöðu sem upp er komin í samningaviðræðum þeirra við Samband íslenskra sveitarfélaga. Tónlistarskólakennarar innan Félags kennara og stjórnenda tónlistarskóla (FT) hafa nú verið samningslausir í rúmt hálft ár og engin lausn virðist í sjónmáli í deilunni.…Lesa meira

true

Inga María stefnir að plötuútgáfu í desember

Inga María Hjartardóttir er 22 ára Skagakona sem vinnur nú að útgáfu sinnar fyrstu plötu. Inga stundar nám í Boston í Bandaríkjunum við Berklee College of Music. Hún hefur verið við nám í Berklee síðan haustið 2013 en á nú aðeins eina önn eftir og verður plötuútgáfan hennar fyrsta verk eftir útskrift. „Ég hef lengi…Lesa meira

true

Vinstri grænir ákveða forval í NV kjördæmi

Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi fór fram á Hvanneyri síðastliðinn laugardag. Þar var samþykkt að fram færi forval vegna komandi alþingiskosninga. Kosið verður um sex efstu sæti á framboðslistanum. Jafnframt var kosin kjörstjórn til að sjá um framkvæmd forvalsins og gera tillögu til kjördæmisráðs um uppröðun á framboðslista. Segja má að þetta…Lesa meira

true

Búið að ráða skipulags- og byggingafulltrúa í Borgarbyggð

Gunnar Sigurgeir Ragnarsson hefur ráðinn sem skipulags- og byggingafulltrúi Borgarbyggðar. Gunnar er með BSc gráðu í byggingafræði frá Vitusbering Horsens í Danmörku og með sveinspróf í húsasmíði frá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Hann hefur starfað í byggingaiðnaði í um aldarfjórðung og sem skipulags- og byggingafulltrúi Grundarfjarðarbæjar síðasta árið. Alls sóttu fjórir um starfið. Aðrir umsækjendur voru Berglind…Lesa meira