Fréttir

true

Hvalirnir virðast una sér vel

Grindhvalavaða með um hundrað hvölum fór inn á Kolgrafafjörð í morgun og heldur hópurinn sig á svipuðum slóðum skammt frá landi. Fylgjast þeir með fólki í landi sem komið er til að fylgjast með þeim. Tómas Freyr Kristjánsson ljósmyndari Skessuhorns tók meðfylgjandi myndir nú skömmu fyrir hádegi. Engar aðgerðir eru í gangi til að reyna…Lesa meira

true

Evrópumeistarar í blandaðri liðakeppni

Skagamennirnir Valdís Þóra Jónsdóttir og Birgir Leifur Hafþórsson urðu á laugardag Evrópumeistarar í blandaðri liðakeppni í golfi. Skipuðu þau lið Íslands ásamt Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur og Axel Bóassyni. Leikið var á Gleneagles í Skotlandi og mótið var hluti af meistaramóti Evrópu. Valdís Þóra og Birgir Leifur léku saman og hið sama gerðu Axel og Ólafía…Lesa meira

true

Skagamenn tylltu sér á toppinn

ÍA lyfti sér á toppinn í 1. deild karla í knattspyrnu með 2-1 útisigri á Njarðvík á fimmtudagskvöld. Heimamenn voru ívið sprækari í blábyrjun leiksins en það voru engu að síður Skagamenn sem skoruðu fyrsta markið. Kom það strax á 9. mínútu þegar Jeppe Hansen fékk þá boltann rétt fyrir framan miðjubogann. Hann var ekkert…Lesa meira

true

Grindhvalurinn kominn aftur inn á Kolgrafafjörð

Grindhvalavaðan sem gekk inn á Kolgrafafjörð í gær er nú komin aftur undir brú og inn á fjörðinn. Björgunarsveitum tókst í gær að beina vöðunni úr firðinum, en það reyndist skammgóður vermir. Björgunarsveitarfólk fylgjast með en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort reynt verður að nýju að reka þá undir brúna. Um eða yfir…Lesa meira

true

Malbikun á Kjalarnesi í kvöld og annað kvöld

Í kvöld og annað kvöld er stefnt á að malbika eina akrein til norðurs á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi, á um 3,5 km kafla á milli Leiðhamra og Sjávarhóla. Malbikuð er ein akrein hvorn dag og umferð handstýrt á meðan, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. „Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli klukkan 18:00 til kl.…Lesa meira

true

GK og GR sigurvegarar á Íslandsmóti golfklúbba

Íslandsmót golfklúbba fór fram dagana 10.-12. ágúst og var leikið í sex deildum víðsvegar um landið. Golfklúbburinn Keilir sigraði í 1. deild karla og Golfklúbbur Reykjavíkur í 1. deild kvenna. Þetta er í 15. sinn sem Keilir fagnar þessum titli í karlaflokki en í 20. sinn sem GR sigrar í efstu deild kvenna. Þetta er…Lesa meira

true

Grindhvalavaða inn á Kolgrafafjörð

Í dag fór grindhvalavaða innfyrir brú og inn í Kolgrafafjörð á Snæfellsnesi. Fjölmenni fylgdist með björgunarsveitarmönnum úr Klakki í Grundarfirði reyna að reka hvalina út aftur á móti miklum innfallsstraumi. Sú aðgerð mistókst til að byrja með þar sem straumur undir brúnni var of mikill. Nú fyrir skömmu var í það minnsta hluti hvalanna farinn…Lesa meira

true

Náttúrufyrirbrigði skulu bera nafn

Í framhaldi af náttúruhamförunum í Hítardal í byrjun júlí, þegar berghlaup varð í Fagraskógarfjalli, hefur Örnefnanefnd bent á að hefja þurfi undirbúning að því að gefa hinum nýju náttúrufyrirbærum í náttúrunni nafn, svo sem stöðuvatni ofan skriðunnar og skriðunni sjálfri. Samkvæmt lögum um örnefni er það hlutverk sveitarstjórnar að nýjum náttúrufyrirbærum skuli gefið nafn. Byggðarráð…Lesa meira

true

Gul viðvörun fyrir Breiðafjarðarsvæðið

Veðurstofa Íslands varar við allhvassri eða hvassri suðaustanátt frá klukkan 22 í kvöld og allan morgundaginn við Breiðafjörð. „Suðaustan 13-20 m/s og hviður allt að 30 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi. Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind,“ segir í tilkynningu Veðurstofunnar en þar er gul viðvörun fyrir svæðið.Lesa meira

true

Íslandsmót golfklúbba fer fram um helgina

Um þessa helgi fer fram árleg keppni golfklúbba hér á landi, en spilað er á sex stöðum á landinu. Þannig fer t.d. keppni í 1. deild karla fram á Garðavelli á Akranesi, en í 1. deild kvenna verður spilað á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði. Aðrir keppnisstaðir eru Norðfjörður, Sandgerði, Vestmannaeyjar og Suðurnes. Keppt er í fjórum…Lesa meira